Tíminn - 30.11.1975, Blaðsíða 3

Tíminn - 30.11.1975, Blaðsíða 3
Sunnudagur 30. nóvember 1975. TÍMINN 3 Jón Helgason, ritstjóri. Steinar í brauðinu — ný bók eftir Jón Helgason HJA Skuggsjá er nú komin lit ný bók eftir Jón Helgason ritstjóra og nefnist hún Steinar i brauðinu. Jón Helgason er fyrir löngu þjóð- kunnur fyrir frásagnarlist sina, fagurt mál og snjallan stfl. Allt nýtur þetta sin vel i þessum stór- skemmtilegu sögum hans. Þessi bók er engin undantekn- ing, hún er leikur að máli og lifs- myndum, mikilúðlegur skáld- skapur, sem vekja mun verð- skuldaða athygli allra sem fögrum bókmenntum unna. Fyrri smásagnasafn Jóns, Maðkur i mysunni, hlaut óvenjulegar og sérstaklega góðar viðtökur, er það kom út fyrir fimm árum, og seldist upp á örstuttum tima Þessar sögur, sem hér birtast ! hinni nýju bók, Steinar brauðinu, standa hinum fyrri á engan hátt að baki, þær eru svc vel sagðar, að til tiðinda mur verða talið. Veltan eykst hjá Dráttarvélum hf. HORFUR ERU á, að heildarvelta Dráttarvéla hf. verði hartnær helmingi hærri i ár en á sl. ári. Þá var veltan 313,1 millj. kr., en útlit er fyrir um 600 millj. kr. veltu á yfirstandandi ári. Fyrstu niu mánuði ársins var lagersala fyrirtækisins með sölu- skatti 345,6 millj. kr., en 252,5 millj. sama timabil i fyrra, og hafði þannig aukizt um 37%. Sala gegn umboðslaunum var á fob- verði 127,0 millj., en var 23,4 millj. i fyrra, og hefur hún þannig meir en fimmfaldazt. Þess ber þó að geta, að umboðssalan saman- stendur nær eingöngu af vélbún- aði til mjólkurbúa. Samanlögð sala Dráttarvéla fyrstu niu mán- uðina varð þvi 472,6 millj. á móti 275.9 millj. sama tima 1974, sem er 71% aukning. & commodore VASATOLVUR Verð fró kr. 3.99( ) P ÞÓRf SÍMI 815QO-ÁRIVIÚLA11 / Brunamdlastjóri: Brunavörnum í íbúðarhús- um hér á landi mjög úfútt Gsal-Reykjavik — Svo virðist sem brunavörnum i Ibúðarhúsum sé mjög vfða áfátt hér á landi. A islandi eru ekki til neinar reglur um skoðanaskyldu opinberra aðila varðandi brunavarnir i al- mennu ibúðarhúsnæði, og þess eru alltof fá dæmi, að ieigjendur ibúða og/eða einstaklings- herbergja leiti til eldvarnaeftir- lits eða brunamálastofnunar og óski eftir þvi að könnun verði gerð á þvi, hvortbrunavörnum i þeirra vistarverum sé á einhvern hátt ábótavant. Svo sem kunnugt er, hafa margirhúseigendur látið innrétta geymslur og önnur smærri herbergi i þvi augnamiði að leigja siðan út. Að sögn Bárðar Daniels- sonar brunamálastjóra ber að til- kynna allar slikar breytingar til byggingafulltrúa, samkvæmt byggingarsamþykkt. Hins vegar liggur ljóst fyrir, að slikt er ekki gert i öllum tilvikum. — 1 mörgum tilfellum hefur ef- laust fengizt leyfi fyrir slikum breytingum, en ég hygg, að mjög viða séu slikar breytingar gerðar án þess að spyrja kóng eða prest, sagði Bárður. — Það er mjög æskilegt, að það komi fram i um- ræðum um þessi mál, að fólk sem býr i húsnæði, sem það telur ekki uppfylla öryggiskröfur