Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.09.2005, Qupperneq 70

Fréttablaðið - 10.09.2005, Qupperneq 70
Undanfarin misseri hafa margir af fræg-ustu hönnuðum heims leitað langt afturtil fortíðar, til róta menningar sinnar, og verið undir miklum áhrifum af þjóðbún- ingum og öðrum þjóðlegum fatnaði. Japanskir kimonoar, spænskir bolero-jakkar og rúss- neskar loðhúfur hafa sést víða en þjóðleg- ur rússneskur klæðnaður er einmitt afar heitur þessa stundina. Þegar tísk- an sækir svo sterkt í annað tímabil er ekki flott að endurtaka nákvæmlega það sem áður var gert, heldur er um að gera að færa það til nútímans. Það er til dæmis alls ekki málið að skella sér í rússneska þjóðbúninginn frá toppi til táar, setja tvær fléttur í hárið og láta kalla sig Svetlönu. Kúnstin er sú að velja úr það sem er fallegast, hvort sem það er snið, útsaumur, mynstur eða stök flík, og blanda því við galla- buxur eða annað hefðbundið sem finnst í fataskápnum. Eitt af því sem er skemmtilegt við þjóðernistískuna er hversu kvenleg hún er því á þeim tíma sem fötin voru fyrst notuð var mikill munur á klæðnaði kvenna og karla. Á þeim tíma var ekkert sem hét „unisex“. Konur voru í pilsum og kjólum og í blússum með víðum erm- um og blúndum. Útsaumur var not- aður til hátíðabrigða ásamt leðri. Loðhúfan er svo punkturinn yfir i-ið í rússneskri tísku en hún er einnig sérstaklega praktísk fyrir okkur Íslendingana. Verum smart í vetur og látum okkur ekki verða kalt – finnum okkar innri babúsku. soleyk@frettabladid.is ...um bíla á laugardögum í Fréttablaðinu. Hafið samband við auglýsingadeild „Allts“ Síminn er 550-5000 markvissar auglýsingar ÍS LE N SK A A U G L† SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - PR E 28 02 3 0 4/ 20 05 > brúnar neglur ... Hitaðu þér te og dúll- aðu við neglurnar. Það er haustlegt og smart að vera með brúnlakkaðar negl- ur. Naglalakkið frá Bourjois (litur númer 60) er seið- andi súkkulaði- brúnt. 46 10. september 2005 LAUGARDAGUR Innganga í Manson-gengi› Ég hef oft spáð í því af hverju konur máli sig. Er það til að líta bet- ur út, fela hrukkur eða er það gert af einskærum vana? Því er sum- sé þannig varið að sumar kvenkyns verur kunna ekkert með snyrti- dót að fara og þá er betra að sleppa farðanum en að mála sig illa. Ég er að tala um þær sem bera á sig allt of mikið „kökumeik“ og nota of mikið af öllu. Það þarf ekki. Það er alveg hægt að vera sætur með smá gloss og maskara. Ég mála mig yfirleitt á hverjum degi, ekki þó til að verða svo voðalega sæt, heldur til að líta út fyrir að vera fullorðin. Bollukinnarnar og kubbs- lega andlitið framkalla nefnilega barnalegt yfirbragð. Ljósi punkturinn er að hrukkur eiga afar erfitt upp- dráttar í styrjöldinni við bollukinnarnar og mér sýnist þær síðarnefndu hafa vinninginn. Þegar ég er ómáluð, ógreidd með flaksandi krullur lít ég út fyrir að vera í tíu ára bekk eða svo. Þess vegna reyni ég að vakna í tæka tíð til að geta framkallað fullorðinslegt yfir- bragð með sólarpúðri, kinnalit og mask- ara. Þegar ég var ellefu eða tólf ára stalst ég til að setja á mig maskara sem var í eigu stúpmóður minnar. Ég hélt náttúrlega að enginn myndi taka eftir neinu og fór með maskarann út á pall í sólbað. Þegar ég kom inn úr sólinni var ég spurð að því hvort ég væri máluð og ég þverneitaði því. En fékk vægt sjokk þegar ég labbaði að speglinum. Ég hafði