Fréttablaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 52
Svartifoss í Skaftafelli. Ljósmynd: Gunnar V. Andrésson
SJÓNARHORN
SVIPMYND
Djúpavík: Kauptún við samnefnda vík við
innanverðan Reykjarfjörð á Ströndum.
Upphafið: Elías Stefánsson hóf starfsemi
þar árið 1917 og rak síldarútgerð og síldar-
söltun í nokkur ár.
Sérkenni: Klettabeltið Lægribrún með til-
komumiklum fossi setur sterkan svip á
staðinn.
Þáttur í sögunni: Frá árinu 1935 til 1944 var athafnalíf fjörugt í Djúpuvík en
þá hvarf síldin úr Húnaflóa.
Hús: Síldarverksmiðjan var reist 1934-1935 og er mikið mannvirki. Hún er nú
til sýnis fyrir ferðamenn undir leiðsögn.
Íbúatala nú: Fjórir eru skráðir til heimilis í Djúpuvík en þó eru aðeins tveir
búsettir þar allt árið. Á sumrin er þó búið í allmörgum húsum.
Mannfagnaður: Djúpuvíkurdagar eru ávallt haldnir um miðjan ágúst. Þá er
hátíð.
Frægt: Talið er að hluti bókarinnar Guðsgjafaþulu eftir Halldór Kiljan Laxnes
gerist í Djúpuvík.
Gott að vita: Hótel Djúpavík er opið allt árið.
10. september 2005 LAUGARDAGUR16
Ljósheimar eru leiðandi miðstöð í heilsu líkama og sálar. Þar starfa heilarar,
nuddarar, nálastungufræðingur, höfuðbeina- og spjaldhryggsjafnarar, Bowen
meðferðaraðili og hómópati.
Að þessu sinni verður sérlega vegleg kristallasýning og fyrirlestrar um kristalla og
notkun þeirra, reglulega yfir daginn. Að venju bjóðum við upp á prufutíma gegn
vægu gjaldi auk þess sem heilunarpýramídi er uppi. Tehúsið að sjálfsögðu
sneisafullt.
Nánari upplýsingar má finna á www.ljosheimar.is
Verið öll hjartanlega velkomin!
Ljósheimar, Brautarholti 8, 2. hæð t.v.
www.ljosheimar.is
sími 551-0148
Við í Ljósheimum bjóðum ykkur
velkomin á Ljósheimadag
-Opið hús sunnudaginn 11. september kl. 13-18
Ljósheimaskólinn
Vegur til andlegs þroska og þekkingar
Skólinn er fyrir alla þá sem vilja kynnast fleiru en hinu efnislega og
öðlast víðari sýn á heiminn. Námið er byggt upp á fyrirlestrum,
fræðslu, hugleiðslu og öðrum æfingum.
Námið hefst 14. september
Nánari kynning á Ljósheimadegi, Brautarholti 8, 11. sept.
frá 13-18, á www.ljosheimar.is eða í síma 862-4545