Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 20
Umsjón: nánar á visir.is
Upprisa Þjóðviljans
Margir veltu því fyrir sér hvort Þjóðviljinn sálugi
hefði risið upp geðillur eins Glámur forðum daga,
og borist landslýð óumbeðinn, eftir lesningu leið-
ara Blaðsins þar sem hagnaður bankanna var skil-
greindur í anda sósíalismans. Þar sagði m.a.: „Eftir
situr almenningur sem hefur látið blekkjast af gylli-
boðum um allt of há lán á allt of háum vöxtum –
vöxtum sem líkjast engu sem gengur og gerist í
hinum vestræna heimi.“ Hér er væntanlega ekki
verið að tala um húsnæðisvexti sem
bankarnir áttu sinn þátt í því að lækka
um tuttugu prósent og færðu almenn-
ingi – fasteignaeigendum á öllum aldri
– mikla kjarabót.
Íslenskur aðall
Áfram heldur Blaðið: „Á sama tíma
fitna bankarnir sem aldrei fyrr og
leigja með reglulegu millibili heilu
þoturnar til að sýna bestu við-
skiptavinunum nýjustu afrekin í útlöndum. Jóna
Jónsdóttir, fiskvinnslukona, er því miður ekki í
þessum hópi þrátt fyrir að hún borgi samvisku-
samlega af sínum húsnæðis- og neyslulánum sem
hún verður að taka til að framfleyta sér. Það sama
gildir um Pétur Pálsson bílstjóra. Þetta fólk situr
heima á meðan íslenskur aðall situr kokteillboð
bankanna.“ Stéttaskiptingin er enn í fullu gildi.
Því má þó ekki gleyma að tekjur bankanna aukast
fyrst og fremst á „kostnað“ útlendinga. Meirihluti
rekstrartekna bankanna kemur innan skamms er-
lendis frá. KB banki tekur mestan hluta sinna
vaxtatekna þaðan. Hver hefði trúað því þegar
einkavæðing bankakerfisins hófst haustið
1997? Og hver veit nema að Internasionall-
inn fari að berast aftur um lönd og sæ þar
sem sungið verður um íslensku
víkingana sem beita okur-
vöxtum í stað vopna.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.657 Fjöldi viðskipta: 325
Velta: 1.722 milljónir
-0,23%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Greiningardeild Landsbankans
gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs
hækki um 0,2 prósent milli mánaða
í nóvember. Slæmt uppgjör Haga
gæti hugsanlega aukið á hækkanir á
matvælum.
Á vaxtaákvörðunarfundi evrópska
Seðlabankans (ECB) ákvað stjórn
bankans að halda stýrivöxtum sínum
óbreyttum í 2,0 prósentum. Hafa
stýrivextir því verið óbreyttir í nærri
tvö og hálft ár eða síðan í júní 2003.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
fjármálaráðuneytisins dróst inn-
flutningur án skipa og flugvéla sam-
an í október um ríflega 20 prósent
frá fyrri mánuði og nam um 21,5
milljörðum króna.
20 5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR
Peningaskápurinn…
Actavis 43,40 -0,20% ...
Bakkavör 44,70 +0,50% ... FL Group 14,10 +0,40% ... Flaga 3,68
-5,60% ... HB Grandi 9,35 +0,00% ... Íslandsbanki 15,20 -0,70%
... Jarðboranir 22,30 +1,40% ... KB banki 590,00 -0,30% ... Kög-
un 54,30 +0,90% ... Landsbankinn 22,70 -0,90% ... Marel 63,80
-1,10% ... SÍF 4,28 +1,70% ... Straumur-Burðarás 13,95 +0,00%
... Össur 93,00 +2,80%
Og fjarskipti +3,15%
Össur +2,76%
SÍF +1,66%
Flaga -5,64%
Atorka Group -1,75%
Marel -1,09%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Rekstrarumhverfi
Marels hefur aldrei
veri› erfi›ara.
