Tíminn - 30.11.1975, Side 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 30. nóvember 1975.
Ónvinsæll hundur
Ástralska villihundinum
„Dingo”, hefur næstum
verið útrýmt af ótta við
að hann leggist á sauðfé
Þýzki ljósmyndarinn Pete Dine
undirbjó leiðangur sinn i niu
mánuði. Þá flaug hann til Astra-
llu og lagðist i leyni. Eftir 249
klukkutima hljóp hundur fyrir
myndavélina. Dine smellti af og
fór aftur heim. — Með stórfrétt:
Fyrstu myndirnar, af Dingo, sem
er á kanínuveiðum.
1 allri álfunni er sú spurning á
döfinni árum saman, hvort
Dingo-inn veiði kaninur eða ekki.
Astralska rikisstjórnin setur ár-
lega einn og hálfan milljarð Isl.
kr. til höfuðs villihundunum og
50.000 eru drepnir árlega.
Dingo-inn er nefnilega hatað-
asta dýr álfunnar. En það hatur
byggist aðallega á þekkingar-
leysi. 1 þúsundir ára létu frum-
byfiEÍar Astraliu þessi brúngulu
dýr i friði, enda þekktu þeir þau
vel. Hinir hvitu stórbændur og
sauðfjárræktendur halda hins-,
vegar að Dingo-inn sé blóðþyrstur
og ráðist á hjarðirnar á nóttunni
og tæti sundur i æði „30 kindur
eða meira”. Raunverulega hafa
flestir bændurnir aldrei séð lif-
andi Dingó, þvi að þessir
bannsettu hundar lifa mjög mikið
út af fyrir sig.
Þangað til hviti maðurinn kom
til Astraliu, lifðu Dingo-arnir,
sem eru félagsverur eins og flest-
ir hundar, i flokkum 10 til 15 i
einu. Þeir gátu af sér fjóra til
fimm hvolpa á ári og skorti aldrei
fæðu. Þeir veiddu aðallega rottur
mýs og kengúrur, sem voru
varnarlausar gegn æfðum Dingo
veiðihóp.
Þegar kýr og kindur voru flutt-
ar inn frá Evrópu var úti um hið
friðsama hundalif. Nýju bænd-
urnir frá gamla. heiminum byrj-
uðu á þvi að skjóta niður
kengúrurnar eins og hráviði.
Þessi skringilegu hoppandi poka-
dýr éta nefnilega ósköpin öll af
grasi. Ein kengúra gleypir i sig
gras á við tiu kindur á degi hverj-
um.
Eftir að bændurnir höfðu skotið
niður flest allar. kengúrurnar
breyttu margir Dingo-ar um rétt
á matseðlinum og gæddu sér nú
oft á kind. Bændurnir dæmdu þá
þegar I stað höfuðóvin þjóðarinn-
ar og lömdu, stungu og skutu eins
marga þeirra i hel og þeir gátu.
En hinir slyngu hundar sömdu sig
fljótt að aðstæðunum, urðu alltaf
varkárari og létu að lokum varla
sjá sig að degi til.
Fyrir þessa hundeltu ferfætl-
inga var fæðuskorturinn aftur á
móti alvarlegri. Kengúrurnar sá-
ust varla og svo hugaðir
Dingo-ar, að þeir réðust á
fjárhjarðirnar, voru undantekn-
ing. Venjulegur Dingo varð að
freista tilverunnar með þvi að lifa
á músum, bjöllum og rottum.
Björg hinna hungruðu hunda
kom á öldinni sem leið, en það
voru innfluttar kaninur frá
Evrópu. 1 hinu þægilega loftslagi
Astraliu, hinum lausa jarðvegi og
án þess að hafa of marga óvini frá
náttúrunnar hendi, timguðust
kaninurnar heil reiðinnar ósköp.
Bændunum til skelfingar grófu
þær sig óstöðvandi gegnum alla
álfuna óvelkomnar fyrir alla
nema Dingo-ana, sem áttu hinum
gómsætu innflytjendum iif sitt að
launa.
Kaninurnar eru orðnar plága i
Astraliu og valda ómetanlegu
tjóni. Búfénaðurinn drepst úr
hungri á beitarlöndunum, af þvi
að þessi laglegu nagdýr éta fyrst
grasið frá honum, siðan naga þau
ræturnar i burtu og skilja að lok-
um eftir nakinn svörðinn, en hann
er svo sundurgrafinn, að fjöldinn
allur af kúm og kindum fótbrotna.
Ástralíumenn eltast eftir sem
áður við kaninuætuna Dingo.
Bændur leggja gildrur, henda
kjötstykkjum eitruðum með
stvychin úr flugvélum og fyrir
hvern dauðan hund eru veitt
verðlaun sem nema milli fjögur
og átta hundruð krónum.
100 ár liðu þar til farið var aö
draga tilgang útrýmingarinnar i
efa. 1965 fól rikisstjórnin
hegðunarsérfræðingnum Laurie
Corbettað rannsaka nákvæmlega
til að byrja með lifnaðarhætti
dýranna. Corbett, sem er 41 árs
gamall rannsakaði Dingo-ana i
tiu ár, i eyðimörkinni og i
rannsóknastofnun sinni i Alice
Springs. Hann komst að þeirri
niðurstöðu að Ástraliumenn yrðu
að breyta hugsunarhætti sínum.
Þeir hundar sem ráðast á búfjár-
hjarðir, eru nær eingöngu kyn-
blendingar, sem hafa heimilis-
hundablóð I æðum sinum.
Hreinræktaðir Dingo-ar sem
aldrei hafa komizt I snertingu við
Rökkuhunda úr þorpunum, yfir-
gefa veiðisvæði sin i eyðimörkinni
I hæsta lagi um hásumartimann,
þegar fljótin eru uppþornuð. Þá
ferst mikið af búsmala úr þorsta
og hinn varkári Dingo tekur þá
hræin fram yfir hjarðfénaðinn,
sem er vaktaður.
A venjulegum tlmum hinsvegar
nærast villihundarnir nær ein-
göngu á kaninum. Þeir eru sem
sagt bezti liðsmaður bændanna i
baráttunni við kaninuflóðið. Til
þess að sannfæra Ástraliubúa
hefur Corbett legið fyrir kaninu-
dræpunni til þess að taka myndir
af henni við verknaðinn. Mynd-
irnar eru fyrir hendi. Bændurnir
þurfa aðeins að sannfæra sig.
(ÞýttMM)
DENNI
DÆMALAUSI
Ég var svolitið lengi á leiðinni
vegna þess að aumingja litla
skjaldbakan elti mig heim.