Fréttablaðið - 10.09.2005, Blaðsíða 58
Metsöluhöfundurinn ÞráinnBertelsson sendir frá sérnýja skáldsögu í haust.
Bókin heitir Valkyrjur og er saka-
málasaga þannig að það má segja
að Þráinn sé á svipuðum nótum og
í fyrra. Þá sló hann í gegn með
reyfaranum Dauðans óvissi tími
sem var innblásinn af íslenskum
veruleika og vakti með verki sínu
bæði mikla athygli og nokkra
úlfúð.
Það má segja að dæmið hafi nú
snúist við en brotthvarf Davíðs
Oddssonar úr íslenskum stjórn-
málum sem var kunngjört í vik-
unni minnir um margt á svipaðan
atburð sem Þráinn lýsir í Valkyrj-
um. Lífið virðist því vera farið að
stæla Þráin en ekki öfugt.
Trúir ekki á tilviljanir
„Ég er svo gamall að það kemur
mér ekkert á óvart lengur,“ segir
Þráinn þegar hann er spurður
hvort sér hafi brugðið við yfirlýs-
ingu Davíðs Oddssonar fyrr í vik-
unni. „Ég reyni að skrifa eitthvað
sem endurspeglar þjóðfélagið og
þá aðallega það sem hefur gerst.
Þá liggur í hlutarins eðli, ef mað-
ur er á réttu róli, að maður endur-
spegli framtíðina að einhverju
leyti. Það sem kom mér kannski á
óvart var að þessi atburður þegar
utanríkisráðherra sagði af sér
skyldi verða jafn bjánalegur og ég
er að lýsa í nokkurs konar háðs-
ádeilu. Þaðan sem ég sit tekur
engu tali að slíkar tilviljanir eigi
sér stað að menn hætti í pólitík og
setjist í Seðlabankann af því að
seðlabankastjóri hafi ákveðið, af
tilviljun, að það henti honum að
hætta nokkrum mánuðum fyrr en
hann á að gera og að um síðustu
mánaðamót hafi laun bankastjóra
hækkað um 27%. Að vísu sagði ég
ekki fyrir um þetta með launa-
hækkunina enda verður maður,
þegar maður er rithöfundur, að
passa sig á því að verða ekki of fá-
ránlegur. Þá missa lesendur
traust á manni en þetta er nokkuð
sem stjórnmálamenn mættu læra
af rithöfundum. Ég get þó í raun
og veru ekki á neinn hátt glaðst
yfir þessu vegna þess að þegar
maður er að deila á samfélag sitt
er maður að gera það meðfram í
þeim tilgangi að það þróist ekki á
þann veg sem maður heldur að
það muni gera ef haldið er áfram
á sömu braut og maður er að vara
við. Það fylgir því engin sérstök
ánægja að sjá að þróunin er enn
vitlausari en manni sjálfum datt í
hug.“
Er enginn bjáni
Þráinn segir að Valkyrjur sé saka-
málasaga en um leið annað og
meira. „Þetta er reyfari, spennu-
saga og glæpasaga en um leið, frá
minni hálfu, grafalvarlegt bók-
menntaverk af því að ég held að
allar tegundir bókmennta eigi rétt
á sér og þetta er sú tegund bók-
mennta sem ég er að skemmta
mér við að vinna í um þessar
mundir. Það er svo skrýtið með
mig að ég vel mér greinar sem hin
svokallaða intelligensía hefur
yndi af því að fordæma. Ég gerði
á sínum tíma gamanmyndir sem
fjölluðu um það sem ég sá í kring-
um mig en þurfti inni á milli að
gera myndir eins og Magnús og
Skammdegi til þess að sanna að ég
væri ekki hálfviti.“
Þráinn sló eftirminnilega í
gegn með endurminningabók
sinni Einhvers konar ég fyrir
tveimur árum og fylgdi henni svo
eftir með reyfaranum Dauðans
óvissi tími og nú Valkyrjum. „Ég
byrjaði á endurminningunum
vegna þess að mér þótti rétt að
gefa út bók með tilheyrandi bók-
menntalegum tilþrifum áður en
ég byrjaði á glæpasögunum. Bara
til að minna á að ég sé ekki bjáni.“
Hefur rokselt bækur og bíómiða
Þráinn hefur átt góðu gengi að
fagna á síðari hluta rithöfundar-
ferils síns en minnist þó kvik-
myndagerðaráranna með hlýhug
þó hann hafi á síðustu tveimur
árum sent frá sér tvær bækur,
selt þær í tæplega 30.000 eintök-
um og fengið lof gagnrýnenda.
