Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.09.2005, Qupperneq 80

Fréttablaðið - 10.09.2005, Qupperneq 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 Blástu nýju lífi í baðherbergið 490,- Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 20:00 | www.IKEA.is Breyttur afgreiðslutími 50 02 .V .B s met sy S AEKI re tn I © 290,- 490,- 990,- 990,- KATTUDDEN snyrtitaska 2 stk. 890,- FRÄCK ryðfrítt stál spegill 50x100 sm THISTED MÖRK handklæði 180x180 sm THISTED MÖRK sturtuhengi RISTEN box 4 stk. Ø65 sm THISTED MÖRK baðmotta 590,-33x23x31 sm LETTEN kollur 150,-MOLGER sápudiskur 1.490,-67x87 sm MOLGER handklæðastandur VIREN ýmsir litir klósettbursti 95,- 490,- Kryddbakaður lax með graslaukssósu, kartöflum og grænmeti 990,- SKARVEN körfur 2 stk. Sammála Alveg er ég hjartanlega sammálaPáli Magnússyni útvarpsstjóra um það að Ríkisútvarpið eigi ekki að vera að skakklappast í því að keppa við einkareknar stöðvar um auglýsingar og sýningarrétt á rándýrum erlend- um afþreyingarþáttum og að Ríkis- útvarpið eigi frekar að einbeita sér að því að efla sérstöðu sína, líkt og BBC gerir í Bretlandi með góðum árangri. Þar keppa einkareknu stöðvarnar um auglýsingatekjurnar og BBC situr hjá eins og yfirveguð móðir og býður upp á vandað og gott sjónvarps- og út- varpsefni á vel skilgreindum og rót- grónum forsendum í sátt við land og þjóð með föstum fjárframlögum frá samfélaginu. MEÐ þessu móti myndu einkareknu stöðvarnar fá meira pláss til að dafna og fjölbreytnin myndi aukast, sem er gott. RÚV yrði loksins eitthvað spes og sérstakt, eins og Rás 1 er núna, og einkareknu stöðvarnar yrðu fleiri og sterkari. ÞAÐ held ég. Að maður skuli loksins vera svona hjartanlega sammála einhverjum sem talar á opinberum vettvangi er annars dálítið merkileg tilfinning á þessum síðustu og verstu. Það gerist nefnilega ekki oft. Eigin- lega rak mig í rogastans, gapti og tafsaði þegar ég heyrði Pál lýsa þess- ari skoðun sinni, nýráðinn í stól út- varpsstjóra. Ég var eiginlega búin að afskrifa það að ég myndi nokkurn tímann geta verið svona sammála opinberum erindreka. VANALEGA tala menn nefnilega út og suður, segja að þetta sé vissulega rétt en að gæta beri að hinu og að jú, jú, auðvitað verði að skoða það gaum- gæfilega hvort ekki beri að kanna alla kosti málsins og taka ákvörðun á grundvelli þeirrar víðtæku sáttar sem skapa verði um málið á síðari stigum efnisumfjöllunar, en auðvitað megi þó segja að með ákveðnum hætti sé betra að rasa ekki að neinu sem síðar geti komið sér verr fyrir þá aðila sem helst eiga verulegra hagsmuna að gæta í þessu máli, sem vissulega er flókið og þarfnast nánari skoðunar. SJÁIÐ til dæmis bara flugvallarmál- ið. Það er orðið þvílíkur pólitískur tungubrjótur að maður missir þráð- inn á innan við 30 sekúndum þegar einhver fulltrúi fólksins byrjar að tjá sig um það. Jú, Löngusker eru athygl- isverður kostur, sagði síðasti ræðu- maður efnislega, ef ég skildi hann rétt, en bætti þó við: En mætti þá ekki líka hafa flugvöllinn á Álftanesi? LÖNGUSKER, Álftanes. „Whatís it gonna be boy?“ Það er dæmigert fyrir umræðuna að um leið og glittir í mögulega skoðun stjórnmálamanns eða opinbers erindreka passar sá hinn sami sig iðulega á því að skjóta nú samt inn nógu mörgum öðrum mögu- leikum svo ekki megi saka hann um það að hafa myndað sér skoðun á mál- inu. Skoðun er áhætta. Gæti leitt til minna fylgis. Betra að vera óviss með breitt fylgi en sannfærður með lítið fylgi. En þá er auðvitað hvorki hægt að vera sammála né ósammála við- komandi. Það liggur í augum uppi. Sem er galli. Skál fyrir Páli. BAKÞANKAR GUÐMUNDAR STEINGRÍMSSONAR Ískaldur Léttur öllari ROYAL Nýr konunglegur!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.