Fréttablaðið - 10.09.2005, Page 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
62,82 63,12
115,29 115,85
77,89 78,33
10,447 10,509
9,993 10,051
8,347 8,395
0,5682 0,5716
92,67 93,23
GENGI GJALDMIÐLA 09.09.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
108,8949
4 10. september 2005 LAUGARDAGUR
Ágúst Einarsson um ráðningu Davíðs Oddssonar:
Ska›ar ímynd Se›labankans
SEÐLABANKINN „Ég er mjög ósátt-
ur við þessi vinnubrögð og
finnst þessi skipun mjög gagn-
rýniverð,“ segir Ágúst Einars-
son, deildarforseti viðskipta- og
hagfræðideildar Háskóla Ís-
lands.
„Að það skuli eina ferðina
enn vera skipaður stjórnmála-
maður í bankastjórastöðu í
Seðlabankanum sem er að setj-
ast í helgan stein. Ég var for-
maður bankaráðs Seðlabankans
og sagði af mér þegar Stein-
grímur Hermannsson var skip-
aður við samskonar aðstæður og
Davíð Oddsson núna,“ segir
Ágúst.
„Það gerðist fyrir rúmum tíu
árum og ég hélt að við hefðum
lært betri vinnubrögð en svo
virðist ekki vera. Staða seðla-
bankastjóra er sérhæft verkefni
á sviði peningamála og þeir sem
gegna henni verða að hafa fag-
legar forsendur til þess. Svo var
ekki í tilviki Steingríms Her-
mannssonar á sínum tíma og er
ekki í tilviki Davíðs Oddssonar
núna,“ segir Ágúst.
Hann segir pólitískar ráðn-
ingar vitaskuld skaða ímynd
Seðlabankans.
„Þetta eru vinnubrögð sem
þekkjast ekki í nálægum lönd-
um og eru ekki dæmi um góða
efnahagsstjórnun eða hegðun af
hálfu stjórnvalda. Við erum ein-
faldlega ekki komin lengra í því
að viðhafa eðlileg vinnubrögð
þegar kemur að stjórnmála-
mönnunum sjálfum,“ segir
Ágúst. - sda
EFTIRLAUN Laun seðlabankastjóra
voru hækkuð um fimmtán prósent
fyrir tveimur vikum. Formaður
bankastjórnar er nú með
1.354.000 krónur á mánuði, sam-
kvæmt upplýsingum frá Ingi-
mundi Friðrikssyni, aðstoðar-
bankastjóra Seðlabankans.
Davíð Oddsson hefur rétt á að
þiggja eftirlaun sem ráðherra
ofan á laun sín sem seðlabanka-
stjóri. Eftirlaunin í upphafi ráðn-
ingartímabilsins verða 334 þús-
und krónur á mánuði vegna ald-
urstengdrar skerðingar sem kem-
ur á eftirlaun þegar ráðherrar
fara í aðra launaða vinnu. Í lok
ráðningartímabils síns sem seðla-
bankastjóri verða eftirlaunin hins
vegar um 718 þúsund krónur.
Davíð gæti því verið með
1.688.000 krónur í laun frá ríkinu
á mánuði þegar hann tekur við
starfi seðlabankastjóra og
2.074.200 undir lok ráðningar-
tímabilsins.
Samkvæmt eftirlaunalögunum
umdeildu sem samþykkt voru á
Alþingi í desember 2003 hefur
Davíð rétt á eftirlaunum sem eru
80 prósent af launum forsætisráð-
herra. Laun forsætisráðherra eru
915.162 krónur á mánuði. Færi
Davíð á eftirlaun nú án þess að
fara í annað starf fengi hann því
732.130 krónur í eftirlaun á mán-
uði.
Davíð er fæddur 17. janúar
1948 og er því 57 ára en sam-
kvæmt eftirlaunalögunum getur
hann hafið töku eftirlauna 55 ára
hafi hann gegnt ráðherraembætti
lengur en sex ár. Hið sama gildir
fari hann í annað launað starf.
Lögin gera þó ráð fyrir því að
eftirlaunin skerðist um 0,5 pró-
sent fyrir hvern mánuð sem eftir-
launaþegann vantar upp á 65 ára
aldurinn og munu eftirlaun hans
sem forsætisráðherra því skerð-
ast um 43,5 prósent fyrsta mánuð
hans í starfi. Skerðingin minnkar
þó um 0,5 prósent á hverjum mán-
uði og fellur niður ef hann lætur
af störfum seðlabankastjóra.
Að sögn Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur, sem situr í bankaráði,
voru skiptar skoðanir um launa-
hækkunina í ráðinu. „Samfylking-
in samþykkti hana ekki,“ segir
Ingibjörg. sda@frettabladid.is
Á skilorð í tvö ár:
Beit a›ra í
baugfingur
DÓMSTÓLAR Ákvörðun um refsingu
rétt tæplega 26 ára gamallar konu
var í gær frestað í Héraðsdómi
Vestfjarða, en hún hafði verið kærð
fyrir líkamsárás. Haldi konan skil-
orð í tvö ár fellur refsingin niður.
Konan bar við sjálfsvörn þegar
hún beit aðra í baugfingur vinstri
handar í húsi á Ísafirði aðfaranótt
laugardagsins 19. mars síðastliðins.
