Fréttablaðið - 05.11.2005, Qupperneq 49
LAUGARDAGUR 5. nóvember 2005
Loftþrýstingur er nú að jafn-
aði tilfærður í einingu sem
nefnist hektópaskal eða hPa og
er hún hluti af alþjóðlega ein-
ingakerfinu SI. Ástæða þess að
forskeytið hektó- er notað er
sú að eitt hPa er sama og eldri
eining, millibarinn (mb), þannig
að 1000hPa eru 1000mb. Þrýsti-
tölur í textanum hér á eftir eru
því hinar sömu hvort sem við
tölum um hPa eða mb. Milli-
barinn er hluti af eldra eininga-
kerfi, svokölluðu cgs-kerfi þar
sem sentimetri (cm), gramm (g)
og sekúnda (s) voru grunnein-
ingar, en ekki metri (m), kíló-
gramm (kg) og sekúnda sem eru
í SI-kerfinu.
Dýpsta lægðin 919,7 hPa
Þegar talað er um loftþrýsting
í sambandi við dýpt lægða eða
þrýsting í öðrum veðurkerf-
um er ætíð átt við þrýsting við
sjávarmál. Lægsti þrýstingur
við sjávarmál sem vitað er um
hér á landi, og þar með dýpsta
lægð sem komið hefur yfir
Ísland síðan mælingar hófust,
mældist í Vestmannaeyjum 2.
desember 1929 kl. 9.20 og var
919,7 hPa.
Svo vel vildi til að Gunnar Þ.
Jónatansson athugunarmaður
mældi þrýstinginn á 10 mínútna
fresti um það bil sem hann var
lægstur. Loftvogin á Stórhöfða
var talin í 122 m hæð yfir sjávar-
máli og því er hæðarleiðrétting
nokkur. Samanburðarathuganir
gefa til kynna að loftvogin sem
í notkun var hafi verið nokkuð
rétt og leiðréttingartöflurnar
sömuleiðis.
Hvassviðri truflar þrýstingsmæl-
ingar
Annað atriði truflar þó þessa
mælingu nokkuð. Ofsarok var af
austri og síðar suðaustri þennan
morgun. Mikil hvassviðri valda
minniháttar sveiflum í loftþrýst-
ingi vegna sogs í húsum auk
þess sem athugunarstöðin er á
höfða eins og nafnið bendir til
og loftið þarf að lyftast yfir hann
eða framhjá honum. Höfðinn
verkar því í hvassviðri á svip-
aðan hátt og flugvélarvængur,
loftið þarf að fara lengri leið en
ella og þrýstingur fellur því við
yfirborð hans eins og við efra
borð vængja og er lægri þar en
umhverfis. Í miklum vindi geta
þessi áhrif verið umtalsverð.
Leiðréttingar
Páll Bergþórsson veðurfræð-
ingur reiknaði á sínum tíma
hver þessi lækkun ætti að vera
við mismunandi vindhraða. Með
nákvæmri athugun á veðurkort-
um áætlaði hann síðan þrýsting
í Vestmannaeyjum út frá bæði
vindi á svæðinu og þrýstingi
og þrýstibreytingum á öðrum
nálægum stöðvum. Áætlað-
ur þrýstingur var þá borinn
saman við athugaðan þrýst-
ing og mismunur athugaður. Í
ljós kom að mismunurinn var
raunverulega háður vindhraða,
en þó var hann ívið minni en
hin fræðilega lækkun gaf til
kynna. Þessi þrýstileiðrétting
Páls er nú notuð við greiningu
á veðurkortum á Veðurstofunni
og reyndar nota fáeinar erlend-
ar veðurstofur hana líka.
„Réttur“ þrýstingur 923,6 hPa
Í desember 1929 var enginn
vindhraðamælir til í Vest-
mannaeyjum og vindur kl. 8 um
morguninn áætlaður 11 vindstig
eða 30 m/s. Hafi sami vindur eða
svipaður verið kl. 9.20 þegar
loftþrýstingur mældist lægst-
ur, ætti leiðrétting samkvæmt
töflu Páls að vera um 3,9 hPa.