Stjórnendur Marels eru þokkalega
sáttir við afkomu félagsins á þriðja
ársfjórðungi miðað við þær aðstæð-
ur sem fyrirtækið býr við. „Við
verðum að skila viðunandi afkomu í
þessu umhverfi,“ segir forstjórinn
Hörður Arnarson. „Þetta er erfið-
asta rekstarumhverfi sem við höf-
um starfað í,“ bætir hann við og vís-
ar þar til mikillar styrkingar krón-
unnar á árinu.
Hagnaður Marels var um 380
milljónir króna fyrstu níu mánuði
ársins sem var undir væntingum
markaðarins.
Hörður er mjög sáttur við sterk-
an innri vöxt Marels en sala jókst
um 13 prósent á milli ára. Hann
áætlar að markaður með tækjabún-
að fyrir matvælaiðnaðinn vaxi um
5-6 prósent á ári en helsti sam-
keppnisaðili Marels, danska fyrir-
tækið Scan Vægt, vex um eitt pró-
sent.
Stjórnendur Marels eru að kanna
þann möguleika að stækka fram-
leiðsluna og koma Ísland, Danmörk
og Slóvakía þar til greina. Ákvörðun
um slíkt mun liggja fyrir næstu ára-
mót. Marel hefur leyfi til að stækka
höfuðstöðvar sínar í Garðabæ um
nokkur þúsund fermetra.
Þrátt fyrir stífar hagræðingar-
aðgerðir ætlar félagið ekki að segja
upp starfsfólki hér á landi. Á er-
lendum vígstöðum er mikil áhersla
lögð á að snúa við rekstri Carnitech
sem hefur verið erfiður. Búast
stjórnendur Marels við því að ár-
angur þeirra aðgerða fari að koma
fram á seinni hluta næsta árs. - eþa
Góður vöxtur við
erfiðar aðstæður
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ]
Stjórnendur easyJet vilja
auka umsvif sín utan
evrópska efnahags-
svæ›isins.
Stjórnendur breska lággjaldaflug-
félagsins easyJet ætla að hækka
hámarks eignarhlut sem má vera í
eigu útlendinga. Samþykktir fé-
lagsins kveða á um að aðilar utan
Bretlands megi ekki eiga meira
en 40 prósent í félaginu. Stendur
vilji til að hækka þetta hlutfall í
45 prósent. Þetta kom fram í til-
kynningu til bresku Kauphallar-
innar í gær.
Þar segir jafnframt að hlutur
útlendinga í félaginu var um 40
prósent 31. október síðastliðinn.
Þessi breyting eigi að auka svig-
rúm hluthafa. Í tilkynningu til
Kauphallar Íslands 26. október
kom fram að FL Group á 16,18
prósent í easyJet.
Í tilkynningu frá easyJet
kemur einnig fram að stjórnendur
séu að skoða tækifæri til að auka
umsvif sín utan evrópska efna-
hagssvæðisins. Það yrði gert með
því að selja sérleyfi til erlendra
flugfélaga sem myndu þá fljúga
undir merkjum easyJet sam-
kvæmt ákveðnum skilmálum.
Einnig segir að áðurnefndum
takmörkunum um eignarhald út-
lendinga í félaginu yrði haldið til
streitu í öðrum löndum þar sem
það er talið nauðsynlegt.
Fl Group hefur verið að bæta
við sig hlutum í easyJet undanfar-
ið. Eru félagið annar stærsti hlut-
hafinn í breska flugfélaginu á eft-
ir aðaleiganda þess, gríska frum-
kvöðlinum Stelios Haji-Iannou,
sem á 16,6 prósent. Hann fer
einnig með hlut fjölskyldu sinnar
sem á samanlagt um 41 prósent.
EasyJet er næststærsta
lággjaldaflugfélag Evrópu á eftir
Ryanair.