Ákæruvaldið féllst á að árásin hefði
átt sér stað í átökum milli kvenn-
anna. Sú sem bitin var á einnig í
málarekstri fyrir dómi, en hún sæt-
ir ákæru fyrir líkamsárás, sem og
bróðir hennar. Hún hlaut bitför og
skurð á fingur. - óká
EKIÐ Í GEGN Samgönguráðherra fór
fyrstur um göngin.
Fáskrúðsfjarðargöng opnuð:
Bylting á
Austurlandi
SAMGÖNGUR Fáskrúðsfjarðargöng
voru formlega tekin í notkun í
gær. Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra klippti á borða við
gangamunnann Reyðarfjarðar-
megin.
Með tilkomu ganganna styttist
akstursleiðin á milli Fáskrúðs-
fjarðar og Reyðarfjarðar um 31
km og rutt er úr vegi einum hættu-
legasta vegarkafla á Austfjörðum,
veginum fyrir Vattarnes.
Fáskrúðsfjarðargöng eru tví-
breið, samtals 5,9 km að lengd, en
heildarkostnaður við gerð þeirra
er um 3,9 milljarðar króna.
- kk
Hótelstjórinn á Raufarhöfn:
Lei›inlegt
og kalt sumar
FERÐAÞJÓNUSTA „Sumarið var kalt og
leiðinlegt og aðsóknin eftir því,“
segir Erlingur Thoroddsen, hótel-
stjóri á Hótel
Norðurljósum
á Raufarhöfn.
Hann segir
enga lausa-
traffík hafa
verið í sumar,
aðeins þeir hafi
komið sem
bókuðu her-
bergi fyrir-
fram.
„Vont veður
og malarvegur
gerðu það að
verkum að ekki
komu fleiri til okkar í sumar,“ segir
Erlingur, sem hefur stýrt Norður-
ljósum í áratug. Sumarið var þó
ekki það versta sem Erlingur hefur
séð. „Nei, ég hef séð það verra,“
segir hann og vonast eftir betra
veðri næsta sumar. - bþs
...um bíla
á laugardögum í Fréttablaðinu.
Hafið samband við auglýsingadeild „Allts“
Síminn er 550-5000
markvissar auglýsingar
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
PR
E
28
02
3
0
4/
20
05
FRAKKLAND
EGYPTALAND
ÁGÚST EINARSSON:
„Staða seðlabanka-
stjóra er sérhæft
verkefni á sviði
peningamála og
þeir sem gegna
henni verða að
hafa faglegar for-
sendur til þess.“
DAVÍÐ KVEÐUR STJÓRNMÁLIN Hann verður þó ekki á flæðiskeri staddur því samkvæmt
hinum umdeildu eftirlaunalögum hefur hann rétt á eftirlaunum ofan á laun sín sem
seðlabankastjóri. Samtals verður hann því með 1.688.000 krónur frá ríkinu á mánuði í
upphafi ráðningartímabilsins en 2.074.200 í lok þess.
LAUN OG EFTIRLAUN DAVÍÐS:
20. OKT. 2005
Seðlabankastjóri kr. 1.354.000
Eftirlaun kr. 334.000
Samtals kr. 1.688.000
20. OKT. 2012
Seðlabankastjóri kr. 1.354.000
Eftirlaun kr. 732.130
Samtals kr. 2.074.200
ERLINGUR THORODD-
SEN HÓTELSTJÓRI Fáir
ferðamenn lögðu leið
sína til Raufarhafnar í
sumar.
CHIRAC HÆTTIR VIÐ FUND Jaques
Chirac Frakklandsforseti hefur
tilkynnt að hann muni ekki taka
þátt í fundi Sameinuðu þjóðanna í
New York í næstu viku af heilsu-
farsástæðum. Chirac þjáist af
æðaþrengingum sem hafa áhrif á
sjón hans. Miklar vangaveltur
eru í Frakklandi um hversu al-
varleg veikindin eru.
Daví› fær eftirlaun
auk se›labankalauna
Eftirlaun Daví›s Oddssonar leggjast ofan á laun hans sem se›labankastjóri.
Fyrst í sta› ver›a eftirlaunin 334 flúsund en hækka í 718 flúsund í lok rá›ning-
artímabilsins. Laun se›labankastjóra eru tæplega 1,3 milljónir á mánu›i.
MUBARAK SAKAÐUR UM SVINDL
Ríkisfjölmiðlarnir í Egyptalandi
fögnuðu úrslitum forsetakosning-
anna í landinu þar sem Hosni
Mubarak sitjandi forseti fór með
sigur af hólmi. Efasemdaraddir
eru þó uppi meðal stjórnarand-
stöðunnar um lögmæti kosning-
anna þó að hún fagni nýtilkomnu
lýðræði í landinu.
Bílveltur í Borgarfirði:
Keyr›u fullir
af dansleik
SLYS Tvær bílveltur urðu á Vestur-
landsvegi með stuttu millibili í
fyrrinótt skammt sunnan við Bif-
röst en þar var haldinn dansleikur
umrædda nótt. Báðir ökumenn-
irnir eru grunaðir um ölvun við
akstur. Engin slys urðu á fólki en
bílarnir eru báðir mjög skemmdir
eða ónýtir að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi. Fyrr um nóttina hafði
lögreglan afskipti af ökumanni
sem hafði fengið sér neðan í því.
Í gær voru síðan níu ökumenn
stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í
Borgarfirðinum þó að akstursskil-
yrði væru með verra móti. - jse