„Réttur“ þrýstingur hafi því
verið 923,6 hPa. Þetta væri samt
lægsti þrýstingur við sjávarmál
á Íslandi. Rúmum þremur árum
síðar (3. janúar 1933) mældist
þrýstingur í Vestmannaeyjum
923,9 hPa.
Enn dýpri lægðir
Allt fram til 1986 var metið frá
1929 talið lægsti þrýstingur á
norðurhveli utan hitabeltisins.
Í desember það ár mældust 920
hPa á bauju fyrir suðvestan
land, en hún var ekki forrituð til
að senda lægri þrýsting. Lægð-
in sú er talin hafa verið 914 hPa
í lægðarmiðju. Ámóta lægð eða
jafnvel dýpri var á ferðinni
fyrir sunnan og suðaustan land í
janúar 1993 og er talið að þrýst-
ingur í lægðarmiðju hafi verið
910 hPa eða lægri.
Trausti Jónsson, veðurfræðingur
HVAÐAN ER NAFNIÐ Á
SPRENGISANDI KOMIÐ?
Örnefnið Sprengisandur er að
minnsta kosti þekkt frá 1476
(elsta handrit frá 1820-30), úr
dómi um Holtamanna- og Land-
mannaafrétt, þar sem segir:
„millum Túnár og Spreingis-
ands“ (Ísl. fornbréfasafn VI:81).
Sandurinn er vafalaust kenndur
við örnefnið Sprengir sem var
líklega slétt sandsvæði, vestur
af sunnanverðu Fjórðungsvatni
(Landið þitt Ísland IV:147-150).
Þar hafa menn riðið svo hratt að
legið hefur við að hestar væru
sprengdir.
Sprengir er til sem sendið
valllendi á Skeiðum í Árnes-
sýslu þar sem eru góðar reið-
götur og var áður hluti gamla
vegarins. Nafnið er víðar að
finna. Í Arnarbæli í Grímsnesi
er klettabelti eða klettarani sem
kallast Sprengir. Þar nærri eru
Sprengirsflatir sem talið er að
hafi verið leikvöllur til forna.
Sprengir er stór slétta í túninu
í Ögri við Ísafjarðardjúp. Sagt
er að fyrr á öldum hafi ungir
menn hlaupið svo við leiki þar
að þeim lá við að sprengja sig.
Sprengir er einnig í Hellis-
holtum í Hrunamannahreppi í
Árnessýslu og í Fjósum í Mýr-
dal í Vestur-Skaftafellssýslu.
Sprengisandur er örnefni á
Geirlandi á Síðu þar sem oft var
sprett úr spori, og á Sprengi-
sandi á Hamarsheiði í Gnúp-
verjahreppi í Árnessýslu var oft
riðið hratt. Örnefnið er einnig
þekkt á Búlandsseli í Vestur-
Skaftafellssýslu, í Skálmarbæ í
Álftaveri og í Grindavík.
Svavar Sigmundsson,
forstöðumaður Örnefnastofnunar
Hvað var dýpsta lægð
Íslandssögunnar djúp?
VÍSINDAVEFUR
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Vísindavefur Háskóla Íslands fjallar um öll vísindi, hverju nafni sem þau nefn-
ast. Að jafnaði birtast þar 15-20 ný svör í hverri viku. Meðal spurninga sem
glímt hefur verið við að undanförnu eru: Hvað eru deilitegundir, hvað þýðir
orðið Hvítserkur, hvað er mikill straumur í einni eldingu, hverjar eru hefðir og
saga hrekkjavöku, hvernig eru tölvuskrár geymdar og hvað verður um þær þegar
þeim er hent, og hvað er kjörþögli? Hægt er að lesa svör við þessum spurning-
um og fjölmörgum öðrum á slóðinni www.visindavefur.hi.is