Fréttablaðið - 10.09.2005, Síða 18
Umsjón: nánar á visir.is
Tillitslausir áhættufjárfestar
Veckans Åffärer sem er vikurit um viðskipti
skrifar grein um íslenska fjárfesta og fjárfest-
ingar þeirra erlendis. Niðurstaða blaðisins er
að þar fari tillitslausir áhættufjárfestar sem láti
ekkert stoppa sig. Blaðið segir þá alla eiga
sameiginlegt að hafa kynnst afskiptum lög-
reglu. Er þar vísað til Baugsrannsóknar, Haf-
skipsmálsins og rannsóknar um meint inn-
herjasvik í tengslum við kaup Kaupþings á JP
Nordiska. Það mál velktist í sænska kerfinu í á
annað ár og var síðan látið niður falla. Ásak-
anirnar voru um að fjárfestar hefðu keypt í JP
Nordiska með innherjavitneskju um að Kaup-
þing myndi gera yfirtökutilboð. Þegar kaupin
áttu sér stað hafði Fréttablaðið meðal annarra
fjölmiðla skrifað nokkrar fréttir um að yfir-
gnæfandi líkur væru á að Kaupþing hygðist
taka JP Nordiska yfir. Upplýsingarnar voru því
kunnar að minnsta kosti þeim sem lesa ís-
lenska fjölmiðla.
Magasinkomplexinn
Greinin er fremur neikvæð og fordómafull í garð
Íslendinganna. Hryggjarstykkið í greininni eru
gamlar ritsmíðar norskra og danskra blaða. Annars
vegar skrif Berlingske Tidende sem trylltist þegar
krúnudjásnið Magasin du Nord var keypt og hins
vegar viðtal við prófessor Thore Johnsen við Við-
skiptaháskóla Noregs í Dagens Næringliv. Prófess-
orinn var harðlega gagnrýndur af kollegum hér á
landi fyrir að hafa ekki kynnt sér íslenskt efnahags-
líf og markað nægjanlega vel. Hann óttaðist hrun á
markaði ef eitthvað blési á móti. Hrun er ekki í
sjónmáli, þótt fáir neiti því að
hlutabréf á Íslandi séu fremur
dýr.
Íslendingar eru langt því frá
hættir fjárfestingum á
Norðurlöndum og
við því að búast að
slíkar greinar birtist
öðru hverju á næstu misserum.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.748 Fjöldi viðskipta: 320
Velta: 2.914 milljónir
+0,33%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Dresden Bank gaf í gær út skuldabréf
í íslenskum krónum fyrir tvo milljarða
króna. Heildarútgáfa erlendra aðila á
skuldabréfum í íslenskum krónum er
með því komin yfir þrjátíu milljarða
króna.
Farið hefur verið fram á hluthafafundi í
sænska getrauna og spilafyrirtækinu
Cherryföretagen. Burðarás hefur frá að-
alfundi eignast verulegan hlut í fyrirtæk-
inu og hefur farið fram á hluthafafund
þar sem kosin verðu stjórn sem endur-
speglar núverandi eignarhald á fyrirtæk-
inu.
Bandarískir neytendur hafa ekki verið
svartsýnni en nú síðan í mars 2003. RBC
CASH vísitalan, sem stofnunin Ipsos
mælir, lækkaði úr 72,6 stigum í ágúst í
61,4 stig nú. Ástæða svartsýninnar er
fellibylurinn Katrín og afleiðingar flóð-
anna í New Orleans.
18 10. september 2005 LAUGARDAGUR
Peningaskápurinn…
Actavis 41,60 +1,20% ...
Bakkavör 44,00 +0,00%... Burðarás 19,00 +1,60% ... FL Group
15,00 +0,30% ... Flaga 4,06 +0,00% ... HB Grandi 9,15 +1,10%
... Íslandsbanki 15,40 +0,00% ... Jarðboranir 20,10 +0,00% ... KB
banki 613,00 +0,30% ... Kögun 56,00 -0,90% ... Landsbankinn
23,00 +0,00% ... Marel 63,90 +0,30% ... SÍF 4,76 +0,80%
...Straumur 14,20 -0,40% ... Össur 88,50 +1,10%
Hampiðjan +4,48%
Síminn +2,02%
Nýherji +1,89%
Kögun -0,88%
Atorka Group -0,86%
Og fjarskipti -0,41%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Miki› flökt hefur veri›
á gengi krónunnar.