„Kvikmyndagerðin hlýtur að hafa
gengið alveg rosalega vel þar sem
ég var í þessu í aldarfjórðung án
þess að fara á hausinn. Ég þarf
alltaf að banka í tré þegar ég rifja
það upp. Í kvikmyndagerðinni
háði það mér að þurfa að fara í
gegnum einhverjar úthlutunar-
nefndir til þess að ná til fólks. Það
tókst nú engu að síður en ég var
alltaf með skömmtunarstjórana á
móti mér. Bækur get ég skrifað án
þess að sækja um leyfi til þess til
úthlutunarnefnda. Almenningur
tekur þessum bókum vel af tveim-
ur ástæðum; fólk finnur að ég er
að reyna að tala við það. Að ég á
erindi við mannskapinn og er einn
af hópnum. Ég er ekki að tala nið-
ur til fólks um einhverja sér-
fræðilega hluti eða fagurfræði
sem kemur fáum við. Ég er að fást
við sammannlega reynslu okkar
sem erum að reyna að þrauka
hérna norður í ballarhafi og er
voða þakklátur fyrir að vera nógu
vitlaus til að fólk hafi gaman af.“
Dásamlegt rithöfundalíf
„Það er dásamlegt að vera rithöf-
undur og einhvern tíma þegar
mér dettur í hug að skrifa forn-
sögu læt ég menn berjast. Ég
byrja kannski með 140 menn en
líst ekkert á það og skrifa því
1.400 menn inn í staðinn. Það kost-
ar ekki neitt en við erum að tala
um 100 milljónir sem ég þyrfti að
útvega til að bæta við þessu eina
núlli í kvikmynd. Bækur eru mjög
heillandi og ég hef hugsað mér að
skrifa fimm sakamálasögur um
eitt og annað í þjóðfélaginu. Næst
ætla ég að fjalla um það sem ég
held að sé mesti vágestur í ís-
lensku samfélagi. Það er ekki
kvótakerfið heldur eiturlyf og ég
ætla að skrifa bók sem heitir í bili
Engill dauðans. Allt er þetta háð
því að mér endist aldur og heilsa
en ég treysti mér samt ekki til að
halda endalaust áfram í þessu
formi. Sakamálasagan er ofsalega
spennandi form og ég held að
sakamálasaga sé erfiðasta bók-
menntaformið sem maður getur
fundið sér. Það er að segja ef mað-
ur telur sig eiga eitthvert annað
erindi en að skapa gæsahúð og
eftirvæntingu.“
Stingur prjónum í dúkkur
Þegar Dauðans óvissi tími kom út í
fyrra var talað um hana sem lykil-
róman, að í henni væri Þráinn að
fjalla um þekkta raunverulega ein-
staklinga undir rós. Þetta er þó
hvergi nærri svona einfalt. „Auð-
vitað minnir Haraldur í Þjóðbank-
anum á Björgólf í Landsbankanum
en ég geri í raun og veru ekkert
sem er ljótara en það að ég nota
þau áhrif sem umhverfið hefur á
mig og skrifa út frá þeim. Jökull
Pétursson, forsætisráðherra í Val-
kyrjum, er ekki Davíð Oddsson. Ég
hef hins vegar haft Davíð Oddsson
fyrir augunum sem forsætisráð-
herra lengur en nokkurn annan og
hann hefur haft meiri áhrif á minn
hugarheim en nokkur annar for-
sætisráðherra. Ég skrifa um það
sem kemur úr mínum hugarheimi.
Ég sit ekki með myndavél fyrir
utan heimili Davíðs og ljósmynda
hann. Ég hef ekkert þegið frá hon-
um sem hann og fjölmiðlar hafa
ekki geislað yfir mig. Mér leiðist
þessi barnalega afstaða að maður
stundi einhvers konar vúdú með
því að búa til dúkkur, bókmennta-
legar eftirlíkingar og stinga þær
með bókmenntalegum títuprjón-
um. Ég er bara rithöfundur, ekki
vúdúlæknir.“
34 10. september 2005 LAUGARDAGUR
Sakamálasagan Valkyrjur
eftir Þráin Bertelsson
kemur út á næstunni.
Fréttablaðið birtir hér
kaflann Spili lýkur úr bók
Þráins.
J ÖKULL Pétursson forsætis-ráðherra var nátthrafn ogvakti gjarna fram á rauða
nótt og spilaði þá stundum bridds á
Veraldarvefnum við ókunnugt fólk
í öðrum löndum og heimsálfum
undir nikkinu Bláklukka. Í raun-
inni var þessi þekktasti maður Ís-
lands einfari og þótt hann umgeng-
ist marga starfs síns vegna átti
hann fáa vini. Og aðeins einn
þeirra hefði látið sér til hugar
koma að hringja í hann eftir mið-
nætti.
„Sæll,“ sagði Jökull í símann og
gaf með röddinni til kynna að hann
væri upptekinn.
