Tíminn - 30.11.1975, Side 31
Sunnudagur 30. nóvember 1975.
TÍMINN
31
GUNNAR ÞóRÐARSON...meö
góöa sólóplötu
Roger Daltrey/Rick Wakeman •
Lisztomania.
SP-4546-A&M/F ACO.
Það er ég viss um, að ef
tónskáldið Liszt hefur heyrt
þessa plötu, þar sem hann
dvelur núna, hefur hann reynt
að snúa sér við nokkrum sinn-
um og látið sem hann heyröi
ekki hvað verið væri að gera við
tónlist hans. En siöan liklega
gengið aftur i næsta apóteki og
náð sér i eyrnatappa. Svo
hroðalega er hér að verki verið.
Rick Wakeman hefur tekizt að
þurrka út allan sjarma, sem er
yfir tónlist Franz Liszt. Búið er
að klina texta við meirihluta
laganna, og eru þeir svo
væmnir, að ekki tekur nokkru
tali. Hins vegar hef ég aldrei
orðið var við væmni I
upprunalegri útgáfu verkanna.
Þarna er t.d. hinu fallega
Liebestraume nauðgað á hinn
hroðalegasta hátt, og það ekki
bara einu sinni, heldur tvisvar.
Þar er og hið stórkostlega
Funerailles, sem Liszt samdi
áriö 1849 er hann haföi misst
fjóra vini sina með stuttu
millibili, þ.á.m. Chopin. Þetta
verk er svo gjörsamlega eyöi-
lagt, aö mann langar til að
öskra af reiði. Ein Ungversk
rapsódia er og firrt öllum sinum
slavnesku áhrifum. Svona gæti
HUÓAAPLÖTUDOMAR
NÚ-TÍMANS
★ ★ ★ ★
Gunnar Þórðarson—Gunnar
Þórðarson.
Hljómar útgáfa 1975—014.
Gunnar Þórðarson hefur verið
einn aösópsmesti poppari sem
við höfum átt. Hann er meö
beztu gitarleikurum okkar og
afkastamikill lagasmiður, og
hafa mörg laga hans náð mikl-
um vinsældum gegnum árin.
Hann var i fynstu alvöru bitla-
hljómsveit okkar, Hljómum,
sem gerði allt vitlaust hérna
fyrir um það bil 11-12 árum og
það Hljómaæði, sem greip um
sig hér, var með endemum. Nú
eru Hljómar löngu liðnir og
Gunnar búinn aö afla sér mik-
illar reynslu og þekkingar gegn-
um árin með ýmsum mönnum
og hljómsveitum. Það var þvi
mikið gleðiefni, er Gunnar
sigldi til Englands til að gera
loksins sina fyrstu sólóplötu, en
það er hlutur, sem hann hefði
átt að vera búinn aö gera fyrir
löngu.
.Platan er nú loksins komin út
og ber einfaldlega nafn hans.
Hann leikur á öll hljóðfærin
sjálfur, fyrir utan trommur og
fiðlu. Engilbert Jensen og
Rúnar Júliusson aðstoða við
söng i þremur lögum, að öðru
leyti sér Gunnar um allan söng,
og að sjálfsögðu er allt efni
frumsamið. Ekki er hægt að
segja aðplatan sé frumleg. Tón-
listin sem hann flytur flokkast
undir hefðbundið vesturstrand-
arrokk frá Los Angeles, með
örlitlu Hljómaivafi þó.
ég talið upp allt sem á plötunni
er, hvort sem það er eftir Liszt
eða Wagner, og útkoman yrði
hin hroðalegast misþyrming.
Ég vil þvi eindregið benda öll-
um þeim, sem haft hafa hug á
að fá sér plötu þessa á, að hugsa
ekki frekar út i það.
Ef þessi plata er einhvers
virði, þá er hún örugglega ekki
meira en einskis viröi.
Hlið I
Manitoba:
Þrælgott lag, sem vinnur á við
hverja hlustun. Gunnar leikur
t.d. á pianó, og ekki heyrist mér
annað en hann sé að pikka á
banjó eða mandólin i bakgrunn.
Funky Lady:
Mest „funky” lag plötunnar,
gott i diskót^k. Mjög góður og
öruggur gitarleikur.
That’s Just The Way It Is:
Mikill Hljómabragur er á
þessu lagi, að undanskildum
Engilbert og Rúnari, sem radda
með, eftir uppskrift frá Beach
Boys.
