Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.11.2005, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 05.11.2005, Qupperneq 24
 5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR24 timamot@frettabladid.is AFMÆLI ANDLÁT Árni Sighvatsson, Dyngjuvegi 17, Reykjavík, lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi mánudaginn 31. október. Gestur Bergmann Magnússon, Laugabraut 21, Akranesi, lést á Landspítala Fossvogi miðvikudag- inn 2. nóvember. JARÐARFARIR 13.00 Ásdís Björnsdóttir, Ögmundarstöðum, Skaga- firði, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju. 13.30 Halldór Rafn Ottósson, Egilsbraut 19, Þorlákshöfn, verður jarðsunginn frá Þorlákskirkju. 13.30 Halldóra S.F. Thorlacius frá Bæjarskerjum verður jarð- sungin frá Hvalsneskirkju. 13.30 Sesselja Benediktsdóttir verður jarðsungin frá Dal- víkurkirkju. 14.00 Friðbjörg Midjord, Fellsási, Breiðdal, verður jarðsungin frá Heydalakirkju. 14.00 Hjálmdís Sigurást Jóns- dóttir, Ytri Höfða, Stykkis- hólmi, verður jarðsungin frá Stykkishólmskirkju. 14.00 Ingibjartur Antonsson, Hlíf II, Ísafirði, verður jarðsung- inn frá Ísafjarðarkirkju. 14.00 Magnea Karlsdóttir, Borg- arhrauni 30, Hveragerði, verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju. 14.00 Steingerður Jóhannsdóttir frá Brekku, Vestmannaeyj- um, verður jarðsungin frá Landakirkju í Vestmanna- eyjum. 14.00 Valdimar Bernódus Ottós- son, Dalbraut 46, Bíldudal, verður jarðsunginn frá Bíldudalskirkju. MERKISATBURÐIR 1848 Fyrsta íslenska fréttablaðið, Þjóðólfur stjórnmála- og fréttablað, hefur göngu sína í Reykjavík. 1913 Lúðvík III verður konungur Bæjaralands. 1930 Sinclair Lewis hlýtur bók- menntaverðlaun Nóbels. 1946 John F. Kennedy er kosinn í embætti forseta Bandaríkj- anna. 1960 Ásgrímssafn er opnað í húsi Ásgríms Jónssonar listmál- ara við Bergstaðastræti. 1993 Fjöldi fólks bíður á Snæ- fellsjökli eftir að geimverur lendi klukkan 21.07. 1996 Skeiðarárhlaup hefst og stendur í þrjá daga. Þetta er mesta hlaup á tuttugustu öld. ROBERT MAXWELL (1923-1991) LÉST ÞENNAN DAG. „Helst af öllu vildi ég að fundin yrði upp leið til að kenna ungum sem öldnum mun- inn á réttu og röngu.“ ROBERT MAXWELL VAR YFIRMAÐUR Í BRESKA HERNUM OG SÍÐAR ÞING- MAÐUR OG BLAÐAÚTGEFANDI. EFTIR LÁT HANS KOM Í LJÓS AÐ HANN HAFÐI DREGIÐ SÉR TÖLUVERT FÉ. Leonard Slye, sem síðar varð þekktur undir nafninu Roy Rogers, fæddist þennan dag árið 1911 í Cincinnati í Ohio. Rogers kom til Hollywood árið 1920 og starfaði þá við ávaxtatínslu. Snemma á fjórða áratugnum gekk hann til liðs við sönghópinn Uncle Tom Murray‘s Hollywood Hillbillies, sem söng fyrst í útvarp árið 1931. Annar sönghópur sem Rogers söng með var fenginn til að leika í ódýrum vestra og upp frá því fékk Rogers æ stærri hlut- verk í bíómyndum. Hann heillaði lýðinn ásamt hesti sínum Trigger og mótleikkonu Dale Evans og varð brátt einn af tíu launahæstu leikurum Hollywood. Þegar eiginkona Rogers lést árið 1946 giftist hann mótleikkonu sinni Dale Evans. Rogers var einnig með vinsæl- an útvarpsþátt, The Roy Rogers Show, sem var breytt í sjónvarps- þátt árið 1951. Hann varð einn auðugasti maður Hollywood og átti fasteignir, nautgripi, hesta, ródeósýningu og veitingastaða- keðju. Roy Rogers lést árið 1998. ÞETTA GERÐIST> 5. NÓVEMBER 1911 Kúrekinn Roy Rogers kemur í heiminn ROY ROGERS Í tilefni af fimm ára afmæli verslunarmiðstöðvarinn- ar Glerártorgs hófst hátíð í gær sem stendur í rúma viku, til 13. nóvember næst- komandi. Boðið verður upp á skemmtiatriði fyrir unga og aldna auk þess sem mörg spennandi afmælistilboð verða í gangi. Báða laugardagana 5. og 12. nóvember verður hátíð- ardagskrá á Glerártorgi og stíga þar fram á svið til að mynda Óskar Pétursson, Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson. Hljóm- sveitin Í fínu formi spilar nokkra tóna, svo og Sixties. Atriði verða sýnd úr kabar- ett Freyvangsleikhússins og boðið verður upp á afmælis- köku svo fátt eitt sé nefnt. Efnt verður til Sing- Star-keppni og krakkar fá að prufukeyra Snowmoto- sleða. Þá verður sett upp sýning með ljósmyndum frá byggingartíma og opnun Glerártorgs. Afmælishátíð Glerártorgs Á FALLEGUM DEGI Mikil hátíðardag- skrá verður á Glerártorgi í dag. