Tíminn - 14.12.1975, Blaðsíða 6
6
TÍMINN
Sunnudagur 14. desember 1975.
Ingólfur Davíðsson: 102
Byggt og
búið
í gamla
daga
Lltum á húsakynni fjögurra
„aldamótakynslóðar-skálda”
við Eyjafjörð. Fyrst skal fræg-
an telja, og jafnframt hinn
elzta, þjóðskáldið sr. Matthías
Jochumsson. Hann er fæddur i
torfbæ í Skógum i Þorskafirði
árið 1835, en andaðist á Akur-
eyri 1920. Matthias flutti til
Akureyrar isavorið 1887 og sett-
ist að i timburhúsi inni i
„Fjöru”, nú Aðalstræti 50. Sjá
mynd. Húsið mun vera reist um
1840 og var elzta prentsmiðja
Akureyrar i þvi um skeið.
Matthias lét strax gera útskot
við ibúðina og bjó þarna með
stórri fjölskyldu sinni i 17 ár.
Kannast einhver við hrörlegu
bygginguna bak við fbúðarhús-
ið? Siðar bjó Matthias i timbur-
húsinu Sigurhæðum úti á
brekku, sem alkunnugt er. Þau
eru þvi tvö „Matthiasarhúsin” á
Akureyri.
Rithöfundurinn heimsfrægi
JónSveinsson (Nonni) fæddist á
Möðruvöllum i Hörgárdal 1857,
en fluttist ungur til Akureyrar i
litiö tjargað timburhús inni i
„Fjöru” og undi þar æskuár sin,
unz hann var sendur utan til
náms. A seinni árum hefur verið
byggður skúr við húsið og gert
að minjasafni — Nonnahús.
Nonni andaöist erlendis á
striðsárunum. Ekki mun trjá-
garður hafa prýtt umhverfið á
uppvaxtarárum hans og húsin
til hægri eru varla mjög gömul
nema þá Svalbarðskirkja, sem
sér i gaflinn á. Hún var flutt ut-
an frá Svalbarði og sett þarna
niður fyrir fáum árum.
Hin tvö af gömlu skáldakyn-
slóðinni: Kristin Sigfúsdóttir og
Páll Ardal eru bæði fædd I Eyja-
firði, hann sama árið og Nonni,
en hún 1876 og er þvi yngst
þeirra fjögurra skáldsystkina.
Helgastaðir hafa verið reisuleg-
ur bær, hlaðinn úr grjóti og
torfi, með timburframþiljum og
burstum. Allt er snyrtilegt að
sjá. Gamli bærinn stóð undir
fjallinu, en nýi bærinn —
steinhús — stendur talsvert neð-
ar. Krstin var lengi bóndakona i
Kálfagerði skammt frá, en flutti
siðar til Akureyrar og andaðist
þar 1953. Hún lýsir lifinu eins og
það er i frásögnum sinum og
smásögum. Tengdamamma
o.fl. leikrit hennar vinsæl.
Pál! Árdal settist að á Akur-
eyri og bjó þar til æviloka 1930.
Var kennari, verkstjóri og
skáld. Ýmis ljóð hans hafa
mikið verið sungin og mörgum
hafa leikrit hans skemmt.
Þegar rætt var um þegn-
skylduvinnu kastaði Páll fram
þessari stöku: „Ó, hve margur
yrði sæll og elska myndi landið
heitt, — mætti hann vera i mán-
uð þræll og moka skit fyrir ekki
neitt”. Geri atómskáldin betur!
Þeir Páll og Guðbjörn Björns-
son (timburmeistari og siðar
kaupmaður) reistu timburhús i
„Fjörunni”, Aðalstr. 24 árið
1903. Húsið er tvilyft og bjuggu
þeir á sinni hæðinni hvor, Páll •
allt til dauðadags. Myndin af
húsinu er tekin 1965. Skyldi Páll
hafa gróðurszt reyniviðinn
fagra?
Myndirnaraf Helgastööum og
fyrsta íbúðarhúsi Matthiasar á
Akureyri eru fengnar að láni i
Minjasafni Akureyrar, en hinar
teknar á vegum undirritaðs.
Ekki hefur verið andlaust i
„Fjörunni” á Akureyri, þegar
Matthias, Nonni og Páll Ardal
áttu þar heima.
Aðalstræti 24, Akureyri, hús Páls Árdals skálds
lielgastaðir i Eyjafirði.
Aðalstræti 50 á Akureyri
Sigurhæðir á Akureyri 1966,
A Akureyri 29/7. 1972. Nonnahús t.v„ gafl gömlu Svalbarðakirkju lengst t.h. Húsvaröarhús i miöju