I sam- bandi við eldhættu — hvort sem það eru fjölskyldur eða einstakl- ingar — hafi samband við eld- varnaeftirlit Reykjavikur eða Brunamálastofnun rikisins. Bárður sagði, að það væri engin skoðanaskylda hér varðandi brunavarnir i almennu ibúðar- húsnæði. Hinsvegar væri sú þjón- usta veitt, ef óskað væri eftir skoðun eða umsögn á sliku hús- næði. — Það er alltof litið um það, að fólk leiti til þessara stofnana og óski eftir skoðun, sagði Bárður. Það kemur þó fyrir, að við erum beðnir að lita á ibúðarhúsnæði, en þess eru þvi miður alltof fá dæmi. Bárður sagði, að oft hefðu þeir athugasemdir fram að færa varð- andi rafmagnslagnir, og eins bentu þeir ibúum á veggklæðn- ingar, væru þær úr eldfimum efn- um. — Við reynum eftir mætti að fá fólk til að gera þær úrbætur, sem við teljum nauðsynlegar, sagði Bárður. 1 byggingarsamþykktum i Noregi og Danmörku eru ákvæði um, að séu fleiri en fimm svefn- herbergi á sömu hæð, skuli vera tveir útgangar. — Þetta er ekki komið i gildi hér á landi ennþá, sagði Bárður. Aftur á móti gildir 29. gr. laga um brunavarnir og brunamál, en þar segir, að stöðva megi framkvæmdir, innsigla eða gera aðrar viðhlitandi ráðstafan- ir, ef um almannahættu er að ræða. En hvernig ber að skil- greina orðið almannahætta? Ég lit svo á, sagði Bárður, að ef hætta er á að 10 manns brenni inni, sé um almannahættu að ræða. Hins vegar liggur ekki fyrir nein viðhlitandi skilgreining á þessu orði, sagði Bárður. Varðandi tvo útganga sagði brunamálastjóri, að annar þeirra SJ—lleykja vik — Undanfarna daga hafa vélar annars áfanga Mjólkárvirkjunar verið reyndar, og hefur það gengið að óskum. Að sögn Valgarðs Thoroddsens raf- magnsveitustjóra er gert ráð fyrir að nýja virkjunin verði farin mætti vera um svalir eða jafnvel glugga, þó ekki þakglugga. — Fólk er afskaplega and- varalaust gagnvart eldhættu, sagði Bárður. Ef maður segir ein- hverjum að hann skuli bæta úr einhverju i sambandi við öryggis- atriði hvað snertir brunavarnir, þá eru viðbrögðin svipuð þvi, að sagt væri við stálhraustan mann, sem aldrei hefði kennt sér meins, að hann þyrfti að fara i læknis- rannsókn, sagði Bárður Daniels- son að lokum. að framleiða rafmagn inn á Vest- fjarðakerfið i byrjun næstu viku. Annar áfangi Mjóikárvirkjunar hefur 5.700 kw afkastagetu, en virkjunin, sem fyrir er, fram- ieiðir 2,300 kw. Fyrirtæki! Keramik frá Glit er verðug gjöf til starfsfólks yðar. UJÍ^J GLIT HF 'j* HÖFÐABAKKA9 REYKJAVlK listrœn gjöf VIÐ ÖLL TÆKIFÆRI Annar áfangi AAjólkárvirkjunar (0) PIOMEEn CT-3131A STEREO CASSETTE DECK C-4500 COMPACT STEREO PIOINieER Kasettu segulbandstæki. Leit að kasettutækjum er erfið, úrvalið misjafnt. Við bjóðum CT 3131 kasettutæki með: Tónsvið 63HZ — 12 KHZ + 3db (CHROM) Hraðanákvæmni 0,19% Magnari og plötuspilari Með innbyggðu útvarpi Með hátölurum 86.500 19.500 25.800 VERÐ AÐEINS KR. 63.300 ADEINS: 131.800

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.