Fréttablaðið - 10.09.2005, Page 54
Skeiðarvogur, 1980-1981
Þarna fæddist ég. Meira veit ég
ekki, enda var þetta stutt tímabil.
Amma og afi áttu íbúðina.
Reynigrund, 1981-1982
Ég flutti á Reynigrund aðeins árs-
gömul. Ég á engar minningar það-
an. Nema það að mamma sagði
mér að hún hefði komið að mér
einn daginn þar sem ég sat og
hrærði í klósettinu með matar-
sleifinni hennar. Þegar ég sá hana
brá mér svo mikið að ég tók á rás
en datt um þröskuldinn og
sprengdi á mér vörina.
Framnesvegur, 1982-1983
Ég flutti mikið á þessum árum og
góðar minningar náðu því miður
ekki að festast í huga mér.
Nýbýlavegur, 1983-1986
Ég var þriggja ára þegar
ég fluttist á Nýbýlaveg-
inn og sex ára þegar við
fluttum út.
Skeljagrandi, 1986-1993
Ég man eftir mér á
Skeljagrandanum þar
sem ég var að metast við
Snædísi systur mína um
það hvort ég kæmi hausn-
um á mér ennþá á milli
rimlanna sem aðskildu
stofuna og borðstofuna í
íbúðinni. En þar bjuggum
við frá því að ég var níu
til þrettán ára. Við gerð-
um okkur það að leik að
troða okkur á milli
þessara rimla í heilu lagi. Það end-
aði með því að í þrjósku minni
náði ég að troða mínum feita haus
í gegn. En komst að því að ég
hafði stækkað töluvert síðan síð-
ast og náði að festa mig. Ég heyri
enn filippeysk blótsyrði mömmu
minnar dynja í eyrum mér.
Austurgerði 6, 1993-2002
Ég ákvað að gerast graffari þegar
ég flutti í Kópavoginn. Ég gerðist
reyndar rappari á sama tíma.
Götugengi vesturbæjar Kópavogs
„Urban Assault“ réðu ríkjum á
þeim tíma. Lenti þar í heilmikilli
„eastside–westside“-deilu, sem
var reyndar deila milli austur- og
vesturbæjar Kópavogs. Ég vissi
reyndar aldrei um hvað hún sner-
ist, sem var aukaatriði, því ég var
þokkalega westside.
Twin Oaks, Maple Woods, New
York, 2002-2003
Það var frekar erfitt að finna sér
íbúð nánast hvert einasta skólaár.
En fyrsta árið fékk ég að finna
fyrir háskólamenningu Kana þar
sem bjórinn (33cl) var þambaður
af áfergju á meðan allir í kring
görguðu „jug jug jug jug“. Í lokin
kramdi viðkomandi dósina á enn-
inu á sér með tilheyrandi sigur-
hrópum „yeeeaaa“.
Ég keypti mér minn fyrsta bíl
þarna á 350 dollara. Þetta var
gamall en sportlegur rauður bíll.
Mér fannst ég ekkert smá töff.
Viku síðar kom reykur úr gírkass-
anum og bíllinn dó á miðri fimm
akreina hraðbraut þegar ég var á
leið í skólann. Það var ekki töff.
Ég varð að eiga bíl til að komast í
skólann svo ég keypti mér annan.
Það var rauður
Pontiac Grand
Am. Síðustu
vikuna mína í
skólanum, þeg-
ar ég var í loka-
prófum, var
keyrt á mig þar
sem ég var á
h e i m l e i ð .
Dekkið skutlað-
ist eitthvert
lengst í burtu
og ég sat föst í
þriggja dekkja
bílnum mínum
og gat ekki
opnað hurðina
því keyrt hafði
verið inn í bíl-
stjórahliðina. Ég var í fullum rétti
og fékk þetta bætt. Ég gerði þó
eina tilraun í viðbót og keypti mér
þriðja bílinn. Ford Taurus, sem
reyndar ofhitnaði bara einu sinni
en svo kom gat á hljóðkútinn
kannski tvisvar. Íbúðarúrvalið
var oft á tíðum ekki mikið. Ein
íbúð sem ég skoðaði hafði verið í
eigu gamallar krónískrar reyk-
ingakonu sem dó af tilheyrandi af-
leiðingum. Svartir blettir láku
niður gulan vegginn og teppið var
úr grænum svampi sem nánast
skreið úr íbúðinni af sjálfsdáðum.
