Tíminn - 30.11.1975, Blaðsíða 11

Tíminn - 30.11.1975, Blaðsíða 11
Sunnudagur 30. nóvember 1975. TÍMINN n NÝIR, GAMLIR BÍLAR GLÆSILEGUR: LAFER MP. Hina fallegu eftirlikingu af MG TF er hægt að kaupa tilbúna. Með 60 ha. vél kostar HREINRÆKTAÐUR: SBARRO BMW\328. Eins fal- legur og draumasportsbill. Þýzkalands á árunum 1930-’40. Þessi næstum nákvæma eftir- liking hefur undir yfirbygg- ingunni, sem er úr gerviefni MBW vélar af stærðunum 1600, 1800 eða 2000 rúmsm. Verðið: 1,6 milljón, og meira. 4 SKEMMTILEGUR: BUGATTI. 1927 var þessi Bugatti draumur allra sport- legra hcfðarmanna við stýrið. Nú er hægt að smiða þennan rennilega, glæsilega bil sjálf- ur. i settinu er allt, frá yfir- byggingunni úr trefjaplasti til hins krómaða Bugatti vatns- kassa. Það vantar ekkert nema VW vélina, sem má vera 1,6 litrar eða 50 hestöfl. Þetta passar á VW grind með gömlum framöxli, sem kemur með. Settið kostar um 300.000.-kr. og reikna má með 130 vinnustundum til að setja það saman. FERSKT LOFT: MAPLEX BUGGY. Sniðugur föndurbili l'yrir alla, sem vilja láta vind- inn ieika um sig eftir föndrið. Scttið cr sett á stytta VW grind, leyfðar eru vélar af 1600 rúmsm. stærð, sem hafa 50 hö. Verð frá 230 þús. i SÉRFLOKKI: PANTHER V12, Næstum nákvæm eftirliking af Jagúarnum, sem smiðaður var fyrir strið, er þessi brezki Panther. A akstri kemur harka og hraði I spilið. Með 12 strokka Jagúar-vél er liægt að aka á 220 km hraða á klst. Þessi opni, tveggja sæta bill kostar um, 6,5 milljónir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.