Fréttablaðið - 10.09.2005, Page 72

Fréttablaðið - 10.09.2005, Page 72
48 10. september 2005 LAUGARDAGUR Íslenskum leikskólabörnum frá Sæbóli var boðið upp á „uji“ graut á Ægisíðunni í gær í sól og blíðu. „Uji“ er grautur sem gef- inn er vannærðum börnum í Afr- íku. Viðbrögð íslensku barnanna voru áhugaverð, en öll voru þau tilbúin að smakka. Trommari úr Kramhúsinu var á staðnum og fólk frá Kenýa til að gera daginn myndrænan. „Í Afríku hafa börnin ekkert val og þar liggur munurinn. Þeim er boðinn þessi grautur sem er þeirra eina mál- tíð yfir daginn. Ef þau vilja hann ekki þá er einfaldlega ekkert annað í boði,“ segir Sigríður Arn- ardóttir, sjónvarpskona eða Sirrý eins og við þekkjum hana best. Tilgangurinn með þessum degi var að kynna þáttinn Fólk sem hefur göngu sína á miðvikudags- kvöldið klukkan níu. En í þættin- um fá Íslendingar tækifæri til þess að gerast heimsforeldrar. „Það er nóg að gefa þúsund krón- ur á mánuði. Með því getum við hjálpað þessum vannærðu börn- um í Afríku til þess að fá mat og vatn og til þess að komast í skóla,“ segir Sigríður. Þátturinn verður tvöfaldur og þó að aðalá- herslan verði lögð á það starf sem UNICEF hefur verið að vinna í Afríku, þá verður einnig líf og fjör. Sylvía Nótt kíkir í sund, kona frá Kenýa sem býr í Hveragerði kemur í heimsókn og litið er inn til íslenskrar fjöl- skyldu sem búsett er í Afríku. Íslandsvinirnir og Bandaríkja- mennirnir Antony and the John- sons skutu Bretum og Írum ref fyrir rass og unnu Mercury-verð- launin fyrir árið 2005. Umdeilt er hvort Antony átti tilkall til verð- launanna þar sem þau eiga að fara til bestu bresku eða írsku plötu ársins. Margir segja þetta skandal þar sem Anthony ólst upp í Kali- forníu og hefur búið í New York frá árinu 1990. Ástæðan fyrir því að hann á rétt á Mercury-verð- laununum er að hann er fæddur í Chichester í Englandi og er því með enskt vegabréf en það er það eina sem þarf til að eiga rétt á til- nefningu til verðlaunanna. Margir eru því í fýlu út í Ant- ony fyrir að hafa „stolið“ Merc- ury-verðlaununum. Meðal þeirra sem voru tilnefndir og þóttu lík- legir til að hljóta verðlaunin í ár eru Kaiser Cheifs fyrir plötuna Employment, Bloc Party fyrir Si- lent Alarm, Coldplay fyrir X&Y og M.I.A. fyrir Arular en allir þessir listamenn eru í miklum metum í Bretlandi. Nick Hodgson, trommari Kaiser Chiefs, sagði við blaðamann Guardian: „Hann er bandarískur. Þetta er góð plata sem á verðlaun skilið en það er nokkuð skítt að hann hafi aðeins unnið því hann er fæddur í Englandi.“ Örlar greinilega fyrir biturleika hjá Hodgson. Söngkon- an M.I.A. gekk út úr salnum nokkrum mínútum eftir að úrslit- in voru tilkynnt, sármóðguð. Bæði Antony og Kaiser Chiefs spiluðu á verðlaunahátíðinni ásamt Bloc Party, Maximo Park, The Magic Numbers, The Go! Team og fleirum. Þegar Antony tók við verðlaununum lét hann þessi orð falla: „Þetta hljóta að vera einhver mistök. Ég er gjör- samlega í skýjunum. Þetta er brjálað.“ Verðlaunin eru valin af öðrum virtum tónlistarmönnum, blaðamönnum og bransafólki. Í hópi fyrri sigurvegara eru meðal annars Franz Ferdinand, Dizzee Rascal, PJ Harvey og Ms. Dynamite. Íslensk börn hafa val Mercury-skandallinn ANTONY HEGARTY Margir tónlistarmenn eru ekki svo ánægðir að Antony and the John- sons hafi hlotið Mercury-verðlaunin sem veitt voru nýlega. Hljómsveitin er að mestu leyti bandarísk fyrir utan þá staðreynd að Antony er fæddur í Englandi. Verðlaunin geta aðeins breskir og írskir tónlistarmenn hlotið. Velcrow Ripper me› námskei› Kanadíski kvikmyndagerðarmað- urinn Velcrow Ripper heldur námskeið í heimildarmyndagerð á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík sem fer fram 29. sept- ember til 9. október. Auk þess verður nýjasta mynd hans, Scared Scared, sýnd á hátíðinni. Ripper hefur leikstýrt yfir þrjá- tíu kvikmyndum og myndböndum, bæði leiknum myndum og heimild- armyndum. Hann hefur unnið meira en 20 verðlaun á ferli sínum, þar á meðal verðlaun kanadísku kvikmyndaakademíunnar. Í Scared Scared er fylgst með fimm ára ferðalagi Rippers um heiminn þar sem hann heimsækir átakasvæði í leit að von. Hann skoðar jarðsprengjusvæði í Kam- bódíu, fer til Afganistan, Bosníu, Hiroshima, Ísraels og Palestínu og lítur á rústir tvíburaturnanna í New York. Ripper mun miðla af nær þrjá- tíu ára reynslu sinni af kvik- myndagerð laugardaginn 1. októ- ber á Kaffi Reykjavík. Skráning- argjald er 1500 krónur og er sæta- fjöldi takmarkaður. Meðal annars er hægt að skrá sig á heimasíð- unni filmfest.is. ■ SCARED SCARED Ripper heimsækir meðal annars Afganistan í myndinni Scared Scared. Það eru ekki fáar erlendar stór- stjörnur sem hafa verið giftar allt að fimm sinnum á ævinni. Skilnað- ir verða æ algengari og sumir virð- ast gifta sig upp á grín. Þessar stjörnur hafa ekki látið nægja að gifta sig einu sinni á ævinni. Þeim virðist hafa gengið heldur illa að finna sína einu sönnu ást. En með- al þessarra aðlila má nefna: Billy Bob Thornton, Kenny Rogers, Ric- hard Pryor, Dennis Hooper, Geor- ge Foreman, Rita Heyworth, Jos- ephine Baker og Tony Curtis. Meðal þeirra sem hafa gift sig fjórum sinnum á ævinni eru með- al annarra, James Brown, Ernest Hemingway, Liza Minelli og Frank Sinatra. Þess má geta að Marilyn Monroe gifti sig þrisvar sinnum en Michael Jackson og Sean Penn hafa verið kvæntir tvisvar. Ekki nóg a› gifta sig einu sinni ÞAÐ VAR LÍF OG FJÖR Á ÆGISÍÐUNNI Þar var leikskólabörnum boðið að smakka „uji“-graut frá Afríku. MARILYN MONROE Entist illa í hjónaböndum og giftist þrisvar. MICHAEL JACKSON Er tvífráskilinn eins og staðan er hjá honum í dag.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.