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan Edda Andrés- dóttir birtist landsmönnum fyrst á sjónvarpsskjánum fyrir þrjátíu árum. „Þetta eru eins og tveir heimar, það hefur svo mikið breyst,“ segir Edda um muninn á sjónvarpi nú og þá. „Þá var ekkert sjónvarp á fimmtu- dögum, það var ekki sent út í lit og sumarlokanir tíðk- uðust,“ segir Edda, sem var blaðamaður á Vísi sáluga þegar hún tók sitt fyrsta viðtal í mynd. „Ég hafði tekið viðtal við Ólaf Ragnarsson, sem þá var fréttamaður á sjónvarpinu. Þá var í gangi fréttaþáttur sem að mig minnir hét Kast- ljós sem fréttamenn sjón- varps sáu um en kölluðu til liðs við sig fjölmiðlafólk af blöðunum,“ útskýrir Edda en hún var heldur betur til í að spreyta sig þegar Ólafur gaf henni tækifæri á að taka viðtal fyrir þáttinn. Reynd- ar vildi svo illa til að við- talið sem Edda átti að taka bar upp á kvennafrídaginn. Þrátt fyrir að freistingin væri mikil ákvað Edda að sýna konum samstöðu og fékk að taka viðtalið viku síðar. „Ég man að einhvern tíma um miðbikið var við- talið stöðvað, en það var tekið upp, og mér var bent á að það væri betra að brosa ekki svona mikið,“ segir Edda og skellir upp úr. „Það er síðan fyndið að þegar ég byrjaði í útvarpinu í lok áttunda áratugarins í þætti sem hét Í vikulokin hló ég og það þóttu tíðindi og heilmikið mál,“ segir Edda glaðlega en á þessum tíma voru miklir umbrotatímar í útvarpi og beinar útsend- ingar að hefjast. Edda var í viðtali í Kast- ljósi í vikunni til að kynna nýútkomna bók sína um Auði Eir Vilhjálmsdóttur en áðurnefndur Ólafur Ragn- arsson gefur einmitt þá bók út líkt og bók Eddu um Auði Laxness á sínum tíma. Í þættinum var farið stuttlega yfir feril Eddu í sjónvarpi. „Ég var hálf hissa á því að þessu barni skyldi vera hleypt mikið lengra,“ segir hún hlæjandi. „Ég hefði sett spurningarmerki við hana og mesta furða hvað úr þessu hefur ræst,“ segir Edda, sem finnst enn mjög skemmtilegt í sjónvarpinu. „Ég skal alveg viðurkenna það að mér hefur aldrei þótt leiðinlegt,“ segir hún kímin. Edda segir að þrátt fyrir að hún hafi fest rækilega í fréttasætinu útiloki hún ekki að prófa eitthvað annað. „Ég myndi þó fara mjög treg- lega úr þessu fréttasæti,“ segir hún enda ávallt líflegt í beinni útsendingu þar sem allt getur gerst. „Við erum alltaf á tánum,“ segir Edda enda mikið um að vera þessa dagana með tilkomu nýrrar fréttastöðvar. Edda er mikill bókaormur og má segja að bókmenntir séu hennar aðaláhugamál enda eru ávallt um tuttugu bækur á náttborðinu á hverj- um tíma. En ætlar hún að vera á skjánum um ókomna tíð? „Ég veit það ekki,“ segir hún og hlær sínum smitandi hlátri. „Ég hef í það minnsta ekkert hugsað mér til hreyf- ings.“ EDDA ANDRÉSDÓTTIR: Í 30 ÁR Á SKJÁNUM Brosti of mikið í sjónvarpi og hló í útvarpinu ALDREI LEIÐINLEGT Edda hefur ekki hugsað sér að hætta á skjánum á næstunni enda hefur henni alltaf þótt starfið skemmtilegt.FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAKLAUS OG SÆT Edda var blaðamaður á Vísi árið 1975 þegar þessi mynd var tekin. „Ég var hálf hissa á því að þessu barni skyldi vera hleypt mikið lengra,“ segir Edda um sjálfa sig á þessum árum. Art Garfunkel söngvari er 64 ára. Þorgerður Ingólfs- dóttir kórstjóri er 62 ára. Helga Braga Jóns- dóttir leikkona er 41 árs. FÆDDUST ÞENNAN DAG 1885 Will Durant rithöfundur. 1913 Vivien Leigh leikkona. Sími 460 1760 johann@isi.is www.steinsmidjan.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.