Fréttablaðið - 05.11.2005, Síða 21
LAUGARDAGUR 5. nóvember 2005
Allt þetta
í einum
pakka
DVP-NS360
SONY DVD SPILARI
• Spilar R-1,R-2 (sjónvarp þarf að styðja NTSC)
• Spilar
CD/CDR/CDRW/VCD/SVCD/MP3/JEPG
DVD-R/DVD+R/DVD-RW/DVD+RW
• Dolby Digital DTS
Verð áður
12.950 krónur
HTSS600
SONY HEIMABÍÓ
• Útvarpsmagnari 600W RMS
• S-Master Digital magnari
• Dolby Digital,DTS,Dolby Pro Logic II
• 5 hátalarar + Bassahátalari
Verð áður
49.950 krónur
KLVS32A10
SONY 32"LCD SJÓNVARP
• 32" LCD sjónvarp
• 1366x768 pixel Upplausn
• Contrast 1000:1
• Birta 500 cd/m2
• Borðstandur (hægt að snúa)
• High Definition Ready
Verð áður
219.950 krónur
Skýrari mynd en þú átt að venjast
...og aðeins 1 fjarstýring fyrir öll tækin.
á mánuði* í 12 mán
uði
eða 219.950 krón
ur staðgreitt.
Listaverð 282.850
krónur
Heildarpakkinn!
18.329 kr.
*Miðað við 12 vaxtalausar jafnar greiðslur á Visa eða Mastercard skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist með jöfnum greiðslum yfir samningstímann.
32”
Kaupauki Kaupauki
Hættir
hjá Flögu
„Ég er að taka að mér annað starf
en get ekki sagt strax hvaða starf
það er,“ segir Böðvar Þórisson,
sem lætur af starfi framkvæmda-
stjóra alþjóðasölu og markaðs-
sviðs Medcare Flögu 9. nóvember
næstkomandi. Hann segir þetta
nýja starf á Íslandi. Ekki hefði átt
að flytja hans starf til Bandaríkj-
anna og það sé ekki ástæðan fyrir
því að hann hætti störfum. Hann
hafi bara fengið tilboð sem hann
gat ekki hafnað.
Í fréttatilkynningar til Kaup-
hallar Íslands segir að Böðvar
hafi gegnt lykilhlutverki í upp-
byggingu sölu- og dreifikerfis
Medcare undanfarin sjö ár. Haft
er eftir David Baker, forstjóra fé-
lagsins, að Böðvars verði saknað.
– bg
SPÁ HÆKKUN MATVARA
Matvaran
hækki
Í Vegvísi greiningardeildar
Landsbankans í gær segir að
vegna slæms uppgjörs Haga, eig-
anda einnar stærstu lágvöru-
verslana landsins, geti verðhækk-
anir á matvælum í nóvember
hugsanlega orðið meiri. Í upp-
gjöri félagsins hefði komið fram
að tap félagsins var að mestu rak-
ið til verðstríðs á matvörumark-
aðnum.
Greiningardeildin hækkar
samt ekki spá sína um hækkun
vísitölu neysluverðs í nóvember
um 0,2 prósent þar sem lækkun
eldsneytisverðs vegur upp á móti
hækkun dagvöru. Þeir liðir sem
hækki vísitöluna mest séu, líkt og
síðastliðna mánuði, matar- og
drykkjarliðurinn og húsnæðis-
liðurinn. – bg
Enn minnka
væntingar
Bandaríkjamenn hafa sífellt
minni trú á efnahagslífinu. Þetta
sýnir væntingavísitalan sem birt
var í gær fyrir októbermánuð.
Gildi hennar fór úr 87,5 fyrir sept-
ember í 85 fyrir október. Í sept-
ember féll væntingavísitala
Bandaríkjanna um 18 prósent og
hafði ekki lækkað svo hratt í 15 ár.
Lækkunin nú kemur á óvart en
sérfræðingar höfðu spáð fyrir um
lítillega hækkun í október.
Bandaríska væntingavísitalan
hefur ekki náð svo lágu gildi síðan
í október 2003 þegar hún tók gild-
ið 81,7. Hátt olíuverð og fellibylj-
irnir sem skollið hafa á Bandarík-
in eru helstu ástæður minnkandi
væntinga neytenda að undan-
förnu.
- hhs
20-21 Viðskipti lesið 4.11.2005 18:56 Page 3