– bg
Novator, fjárfestingarfélag
Björgólfs Thors Björgólfssonar
stjórnarformanns Straums –
Burðaráss, keypti í gær 4,2 pró-
senta hlut í gríska fjariskipta-
fyrirtækinu Forthnet. Á félagið
nú 26,3 prósent í Forthnet sam-
kvæmt erlendum fjölmiðlum og
er stærsti hluthafinn.
Novator gefur ekki upp kaup-
verðið en grískir fjölmiðlar segja
að félagið hafi keypt 700 þúsund
hluti á um 7,5 milljónir evra. Mið-
að við gengi evrunnar í gær nem-
ur það 537 milljónum króna.
Novator hefur fjárfest í fjar-
skiptafyrirtækjum í Póllandi,
Tékklandi, Búlgaríu og Finn-
landi.
– bg
Dagsbrún hyggst tvö-
falda umsvif sín á 18 til
24 mánu›um.
Eiríkur S. Jóhannsson, forstjóri
Dagsbrúnar, sem hét áður Og fjar-
skipti, segir að fjárfestingargeta
félagsins sé allt að fimmtán millj-
arðar króna. Hluthafar samþykktu
á fimmtudaginn að auka hlutaféð
um 1.200 milljónir króna að nafn-
virði. Eiríkur segir stefnt að því að
tvöfalda umsvif samstæðunnar á
einu og hálfu til tveimur árum.
Þegar stjórnendur Dagsbrúnar
gerðu grein fyrir afkomu félagsins
og framtíðarsýn á fimmtudaginn
sagði Eiríkur að vöxturinn yrði að
stórum hluta erlendis. Dagsbrún
rekur Og Vodafone, Kall í Færeyj-
um og 365 miðla, sem gefur meðal
annars út Fréttablaðið. Aðspurður
hvaða rekstrareiningar myndu
helst vaxa sagði Eiríkur allar.
Horft yrði til svæða í Norður- og
Norðaustur-Evrópu. Árni Pétur
Jónsson, forstjóri Og Vodafone,
sagði sóknarfæri í Færeyjum þar
sem farsímanotkun þar væri ekki
eins almenn og á Íslandi.
Hagnaður Dagsbrúnar fyrstu
níu mánuði ársins var 554 milljónir
króna eftir skatta. Sölutekjur hafa
aukist um 115 prósent. Innri vöxtur
samstæðunnar milli tímabila var
21,3 prósent. Bæði greiningar-
deildir Landsbankans og KB banka
telja uppgjörið í takt við vænting-
ar.
Þórdís J. Sigurðardóttir var
kjörin stjórnarformaður Dags-
brúnar á fyrsta stjórnarfundinum
og tekur við af Skarphéðni Berg
Steinarssyni. Þórdís er eina konan
sem er stjórnarformaður félags
sem er skráð í Kauphöll Íslands.
Auk hennar voru Árni Hauksson,
Davíð Scheving Thorsteinsson,
Magnús Ármann og Vilhjálmur
Þorsteinsson kjörin í stjórn.
Gengi Dagsbrúnar hækkaði um
3,15 prósent í Kauphöllinni í gær.
– bg
EasyJet hyggst auka umsvif sín
FLUGVÉLAR EASYJET Stjórnendur félagsins vilja selja sérleyfi til erlendra flugfélaga sem
vilja fljúga undir merkjum easyJet.
Á fjór›ung í Forthnet
Fjárfestingargetan fimmtán milljar›ar
HÖRÐUR ARNARSON HJÁ MAREL Rekstrarumhverfið er það erfiðasta sem Marel hef-
ur glímt við vegna sterkrar krónu. Þrátt fyrir það er velta félagsins að aukast á milli ára.
Fréttablaðið/GVA
REKSTRARHAGNAÐUR*
EINSTAKRA REKSTRAREININGA
DAGSBRÚNAR
Og Vodafone 850
P/F Kall 16,5
365 miðlar 348
Samstæða 1.215
*Tölur eru í milljónum króna og miðast við fyrstu níu
mánuði ársins 2005 fyrir fjármagnsliði og skatta.
20-21 Viðskipti lesið 4.11.2005 18:56 Page 2