„Kláraðu spilið,“ sagði Gestur
Oddleifsson. „Hringdu í mig um
leið og það er búið. Við þurfum að
tala saman.“
„Hvað er svona mikilvægt?“
spurði Jökull þegar hann hringdi
nokkrum mínútum síðar í vin sinn,
framkvæmdastjóra Lýðræðis-
flokksins. Jökull hafði sagt fjóra
spaða og ætlað að klára seinna
geimið og rúbertuna en varð
tveimur slögum undir, doblað og
redoblað. Hann kenndi trufluninni
um og var ergilegur.
„Þá er komið að því,“ sagði Gest-
ur. „Þetta er símtalið sem við höf-
um báðir vitað að ég þyrfti hugsan-
lega að hringja einhvern tímann
þótt við höfum báðir vonað að til
þess kæmi ekki.“
„Silkisnúran?“ spurði Jökull.
„Núna?“
„Seðlabankinn,“ sagði Gestur.
„Skynsamir menn forða sér í skjól
áður en óveðrið skellur á.“
„En ég ætla ekki í Seðlabankann
fyrr en á næsta ári. Við vorum bún-
ir að ræða það mál. Hvaða óveður
ert þú að tala um?“
„Það eru tvær krappar lægðir á
leiðinni,“ sagði Gestur, sem hafði
yndi af að tala í líkingum. „Ég tal-
aði við hana Elínu mína í dag.“
„Elínu?“
„Elínu ríkislögreglustjóra.“
„Og er hún svona veðurglögg?“
„Við vorum reyndar líka búnir að
sjá fyrir þennan möguleika.“
„Hvaða möguleika?“
„Elín hefur fregnað það eftir
óformlegum leiðum að málinu
gegn Minus Group verði vísað frá
dómi því að rannsóknin standist
ekki nema að litlu leyti þær kröfur
sem gera verður til þess að hægt sé
að dómtaka málið.“
„Það er þá hennar klúður og mér
óviðkomandi.“
„Já, að vissu marki. Ríkislög-
reglustjóri getur fyrir sitt leyti vís-
að ábyrgðinni á yfirmann Efna-
hagsbrotadeildar. En í þínu tilviki
er erfitt að benda á einhvern annan
blóraböggul.“
„Ég kem þessu máli ekkert við.“
„Við erum búnir að ræða það
mál,“ sagði Gestur Oddleifsson.
„Oft og mörgum sinnum ráðlagði
ég þér að láta ógert að hjóla í
Magnús Mínus með einhverju of-
forsi. Maður á að sæta færis. En þú
hafðir þitt fram.“
„Ég hef hvorki talað við ríkislög-
reglustjóra né skrifað henni til að
fara fram á þessa rannsókn, svo að
það er tómt mál að ætla að bendla
mig við þetta,“ sagði Jökull.
„Það er nú svo,“ sagði Gestur.
„Fjölmiðlar og almenningsálitið
halda því fram að þessi rannsókn
sé undan þínum rifjum runnin og
hafi verið framkvæmd til þess að
þóknast þér. Fjölmiðlar og almenn-
ingur eru sá dómstóll sem stendur
hæstarétti ofar og ekki þarf neinar
sannanir. Þú fekkst fjölmiðlana á
móti þér með þessu vanhugsaða
fjölmiðlafrumvarpi. Það sáu allir
að það var hefndaraðgerð en ekki
skynsamleg lagasetning til að tak-
marka eignarhald á fjölmiðlum.
Þetta erum við búnir að ræða. Og
ég var líka búinn að vara þig við
því að setja af stað þessa herferð
gegn Magnúsi. Hún var ótímabær
og hefur í för með sér ótímabærar
afleiðingar. Óhjákvæmilegar af-
leiðingar. Því miður.“
„Er það víst að málinu verði vísað
frá dómi?“
„Það er víst – að hluta til að
minnsta kosti. Það skín alls staðar í
gegn að þessi rannsókn er ekki
rannsókn á meintum brotum held-
ur dauðaleit að bókhaldslegum yf-
irsjónum. Við máttum vita þetta
fyrir.“
„Við höfum áður staðið af okkur
ágjöf og brotsjói,“ sagði Jökull við
vin sinn og vonaði að líkingamálið
nægði til að stappa í hann stálinu.
„Þá vorum við á nýju skipi með
óþreytta áhöfn,“ sagði Gestur. „Nú
er það farið að leka. Ekkert endist
til eilífðar. Ekki við heldur.“
„Ekki við?“ sagði Jökull. „Hvað
meinarðu? Þetta snýst bara um
mig. Þú ert enn þá þurr í fæturna.“
„Já,“ sagði Gestur. „Það er satt.
