Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 36
5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR4
Flestir ökumenn þekkja þá
óþægilegu tilfinningu að missa
stjórn á bíl í hálku. Þá getur
skipt sköpum að bíllinn sé
rétt búinn og að ökumaður viti
hvað þarf til að ná stjórn á
honum aftur.
„Fyrst af öllu er mikilvægt að
þrífa allan snjó af bílnum svo að
útsýni sé eins gott og hægt er.
Ekki má gleyma að hreinsa af
ljósunum,“ segir Hrönn Bjargar
Harðardóttir ökukennari.
„Þá er nauðsynlegt að bíll-
inn sé á vel mynstruðum dekkj-
um. Það er ekki skylda að vera
á negldum dekkjum en þeir sem
velja það verða þá að hafa öll
dekk bílsins negld. Margir halda
að nagladekk stöðvi á punktinum
en svo er ekki.“
Sífellt fleiri bílar eru búnir
læsivörðum ABS bremsum. „ABS
bremsur koma í veg fyrir að hjól-
in læsist og því getur maður stýrt
bílnum. Ef hjólin læsast rennur
maður bara stjórnlaust. Stíga
verður fast og ákveðið á ABS
bremsur til að þær virki. ABS er
mikill lúxus en þýðir ekki endi-
lega að hægt sé að stoppa á punkt-
inum,“ segir Hrönn og bætir við
að á bíl með venjulegar brems-
ur sé lykilatriði að forðast allar
snögg- og nauðhemlanir og gefa
sér tíma til að hægja á bílnum.
Hrönn segir veturinn frábæra
árstíð. „Mér finnst gaman að ferð-
ast í jeppa og fara út að labba. Það
er samt gott að hafa í huga að veg-
grip minnkar í snjó, hálku, slabbi
og bleytu, en veggrip er mikil-
vægt fyrir stjórnun bílsins. Það
er nauðsynlegt að miða akstur
alltaf eftir yfirborði vegar, veðri
og ástandi bílsins,“ segir Hrönn.
Algengt er að bílar renni til
vegna snöggrar bremsunar,
snöggrar beygju eða mikillar
inngjafar. „Ef framendinn fer
að skrika í beygju stígur maður
kúplingunni niður og snýr
stýrinu rólega til baka. Þegar
réttri stefnu er náð lyftir maður
fætinum hægt af kúplingunni. Ef
það er afturendinn sem skrikar
stígur maður á kúplinguna, snýr
stýrinu í átt að afturendanum og
snýr því svo til baka þegar bíllinn
leiðréttist. Þegar réttri stefnu er
náð lyftir maður svo kúplingunni
rólega.“
Hrönn segist mæla með því að
ökumenn á öllum aldri, sem eru
óöruggir í hálkuakstri, kaupi sér
ökutíma og rifji upp eða fái þjálf-
un í snjó- og hálkuakstri. „Svo má
ekki gleyma því að hafa gott bil á
milli bíla og gefa sér meiri tíma
til að komast á milli staða,“ segir
Hrönn að lokum. ■
Læst hjól – stjórnlaus bíll
Hrönn Bjargar Harðardóttir ökukennari mælir með að fólk kaupi sér ökutíma til að æfa akstur í snjó og hálku. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Óhöppin gera ekki boð á undan sér og því gott að vera við öllu búinn og geta brugðist rétt við.
BÍLSTJÓRAR - HÆTTIÐ AÐ PRÍLA!
RAFSTÝRÐAR YFIRBREIÐSLUR
FYRIR VÖRUBÍLA, VAGNA OG GÁMA
G.T. ÓSKARSSON EHF
VESTURVÖR 23, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 554 6000
Njarðarbraut 15 • Reykjanesbær • S: 421 2999 • Fax: 421 2090
Netfang: nysprautun@nysprautun.is
www.nysprautun.is
Viðurkennt
CABAS-verkstæði
Alhliða réttingar og sprautun
Þrautreyndir starfsmenn
Cabas tjónaskoðunarkerfi
Þjónustuaðili Heklu
Skemmuvegur 46 • 200 Kópavogur
S. 557 1430 & 587 1430 • Fax: 567 0087
Netfang: jonasar@jonasar.is
www.kliptrom.is
KT jeppa & útivistarverslun
S:466-2111
Pallhús
loftdælur
skriðgírar
ferðabúnaðurBestu dekkin í USA 8 ár í röð
Almennar bílaviðgerðir
Fjölmörg kostaboð eru í gangi núna
eins og sést á eftirfarandi upptaln-
ingu.
Um helgina efnir Brimborg til stór-
sýningar og kynnir nýjan Ford F150
á lægra verði en áður. Undanfarið
hefur verð á öllum fjórhjóladrifs-
bílum lækkað hjá Brimborg vegna
hagstæðs gengis og góðs samnings
við Ford.
Þá hefur Ingvar Helgason lækkað
verðið á Nissan Patrol um 200.000
krónur. Ástæðan er hagstætt gengi
á síðustu sendingu sem skilar sér
beint í vasann til neytenda.
Toyota lækkaði líka nýlega alla sína
bíla um 4-5%, þar með talda Lexus-
bílana.
Loks eru vaxtalausir dagar hjá Bíla-
landi B&L nú um helgina. Fjöldi not-
aðra bíla býðst á 100% vaxtalausu
láni til allt að 48 mánaða, auk þess
sem lántökukostnaður er enginn.
tilboð }
Hagstæð bílakaup
NÚ VIRÐIST GÓÐUR TÍMI TIL AÐ
ÍHUGA BÍLAKAUP, HVORT SEM NÝR
EÐA NOTAÐUR BÍLL ER Á INNKAUPA-
LISTANUM.