When Summer Comes Along:
Létt og lipurt lag, þar sem
Gunnar syngur af stakri prýði
og tekur frábært sóló á gitar.
Rainbovv:
Ekki er ég alveg sáttur við
þetta lag. Rólegt lag með allt of
miklu undirspili, sem minnir á
köflum á gauragang.
Hlið II
When God Steps Down:
Hreinræktaður vesturstrand-
arrokkari og bezta lag plötunn-
ar, samkvæmt minum smekk.
Berti og Rúnar aöstoða við
söng, og Gunnar sýnir mikil til-
þrif og smekklegheit i öllum
gitarleik.
Magic Moments:
Ágætis lag, nema hvað áhrif
Dan Fogelbergs eru full áber-
andi i flutningi.
Flyin’ On The Wings:
Létt og melódiskt lag i dálitl-
um Beach Boys stil, sérstaklega
röddunin.
Reykjavik:
Öður til Reykjavikur. Þetta
lag er svo til eingöngu spilað,
nema hvað orðið Reykjavik
kemur nokkrum sinnum fyrir.
Fyrri hluti lagsins er rólegur,
þar sem Gunnar tekur fram
flautuna. í siðari hlutanum fær-
ist lif i tuskurnar i formi
smávegis hávaða, sem gæti ver-
ið lýsing á miðbæjarhávaðan-
um.
Ef á heildina er litið, er hér
um góða plötu aö ræöa. Aö visu
fer ekki á milli mála, hvers-
konar tónlist Gunnar hlustar á,
en það er i lagi, þvi enginn getur
ásakað hann fyrir að spila þá
tónlist, sem honum þykir
skemmtilegust. Allur hljóð-
færaleikur hans er mjög góður,
sérstaklega gitarleikurinn.
Hann er laus við öll læti og átök,
er léttur, lipur og tæknilegur.
Það eitt að leika á svo til öll
hljóðfærin sjálfur er átak út af
fyrir sig. 1 söngnum gerir hann
góða hluti, — ekkert öskur,
-heldur afslappaður og vandaður
söngur. Gunnar Þórðarson sýn-
ir og sannar á þessari plötu, að
hann er verðugur þess að vera
fyrsti islenzki popparinn, sem
fær listamannalaun. G.G
AAest seldu plöturnar
Vikan 21. • 27. nóvember
RICK WAKEMAN.-.bregzt boga
listin
Walker
brothers
byrja á ný
ÞAD SEM HVAD mest hefur
koinið á óvart i poppheiminum i
ár, er endurstofnun hljómsveit-
arinnar WALKER BROTIIERS,
on hljómsveitin hefur nú sent
frá sér LP-plötuna, No Regrets.
Eins og þeir Nú-timalesendur
vita, scm nokkuð eru komnir til
ára sinna, voru W'alker Broth-
ors mjög vinsælir um miðjan
siðasta áratug, en árið 1967
liætti hljómsveitin — eða fyrir
átta árum!
Hljómsveitin Walker Broth-
ers er alveg eins skipuð nú og
áður — Scott Walker, John
Maus og Gary Leeds. Eftir að
hljómsveitin hætti 1967 komu út
sólóplötur frá þeim öllum, en
vöktu litla athygli. Það var þó
helzt að Scott Walker héldi hluta
vinsælda sinna, en hinir
gleymdust svo gott sem. — Það
verður áreiðanlega fróðlegt að
heyra i þeim félögum aftur eftir
þessa löngu þögn.
Stórar plötur:
1. Spilverk þjóðanna — Spilverk
þjóðanna
2. Rock of The Westies — Elton John „
3. Come Taste The Band — Deep
Purple
4. American Graffiti — Ýmsir
5. One Of These Nights — Eagles____
6. O'Lucky AAan — Alan Price
7. Bætiflákar— Þokkabót
8. Júdas no. 1 — Júdas
9. Gylfi Ægisson — Gylfi Ægisson
10. Bongo Fury — Zappa/Beefheart
Litlar plötur:
1. Black Superman — Johnny Wakelin
2. Paloma Blanca — Jonathan King
3. Love Will Keep Us Together— Cap-
tain and Tenille
4. Hotel Garbage Can — Eik
5. Þrjú tonn af sandi — Haukar
/
Faco hljómdeild
Laugavegi 89
simi 13008
SENDUM I PÓSTKRÖFU
Faco hljómdeild
Hafnarstræti 17
sími 13303.