Þetta snýst víst bara um þig, en ég
stend með þér eins og ég hef alla tíð
gert. En það er ekki nóg með að
þessi rannsókn standist engar
dómskröfur og verði vísað frá. Bók-
in verður dropinn sem fyllir mæl-
inn. Elín sagði mér að líkurnar á því
að forða því að þetta handrit lendi
fyrir almenningssjónum séu hverf-
andi litlar. Og í bókinni er því hald-
ið fram að þú hafir í vitna viðurvist
hótað því að ganga milli bols og höf-
uðs á Magnúsi. Þegar þetta spyrst
út verður farið að ganga á vitnin, og
núna þegar menn vita að leki er
kominn að skipinu máttu bóka að
rotturnar reyna að komast í land.“
„Hvernig stendur á því að þetta
handrit finnst ekki? Til hvers halda
menn að við séum að halda úti öllu
þessu helvítis lögreglubatteríi?“
Gestur leiddi þessa spurningu hjá
sér. Hann var vanur að þykjast
ekki taka eftir reiðiköstum vinar
síns.
„Gott og vel,“ sagði Jökull. „Ég er
hvort sem er orðinn þreyttur á að
eiga að bera ábyrgð á öllum hlut-
um. Ég er búinn að gera mitt. Ég
segi af mér viku fyrir næsta lands-
fund.“
„Ég mundi ekki bíða svo lengi,“
sagði Gestur Oddleifsson. Óveðrið
er skollið á.
„Hvað mundir þú láta þetta bíða
lengi?“
„Til morguns. Ég mundi í þínum
sporum kalla saman miðstjórnina
og þingflokkinn í hádeginu og boða
svo til blaðamannafundar klukkan
tvö.“
Jökull hugsaði sig um. Með hjálp
Gests var hann vanur að vera fljót-
ur að taka ákvarðanir.
„En hvað með Seðlabankann?“
„Björn Ingvar seðlabankastjóri
og formaður bankaráðs verður sjö-
tugur á næsta ári. Hann er til í að
hætta um næstu mánaðamót. Ég
var að tala við hann.“
„En hver á að taka við forsætis-
ráðuneytinu?“
„Við látum Bændaflokkinn taka
við því, og nýi forsætisráðherrann
byrjar á því að skipa þig í Seðla-
bankann. Það er betra en að okkar
flokksmaður þurfi að gera það?“
„Ertu viss um að durgurinn geri
það?“ spurði Jökull.
„Ef sá draumur hans að verða
forsætisráðherra rætist?“ sagði
Gestur.
„Já.“
„Ég er búinn að ganga frá því. Ég
talaði við hann í dag.“
„Þetta gæti gengið upp,“ sagði
Jökull.
„Já,“ sagði Gestur.
„Allt í lagi. Getur þú boðað þessa
fundi á morgun? Með svona stutt-
um fyrirvara?“ Jökull var búinn að
taka ákvörðun. Best að koma sér í
skjól.
„Ég er búinn að því,“ sagði Gest-
ur Oddleifsson. „Þetta er allt
klappað og klárt.“
Jökull Pétursson forsætisráð-
herra sat um stund í bjarmanum
frá tölvuskjánum. Svo seildist hann
og slökkti á tölvunni. Hann hugsaði
um dauðann. Dauðinn er viss,
stundin óviss. Lögmál lífsins gilda
líka í stjórnmálum. Kominn tími til
að byrja nýtt líf. Framhaldslíf. Í
notalegu en tilbreytingarlausu
himnaríki Seðlabankans.
Skrýtið annars að kalla Seðla-
bankabygginguna Svörtu loft. Það
minnti meira á hinn staðinn.
Jökull Pétursson stóð á fætur og
geispaði. Hann var búinn að spila
nóg.
Spili l‡kur
Brotthvarf Daví›s Oddssonar úr íslenskum stjórnmál-
um minnir um margt um afsögn skálda›s forsætis-
rá›herra í væntanlegri skáldsögu firáins Bertelssonar.
fiórarinn fiórarinsson ræddi vi› firáin um skáldskap-
inn og lífi› og flá undarlegu stö›u sem kemur upp
flegar hi› sí›arnefnda stælir hi› fyrrnefnda.
ÞRÁINN BERTELSSON „Það er ekkert
þjóðfélag eða mannlegt samfélag sem ég
veit um sem ekki þarf á gagnrýni að halda.
Listamenn eiga að spegla samfélag sitt. Það
hafa þeir höfundar gert sem hafa orðið
lífseigastir. Svona piltar allt frá Shake-
speare til Halldórs Laxness. Þó að ég
sé einfari fylgist ég með því sem
gerist í kringum mig. Ég er ekki að
fordæma það, bara fjalla um
það sem ég sé og síðan geta
menn dregið sínar ályktanir.“
Stingur prjónum í
bókmenntadúkkur