óvart nuddað á mér augun, gleymt því að ég væri með maskara, og leit því út eins og tví- burabróðir Marilyn Manson. Á þessum sama tíma eignaðist vinkona mín bólufelara sem þótti afar fullorðinslegt. Móðir hennar sagði henni að það væri mjög óhollt fyrir húðina að meika sig og sagði henni að nota bólufelara í staðinn. Ekki vildi betur til en hún setti bólufelarann yfir allt andlitið og fannst hún líta vel út. Þegar við skoðum myndir frá þessum tíma er hún næstum því eins og stytta, engin svipbrigði, bara massífur hlemmur yfir öllu andlitinu. Það má því deila um hvort þetta hafi verið gott ráð hjá móðurinni eða ekki? MÓÐUR VIKUNNAR > MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN SMEKKURINN ÁLFRÚN PÁLSDÓTTIR VERSLUNARSTJÓRI OG FÖRÐUNARFRÆÐINGUR Buxur me› sí›u klofi og dökkblá le›urstígvél Spáir þú mikið í tískuna? Já, mjög mikið. Það er óumflýjanlegt starfsins vegna. Uppáhaldshönnuður eða fatamerki? Stella McCartney er uppáhaldshönnuður- inn en annnars eru rosalega mörg fata- merki í uppáhaldi hjá mér því ég er alltaf að uppgötva ný og ný. Ætli ég segi ekki bara að Fornarina sé uppáhalds galla- buxnamerkið mitt og Traffic People sé flottast þegar mig vantar boli og toppa. Annars kaupi ég mikið „second hand“. Flottustu litirnir? Fyrir haustið finnst mér svartur, dökkbrúnn, navy-blár og gulllitaður flottastir. Hverju ertu veikust fyrir? Ég er rosa- lega veik fyrir beltum og töskum og á alltof mikið af þeim. Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Ég var að koma frá París og keypti mér mjög mikið þar. Það nýjasta er samt sennilega ljósbrúnar flauelsbuxur frá Mavi. Hvað finnst þér flottast í tískunni núna? Buxur með síðu klofi. Þær eru bæði flottar, trendí og ógeðslega þægi- legar. Hvað ætlar þú að kaupa í haust? Ég er að bíða eftir dökkgrænum og dökk- bláum leðurstígvélum sem eru væntan- leg fljótlega. Uppáhaldsverslun? Á Íslandi eru það Centrum, Rokk og rósir og Spútnik. Svo finnst mér alltaf gaman að fara í Urban Outfitters í London. Hvað eyðir þú miklum peningum í föt á mánuði? Úff! Ég verð að fá að segja „no comment“. Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án? Ég gæti ekki verið án „Aftur“-hettu- peysunnar minnar. Hún er svo þægileg að þegar maður fer í hana þarf maður eiginlega ekki að vera í neinu öðru. Hún er til dæmis rosalega góð á slæm- um sunnudögum. Uppáhaldsflík? Það er gamall Wrangler-gallajakki sem frænka mín gaf mér fyrir mörgum árum. Hann er pínu- lítill, eins og hann sé á fjögurra ára barn, en hann er alltaf tekinn fram á sumrin. Hvert myndir þú fara í verslunarferð? Ég er alltaf svakalega hrifin af Kaup- mannahöfn. Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér? Buffalo-skór. Ég átti tvenna, eina gráa og hvíta og eina svarta. Þeir eru og voru alveg hrika- legir. Ég vona að þeir komi aldrei aftur í tísku því þetta eru ljót- ustu skór í heimi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G ET TY , V AL G AR Ð U R Rækta›u flína innri babúsku HVER MYNDI EKKI vilja klæðast þessum? Topshop Smáralind. RÚSSNESKT VESTI gerir heilmikið fyrir heildarútlitið. Top- shop Smáralind. PILS úr Vero Moda. PILS úr Vero Moda. ARMBAND frá Accessorize í Kringlunni. SKEMMTILEGA OFINN jakki frá Topshop. LILLAÐUR er litur haustsins. Jakkinn er frá Vero Moda. RÚSSALEG stígvél frá 38 þrepum á Laugavegi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.