Fréttablaðið - 05.11.2005, Page 34

Fréttablaðið - 05.11.2005, Page 34
[ ] Subaru Forester er lipur í akstri og vel hannaður. Subaru Forester hefur áunnið sér vinsældir hér á landi sem ekki er skrítið. Í landi þar sem allra veðra er von er gott að vera á fjórhjóla- drifnum bíl. Hann er líka lipur og öruggur í akstri innanbæjar sem utan. Sú gerð sem blaðamaður reynsluók á dögunum er talsvert endurnýjuð gerð af Subaru For- ester sem kom hingað á markað í haust. Bíllinn hefur verið tek- inn í gegn útlitslega og það er vel heppnað. Hann er heldur töffara- legri en áður. Þegar inn í bílinn er komið er einfaldleikinn allsráðandi. Mæla- borðið er stórt og læsilegt, öll hönnun einföld og virkar vel. Ekki er verið að drekkja manni í óþarfa tækni. Geymslurými eru mörg og ágætlega góð. Sætin eru þægileg og hæfilega stór. Í mörgun nýjum bílum eru sætin svo risastór að þau virðast hönnuð fyrir risa og ágætt að sleppa við það hér. Plássið er samt fínt. Aftursæti má leggja niður til að stækka farang- ursrými sem alla jafna er ekkert sérlega stór, að minnsta kosti ef öll fjölskyldan er ferðalagi. Bílinn reyndist mjög vel í akstri jafnt innanbæjar sem utan. Hann er lipur og fólksbílalegur í akstri, enda er Subaru Forester nær fólksbíl að stærð en jepplingi. Hann er til dæmis ekki sérlega hár. Á vegum úti var hann hinn traustasti. Prófuð var sjálfskipt gerð af bílnum og verður reynd- ar að segjast að maður finnur talsvert fyrir gírskiptinginum. Hins vegar er líka óhætt að segja að bíllinn liggur vel á vegi og er þægilegur á þjóðvegunum. Í heildina er Subaru Forester traustur bíll sem hentar vel minni fjölskyldum og þeim sem hlaupa ekki á eftir óþarfa glæsileika en vilja öruggan bíl. eiga það til að fyllast af drasli. Sérstaklega þegar börn eru mikið í bílunum. Það getur verið sniðugt að vera með ruslapoka í bílnum og setja tómar fernur og bréf beint í hann. Þá er fljótlegra að þrífa bílinn heldur en þegar ruslið er út um allt. Fjölskyldubílar Rými fyrir bílstjóra er þægilegt. Lögun ljósanna gefur bílnum sportlegt útlit. Farangursrýmið er stækkanlegt því hægt er að leggja niður aftursætin. Einfaldur og þægilegur bíll Subaru Forester er sportlegur á að líta og traustur í akstri. Glasahaldarinn fyrir bílstjórann er skemmti- lega útfærður.Einföld og nytsamleg hönnun. Mælaborðið er sérlega læsilegt. Stýrið er þægilegt. Stefnuljós er í speglinum. REYNSLUAKSTUR VÉL: 2 lítrar Afl: 158 hestöfl lengd x breidd x hæð 4,48m x 1,74m x 16cm Verð: 2.550.000 VÖRUBÍLAVARAHLUTIR SCANIA, VOLVO OG MAN G.T. ÓSKARSSON EHF VESTURVÖR 23, 200 KÓPAVOGUR SÍMI 554 6000 Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI Ný námskeið vikulega, staðsetning Mjódd Simi. 894 2737 www.ovs.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.