Se›labankinn er í
klemmu; hann á erfitt
me› a› hækka vexti en
flarf a› halda aftur af
ver›bólgunni.
Mikið flökt var á gengi krónunnar
í gærdag. Við opnun markaða
veiktist krónan strax um eitt pró-
sent eins og búist var við vegna til-
kynningar Seðlabankans í fyrra-
dag um aukin kaup á gjaldeyri til
að borga niður erlendar skuldir
ríkissjóðs. Hins vegar fóru gjald-
eyrismiðlarar fljótt aftur að kaupa
krónur. Aukin eftirspurn eftir
henni gerði það að verkum að
gengið hækkaði. Í lok gærdagsins
hafði krónan styrkst um 0,5 pró-
sent.
Gjaldeyrismiðlarar sem Frétta-
blaðið ræddi við í gær búast við að
verðbólgan í september mælist 0,8
til 1,0 prósent. Hagstofan tilkynnir
um það á mánudaginn. Það þýðir
4,2 til 4,3 prósenta verðbólgu mið-
að við tólf mánuði, sem er ekki
ásættanlegt fyrir Seðlabanka Ís-
lands. Hans meginmarkmið er að
halda verðlagi stöðugu. Fari verð-
bólgan upp fyrir fjögur prósent
verður bankinn að gera ríkis-
stjórninni bréflega grein fyrir
ástæðum þess.
Til að halda verðbólgu í skefj-
um má búast við að Seðlabankinn
telji nauðsynlegt að hækka vexti.
Greiningardeildir bankanna
reikna með að stýrivextir bankans
hækki um 0,5 prósent í lok septem-
ber. Þegar vextir á Íslandi eru mun
hærri en í öðrum löndum vilja er-
lendir aðilar hagnast á vaxtamun-
inum, sem er þá nógu mikill til að
vega upp gengisáhættuna. Þeir
kaupa þá krónur sem hefur hækk-
að gengi hennar undanfarið. Í ein-
földu máli má segja að erlendir að-
ilar hafi í gær verið búnir að kaupa
íslenskar krónur fyrir yfir þrjátíu
milljarða króna og selt öðrum er-
lendum aðila. Ekki er séð fyrir
endann á þeim kaupum.
Út frá sjónarhóli Seðlabankans
takast þessi sjónarmið á; hvernig
eigi að halda verðlagi í skefjum
með hækkun vaxta án þess að
gengið hækki um of.
Í efnahagsfregnum KB banka
er því spáð að vaxtamunur við út-
lönd nái hámarki í byrjun næsta
árs og verði 8 prósent, en lækki
síðan hægt. Hátt gengi krónunnar
geti verkað sem hemill á vaxta-
hækkanir Seðlabankans. Einnig er
því spáð að meðalgengi krónunnar
það sem eftir lifi árs og á því
næsta verði nokkuð hærri en áður
var spáð. bjorgvin@frettabladid.is
Seðlabankinn í klemmu
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ]
Úrvalsvísitalan heldur áfram að
hækka og slá met. Lokagildi henn-
ar í gær var 4.748 stig sem er
hæsta gildi frá upphafi. Í vikunni
hækkaði vísitalan um tæp 1,8 pró-
sent.
Straumur fjárfestingarbanki
hækkaði mest allra félaga í vikunni
eða um sjö prósent en rekja má
þessa hækkun til frétta af tæplega
tveggja milljarða viðskiptum Þórð-
ar Más Jóhannessonar forstjóra og
Magnúsar Kristinssonar, stjórnar-
formanns Straums, með hlutabréf í
því. Burðarás, sem mun að öllum
líkindum sameinast Straumi á
næstunni, hækkaði um sex prósent
á sama tíma. - eþa
ÞÓRÐUR MÁR JÓHANNESSON
HJÁ STRAUMI Hlutabréf í Straumi
hækkuðu mest í vikunni sem var eða
um sjö prósent.
Áfram hækka hlutabréf
Actavis hefur fest kaup á Higia
AD, einu stærsta búlgarska lyfja-
dreifingarfyrirtækinu. Kaupin
eru fjármögnuð með langtímaláni
en kaupverðið fæst ekki uppgefið.
Forsvarsmenn Actavis segja
að með kaupunum tryggi þeir sér
aðgang að tvö þúsund apótekum í
Búlgaríu og styrki mjög markaðs-
hlutdeild sína í sölu til apóteka og
sjúkrastofnana. Kaupin gera það
að verkum að Actavis hefur í
sömu hendi framleiðslu og dreif-
ingu á Búlgaríumarkaði.