Svo ég tók því opnum örmum að
sofa bara í bílnum í nokkrar næt-
ur.
Næsta íbúð var einhver mús-
arhola þar sem vatnið bunaði
ofan í beddann í hvert skipti sem
einhver á efri hæðinni fór í
sturtu. Í eitt skipti átti ég líka
heima tímabundið í húsi með
fimm strákum. Reyndar var
þetta þvottaherbergi þar sem
vélin var í gangi alla nóttina.
Orðaforði hússins gekk út á setn-
ingar á borð við „Dude that chick
is so hot“ og „did you check out
the rack on that one?“ Góðir fras-
ar.
Eftir þetta fluttist ég til Maple
Woods og bjó í lítilli kjallaraíbúð
þar sem þvottavél eigendanna var
í einu herberginu svo þeir áttu til
að ganga í gegnum íbúðina eins og
þeim sýndist. Ég gleymi þó aldrei
mjúku, volgu svamp-klósettset-
unni í þeirri íbúð. Hryllilegt alveg
hreint.
Shore Road, Long Beach, New
York, 2002-2003
Á endanum fékk ég loksins íbúð
sem ég átti skilið. Þessi var upp
við ströndina en gallinn var sá að
ég þurfti oft að keyra í einn og
hálfan tíma til að komast í skólann
og þá erum við bara að tala um
aðra leiðina. Það hafði þó ekki
mikil áhrif þegar restinni af deg-
inum var eytt í sólbaði á strönd-
inni.
Carlton Avenue ( Fort Green )
Brooklyn, New York, 2003-2004
Þarna var ég loksins komin til
Brooklyn og ekki bara eitthvert,
heldur akkúrat á milli gettósins
og þeirra ríkustu. Ég átti heima
þar í ár sem var lengsta sam-
fellda dvölin mín í New York.
Vinstra megin við húsið mitt var
verið að ræna búðir og skjóta
fólk. Hægra megin sat fólk á ná-
lægum kaffi- og veitingahúsum
og talaði saman í rólegheitum
með vínglas í hendi. Brooklyn er
sá staður sem er mér kærastur
því þar fékk ég borgarlífið og
menningu New York-borgar beint
í æð. Á sama tíma fékk ég líka að
kynnast fjölskyldulífi og sam-
heldni Brooklyn-búa.
Skógarsel 39, 2004
Hér bý ég nú. Foreldrar mínir
keyptu þetta hús í fyrra. Mamma
vill ala upp næstu fimm kynslóðir
í þessu húsi, þess vegna sá hún til
þess að það væri nógu stórt. Ég bý
þar í kjallaranum ásamt stökk-
breyttum köngulóm sem munu
líklega vera það eina sem ég kem
til með að ala upp næstu árin. ■
30 10. september 2005 LAUGARDAGUR
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
95
17
0
9/
20
05
GSM
SAMSÖNGUR
Nú bjóðum við glæsilega Samsung
GSM síma á frábærum tilboðum.
16.900 kr.
Samsung X640
9.900 kr.
Samsung X480
34.900 kr.
Samsung D500
RAGNA KJARTANSDÓTTIR „Ég bý í kjallaranum ásamt stökkbreyttum köngulóm.“
GÖTURNAR Í LÍFI MÍNU > RAGNA KJARTANSDÓTTIR
Skeiðarvogur
Reynigrund
Framnesvegur
Nýbýlavegur
Skeljagrandi
Austurgerði
Twin Oaks
Shore Road
Carlton Avenue
Skógarsel
Í Brooklyn lei› mér best
Ragna Kjartansdóttir tónlistarkona ger›ist rappari í Kópavogi og fluttist fla›an
til New York. Í Brooklyn fékk hún menningu borgarinnar beint í æ›.