Fréttablaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 26
Ég var bara ungur hippi íKaliforníu og flakkaði umeins og þeirra er háttur,“
segir Fred þegar hann er spurður
hvers vegna hann hafi tekið þessa
trú fyrir þrjátíu árum. „Á þeim
tíma brunnu á mér þrjár mikil-
vægar spurningar sem ég tel nú
að flestir spyrji sig einhvern tím-
ann á ævinni en þær eru: hvaðan
kem ég, hvers vegna er ég hér og
hvert er ég að fara? Ég var því í
raun að leita sannleikans eins og
svo margir flakkarar. Svo kynnt-
ist ég tveimur mormónum þar
sem ég var í byggingarvinnu. Fyr-
ir tilstilli þeirra fór ég á samkomu
og til að kynna mér málin enn bet-
ur las ég Mormónabókina. Því
sem gerðist eftir það er í raun
ekki hægt að lýsa með orðum; ég
hafði öðlast fullvissu.“
Margir hippanna í vinahópi
Freds litu undrandi á félaga sinn,
sem tók stökkbreytingum eftir
frelsunina, en þó segir hann að vin-
ir sínir hafi ekki snúið við sér baki.
„Vinir mínir sáu að ég var alsæll
og það er nokkuð sem sannir vinir
gleðjast yfir og margir þessara
manna eru góðir vinir mínir enn í
dag. Þeim sem eitthvað höfðu út á
þetta að setja var eflaust ekki um-
hugað um velferð mína svo það
voru ekki vinir í raun. En við
mormónar eigum ekki í vandræð-
um með að umgangast fólk þó lifn-
aðarhættir þess séu okkur ekki að
skapi. Ég hélt því áfram að spjalla
við mína vini þó þeir héldu á vín-
glasi en ég á Mormónabókinni,“
segir Fred og hlær.
Farsælast að konan sé heima
„Fjölskyldan er mormónum allt,“
segir Fred og fær aðdáunarglampa
í augun þegar hann er spurður út í
Johönu konu sína. „Hún er alveg
stórkostleg, við höfum verið gift í
25 ár og eigum fimm börn en samt
er hún eins og lífsglaður unglingur.
Ég er í rauninni hennar dyggasti
aðdáandi. Hún er líka orðin amma
en það stöðvaði hana ekki í því að
hlaupa Reykjavíkurmaraþonið;
hún fór létt með það.“
Johana er húsmóðir en mormón-
ar leggja mikið upp úr því að móð-
irin sé ávallt til staðar fyrir börnin
og haldi heimilinu í góðu horfi. „Ég
hef oftsinnis fengið að heyra það
frá mörgum konum að ég sé að
kasta lífinu á glæ með því að vera
eingöngu húsmóðir í stað þess að
huga að eigin starfsframa,“ segir
Johana. „En það fær ekki svo mik-
ið á mig því að ég finn lífsfyllingu í
því sem ég er að gera. Eins hafa
börnin mín sagt það við mig að þau
verði mér ævinlega þakklát fyrir
að vera heima og vera alltaf til
staðar fyrir þau og sú viðurkenn-
ing er mér mikilvægari en nokkur
starfsferill. En Fred kemur alveg
jafnt að uppeldinu og þegar hann
kemur heim fær hann að taka til
hendinni og svæfa og allt það. En
það er ekki svo að mormónar
skyldi konur til að vera heima þó
það sé talið heppilegast og í mínu
tilfelli er þetta hreinlega mitt val.“
Paradísarheimt
Á nítjándu öld töldu mormónar að
Utah í Bandaríkjunum væri
þeirra fyrirheitna land og að þar
myndu hjartahreinir trúbræður
búa í sátt og samlyndi. Um
hundrað þúsund mormónar víðs
vegar að héldu þangað með allt
sitt hafurtask og þeirra á meðal
voru um fjögur hundruð Íslend-
ingar. Halldór Laxness gerði
þessa sögu að yrkisefni í bókinni
Paradísarheimt en annars hefur
þessi saga ekki farið hátt.
„Konan mín á oftast bestu hug-
myndirnar og það var einmitt hún
sem benti mér á það að fara að
kanna sögu þessara íslensku píla-
gríma sem fóru til Spanish Fork.
Þeir fyrstu komu þangað árið
1855, fyrir einmitt 150 árum, og af
því tilefni er ég hér,“ segir Fred.
„Þetta er í þriðja skipti sem
ég er hér á landi og alltaf er ég
jafnhrifinn af landi og þjóð. Hér
hefur fólkið tekið okkur hjóna-
kornum afar vel enda eru Íslend-
ingar gestrisnir og hafa opnað
okkur heimili sín og hjörtu. Fyr-
ir það erum við ævinlega þakk-
lát.“
Mormónar á Íslandi
Á Íslandi eru um 200 meðlimir
skráðir í Kirkju Jesú Krists hinna
Síðari daga heilögu en alls eru
trúsystkini þeirra um tólf milljón-
ir í heiminum öllum. Kristján
Geir Mathiesen er umdæmisfor-
seti Kirkjunnar hér á landi og
blaðamanni lék forvitni á að vita
hvort mormónar skæru sig úr
með einhverjum hætti í íslensk-
um hversdagsleika. „Fólk sér það
svo sem ekkert úti á götu hvort ég
sé mormóni eða ekki en vinnufé-
lagar og aðrir sem umgangast mig
verða varir við það svona smátt
og smátt. Oft renna til dæmis
tvær grímur á fólk þegar það sér
að ég drekk hvorki kaffi, te eða
áfengi og þá skýrast oft línurnar.
Við mormónar reynum einnig að
virða hvíldardaginn, sem er
sunnudagur, og þegar allir þessir
þættir eru teknir saman skerum
við okkur kannski svolítið úr.“
26 10. september 2005 LAUGARDAGUR
Fólk sér fla› svo
sem ekkert úti á
götu hvort ég sé mormóni
e›a ekki en vinnufélagar
og a›rir sem umgangast
mig ver›a varir vi› fla›
svona smátt og smátt. Oft
renna til dæmis tvær
grímur á fólk flegar fla›
sér a› ég drekk hvorki
kaffi, te e›a áfengi og flá
sk‡rast oft línurnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
JÓ
N
S
IG
U
RÐ
U
R
FJÖLSKYLDAN Á LEIÐ Á SAMKOMU Hjónakornin
Kristján Geir og Sóley Mathiesen halda á samkomu í
Kirkju Jesú Krists hinna Síðari daga heilögu í Garðabæ
með prúðbúinn barnahópinn. Fyrir framan föður sinn
stendur Daníel en Anja Dögg er við hlið móður sinnar
og Yrja María unir sér í fanginu.
FRED E. WOODS Fred kom hingað til lands í tilefni
þess að 150 ár eru liðin frá því fyrstu íslensku pílagrím-
arnir héldu til fyrirheitna landsins. Hann segist vera Ís-
landsvinur númer eitt. Fyrir aftan hann er mynd af
þekktasta musteri Mormóna en það er í Salt Lake City.
Dyggasti a›dáandi konu sinnar
fiau kenna flau sig vi› Kirkju Jesú Krists hinna Sí›ari daga heilögu en flest
flekkjum vi› flau sem mormóna. Fred E. Woods er forstö›uma›ur Menningar-
sögustofnunar mormóna í Utah en hann var hér á landi í tilefni fless a› 150 ár
eru li›in frá flví fyrstu íslensku pílagrímarnir fóru til Spanish Fork í Bandaríkj-
unum. Hann gaf Jóni Sigur›i Eyjólfssyni inns‡n í heim mormóna.