Fyrirtækið virðist hafa fullan
hug á því að stækka enn frekar á
þessum markaði. „Búlgaría er
einn af okkar lykilmörkuðum og
stefna okkar er að styrkja okkur
þar enn frekar,“ segir Róbert
Wessman, forstjóri Actavis, í til-
kynningu frá félaginu.
Greiningardeild KB banka tel-
ur að kaupin styrki mikið rekstur
Actavis í Búlgaríu og býst við að
veltan þrefaldist þar. Velta Higia
er áætluð um 6,6 milljarðar króna
á þessu ári en gert er ráð fyrir að
hún verði á bilinu 7-7,7 milljarðar
á árinu 2006. - eþa
FJÁRFEST Í BÚLGARÍU Actavis styrkir stöðu sína í Búlgaríu með kaupum á Higia, stóru
lyfjadrefingarfyrirtæki, sem veltir tæplega sjö milljörðum króna á ári.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Actavis styrkir sig í Búlgaríu
Talið er líklegt að Björgólfur Thor
Björgólfsson taki við stjórnarfor-
mennsku í Straumi fjárfestingar-
banka af Magnúsi Kristinssyni að
loknum hluthafafundi í Straumi sem
fram fer þann 15. þessa mánaðar.
Fimm manns hafa boðið sig fram til
stjórnarkjörs en það eru Björgólfur
Thor, Eggert Magnússon, Kristinn
Björnsson, Magnús Kristinsson og
Þór Kristjánsson. Er því sjálfkjörið.
Tveir fyrstnefndu og Þór sitja í
stjórn Burðaráss en Kristinn og
Magnús í stjórn Straums.
Á fundinum verður lögð fram til-
laga stjórnar Straums um samein-
ingu við Burðarás. Hluthafar í
Burðarási munu fá um 43 prósent í
sameinuðu félagi.
Samdægurs fara fram hluthafa-
fundir í Landsbankanum og Burðar-
ási. - eþa
Björgólfur Thor talinn líklegur
stjórnarforma›ur Bur›aráss
HÖNDLAÐ MEÐ KRÓNUNA Erlendir aðilar hafa í auknum mæli viljað nýta sér hátt
vaxtastig á Íslandi miðað við útlönd og keypt íslenskar krónur fyrir um þrjátíu milljarða.
Það hefur hækkað gengi krónunnar.
GENGI GJALDMIÐLA
Gengi gjaldmiðla segir til um verðmæti
þeirra gagnvart öðrum gjaldmiðlum. Til
dæmis kostaði einn Bandaríkjadalur í
gær tæpar 63 krónur. Þegar gengi
krónunnar styrkist verður ódýrara að
kaupa Bandaríkjadal í krónum. Dalur-
inn verður dýrari ef krónan veikist. Í
grófum dráttum má svo segja að gengi
gjaldmiðla stjórnist af framboð og eftir-
spurn. Aukist eftirspurn eftir gjaldmiðli
hækkar gengi hans (verðið á gjaldmiðl-
inum hækkar) og öfugt ef eftirspurn
minnkar.
GENGIÐ OG VIÐSKIPTIN
Þegar gengi krónunnar er sterkt er
ódýrara fyrir innlenda aðila að kaupa
vöru og þjónustu í erlendum gjald-
miðli. Það fæst meira fyrir hverja
krónu. Hins vegar fá þeir sem fram-
leiða vöru og þjónustu á Íslandi færri
krónur í sinn vasa þegar þeir selja sínar
afurðir í útlöndum. Þeir fá færri krónur
en ella fyrir vörur sínar. Þess vegna
kvarta hinar svokölluðu útflutnings-
greinar á Íslandi yfir háu gengi.
GENGISVÍSITALA
Gengisvísitala íslensku krónunnar mæl-
ir verðgildi erlendra gjaldmiðla gagn-
vart krónunni. Þegar vísitalan hækkar
er verð erlendra gjalmiðla að hækka í
krónum talið. Hækkun vísitölunnar
jafngildir því lækkun á gengi íslensku
krónunnar (krónan að veikjast). Þegar
vísitalan lækkar er gengi krónunnar
hins vegar að hækka (krónan að styrkj-
ast). Vísitalan er samsett úr myntum
þeirra þjóða sem við eigum mest við-
skipti við.