Fréttablaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 26
Ég var bara ungur hippi íKaliforníu og flakkaði umeins og þeirra er háttur,“ segir Fred þegar hann er spurður hvers vegna hann hafi tekið þessa trú fyrir þrjátíu árum. „Á þeim tíma brunnu á mér þrjár mikil- vægar spurningar sem ég tel nú að flestir spyrji sig einhvern tím- ann á ævinni en þær eru: hvaðan kem ég, hvers vegna er ég hér og hvert er ég að fara? Ég var því í raun að leita sannleikans eins og svo margir flakkarar. Svo kynnt- ist ég tveimur mormónum þar sem ég var í byggingarvinnu. Fyr- ir tilstilli þeirra fór ég á samkomu og til að kynna mér málin enn bet- ur las ég Mormónabókina. Því sem gerðist eftir það er í raun ekki hægt að lýsa með orðum; ég hafði öðlast fullvissu.“ Margir hippanna í vinahópi Freds litu undrandi á félaga sinn, sem tók stökkbreytingum eftir frelsunina, en þó segir hann að vin- ir sínir hafi ekki snúið við sér baki. „Vinir mínir sáu að ég var alsæll og það er nokkuð sem sannir vinir gleðjast yfir og margir þessara manna eru góðir vinir mínir enn í dag. Þeim sem eitthvað höfðu út á þetta að setja var eflaust ekki um- hugað um velferð mína svo það voru ekki vinir í raun. En við mormónar eigum ekki í vandræð- um með að umgangast fólk þó lifn- aðarhættir þess séu okkur ekki að skapi. Ég hélt því áfram að spjalla við mína vini þó þeir héldu á vín- glasi en ég á Mormónabókinni,“ segir Fred og hlær. Farsælast að konan sé heima „Fjölskyldan er mormónum allt,“ segir Fred og fær aðdáunarglampa í augun þegar hann er spurður út í Johönu konu sína. „Hún er alveg stórkostleg, við höfum verið gift í 25 ár og eigum fimm börn en samt er hún eins og lífsglaður unglingur. Ég er í rauninni hennar dyggasti aðdáandi. Hún er líka orðin amma en það stöðvaði hana ekki í því að hlaupa Reykjavíkurmaraþonið; hún fór létt með það.“ Johana er húsmóðir en mormón- ar leggja mikið upp úr því að móð- irin sé ávallt til staðar fyrir börnin og haldi heimilinu í góðu horfi. „Ég hef oftsinnis fengið að heyra það frá mörgum konum að ég sé að kasta lífinu á glæ með því að vera eingöngu húsmóðir í stað þess að huga að eigin starfsframa,“ segir Johana. „En það fær ekki svo mik- ið á mig því að ég finn lífsfyllingu í því sem ég er að gera. Eins hafa börnin mín sagt það við mig að þau verði mér ævinlega þakklát fyrir að vera heima og vera alltaf til staðar fyrir þau og sú viðurkenn- ing er mér mikilvægari en nokkur starfsferill. En Fred kemur alveg jafnt að uppeldinu og þegar hann kemur heim fær hann að taka til hendinni og svæfa og allt það. En það er ekki svo að mormónar skyldi konur til að vera heima þó það sé talið heppilegast og í mínu tilfelli er þetta hreinlega mitt val.“ Paradísarheimt Á nítjándu öld töldu mormónar að Utah í Bandaríkjunum væri þeirra fyrirheitna land og að þar myndu hjartahreinir trúbræður búa í sátt og samlyndi. Um hundrað þúsund mormónar víðs vegar að héldu þangað með allt sitt hafurtask og þeirra á meðal voru um fjögur hundruð Íslend- ingar. Halldór Laxness gerði þessa sögu að yrkisefni í bókinni Paradísarheimt en annars hefur þessi saga ekki farið hátt. „Konan mín á oftast bestu hug- myndirnar og það var einmitt hún sem benti mér á það að fara að kanna sögu þessara íslensku píla- gríma sem fóru til Spanish Fork. Þeir fyrstu komu þangað árið 1855, fyrir einmitt 150 árum, og af því tilefni er ég hér,“ segir Fred. „Þetta er í þriðja skipti sem ég er hér á landi og alltaf er ég jafnhrifinn af landi og þjóð. Hér hefur fólkið tekið okkur hjóna- kornum afar vel enda eru Íslend- ingar gestrisnir og hafa opnað okkur heimili sín og hjörtu. Fyr- ir það erum við ævinlega þakk- lát.“ Mormónar á Íslandi Á Íslandi eru um 200 meðlimir skráðir í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu en alls eru trúsystkini þeirra um tólf milljón- ir í heiminum öllum. Kristján Geir Mathiesen er umdæmisfor- seti Kirkjunnar hér á landi og blaðamanni lék forvitni á að vita hvort mormónar skæru sig úr með einhverjum hætti í íslensk- um hversdagsleika. „Fólk sér það svo sem ekkert úti á götu hvort ég sé mormóni eða ekki en vinnufé- lagar og aðrir sem umgangast mig verða varir við það svona smátt og smátt. Oft renna til dæmis tvær grímur á fólk þegar það sér að ég drekk hvorki kaffi, te eða áfengi og þá skýrast oft línurnar. Við mormónar reynum einnig að virða hvíldardaginn, sem er sunnudagur, og þegar allir þessir þættir eru teknir saman skerum við okkur kannski svolítið úr.“ 26 10. september 2005 LAUGARDAGUR Fólk sér fla› svo sem ekkert úti á götu hvort ég sé mormóni e›a ekki en vinnufélagar og a›rir sem umgangast mig ver›a varir vi› fla› svona smátt og smátt. Oft renna til dæmis tvær grímur á fólk flegar fla› sér a› ég drekk hvorki kaffi, te e›a áfengi og flá sk‡rast oft línurnar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. JÓ N S IG U RÐ U R FJÖLSKYLDAN Á LEIÐ Á SAMKOMU Hjónakornin Kristján Geir og Sóley Mathiesen halda á samkomu í Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í Garðabæ með prúðbúinn barnahópinn. Fyrir framan föður sinn stendur Daníel en Anja Dögg er við hlið móður sinnar og Yrja María unir sér í fanginu. FRED E. WOODS Fred kom hingað til lands í tilefni þess að 150 ár eru liðin frá því fyrstu íslensku pílagrím- arnir héldu til fyrirheitna landsins. Hann segist vera Ís- landsvinur númer eitt. Fyrir aftan hann er mynd af þekktasta musteri Mormóna en það er í Salt Lake City. Dyggasti a›dáandi konu sinnar fiau kenna flau sig vi› Kirkju Jesú Krists hinna Sí›ari daga heilögu en flest flekkjum vi› flau sem mormóna. Fred E. Woods er forstö›uma›ur Menningar- sögustofnunar mormóna í Utah en hann var hér á landi í tilefni fless a› 150 ár eru li›in frá flví fyrstu íslensku pílagrímarnir fóru til Spanish Fork í Bandaríkj- unum. Hann gaf Jóni Sigur›i Eyjólfssyni inns‡n í heim mormóna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.