Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 05.11.2005, Blaðsíða 62
 5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR46 menning@frettabladid.is ! Kl. 19.00Grasrótarsýningu ungra myndlistarmanna í Nýlistasafninu lýkur með því að efnt verður til útgáfupartís í tilefni sýningarlokanna og útgáfu Grasrótarritsins. > Ekki missa af ... ... tónleikum djassklúbbsins Múlans í Þjóðleikhúskjallaranum annað kvöld, þar sem eistneska söngkonan Margot Kiis flytur sígrænar djassperlur. ... tónleikum þeirra Bryndísar Höllu Gylfadóttur sellóleikara og Eddu Erlendsdóttur píanóleikara í Laugarborg í Eyjafirði á morgun. ... Hvíldardagskvöldi á Grand Rokki annað kvöld þar sem sýndar verða heimildarmyndir og einstæðar tónleikaupptökur með Bob Dylan. Tveir Þjóðverjar ætla sér að gera Flateyri að miðpunkti alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar. Fyrsta atlagan var gerð um síðustu helgi. „Þegar Robert Redford byrjaði með Sundance-kvikmyndahátíðina sína var Timphaven líka mjög afskekkt- ur staður. Ef við getum gert Flateyri að þó ekki væri nema broti af því sem Sundance er, þá höfum við náð árangri,“ segir þýski kvikmynda- gerðarmaðurinn Joachim Polzer. Um síðustu helgi var hann stadd- ur á Flateyri ásamt félaga sínum, Norbert Pintsch. Þeir sýndu þar heimildarmyndina Thatta Kedona, þriggja tíma mynd sem fjallar um leikfangaþorp í Pakistan og starf vestrænna sjálfboðaliða sem hafa aðstoðað þorpsbúa við að afla sér lífsviðurværis með leikfangagerð. „Við ætlum að verða árlegir gestir á Flateyri. Þar verður alþjóð- leg heimildarmyndahátíð í tengsl- um við heimildarmyndahátíðina Globians í Potsdam í Þýskalandi, sem við höfum skipulagt undanfar- in ár,“ segir Polzer. En hvers vegna skyldu þeir hafa valið Flateyri? Þeir segja að hægt sé að skipuleggja kvikmyndahá- tíð hvar sem er í heiminum, en þeir þekkja svolítið til á Flateyri. Pintsch hefur komið þangað áður ásamt eiginkonu sinni. Það var árið 1999 þegar þau gáfu nærri hundrað brúður frá 23 löndum til Flateyrar. Síðan þá hefur Brúðusafnið á Flateyri dregið að sér nokkurn hóp ferðamanna á hverju ári, og beint lá við að sýningin á heimildar- myndinni færi fram í húsakynnum Brúðusafnsins. Pintsch er einn af vestrænu sjálfboðaliðunum sem fjallað er um í heimildarmyndinni Thatta Kedona. Hann hefur einnig í hyggju að aðstoða íbúa á Vestfjörðum til þess að afla sér lífsviðurværis með brúðugerð, rétt eins og hann hann hefur gert í Pakistan. „Við ætlum að koma því svo fyrir að brúður frá Vestfjörðum verði fáanlegar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og víðar. Þetta verða vandaðar brúður, ekki fjöldafram- leiddar. Þær verða kannski dýrari, en aðalatriðið er að þær verða fáan- legar.“ Þeir fóru akandi til Flateyrar, hafa engan áhuga á því að auðvelda sér lífið um of með því að fara flug- leiðis. „Bara ökuferðin var mikið ævintýri,“ segir Polzer og brosir breitt. „Okkur finnst einmitt nauðsyn- legt að vera á afskekktum stað,“ segir Pintsch. „Það er hluti af því sem heillar við hugmyndina, að fólk geti kannski þurft að vera þarna í eina viku innilokað vegna veðurs.“ NORBERT PINTSCH OG JOACHIM POLZER Þeir ætla að hefja Flateyri til vegs og virðingar með alþjóðlegri heimildarmyndahátíð og vandaðri brúðugerð. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Tóku stefnuna á Flateyri Minningartónleikar um séra Árna Berg Sigurbjörns- son verða haldnir í Áskirkju í dag klukkan sautján. Á tónleikunum flytur kór Áskirkju íslensk lög, ýmist ættjarðarlög eða kirkjulega kórtónlist. Ein- söngvararnir Jóhann Friðgeir Valdimarson, Hallveig Rúnarsdóttir, Jóhönna Ósk Valsdóttir og Oddný Sigurðardóttir koma einnig fram og verða á íslensk- um nótum. Þau eru öll fyrrverandi og núverandi meðlimir í kór Áskirkju. Stjórnandi og píanóleikari er Kári Þormar. Kór Áskirkju var stofnaður í núverandi mynd haustið 2001 en í honum eru um 20 tónlistar- menntaðir söngvarar sem hafa flestir verið með frá upphafi. Nú fyrir skömmu gaf kórinn út geisladiskinn Það er óskaland íslenskt, sem hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda, og var tilnefndur til íslensku tón- listarverðlaunanna sem plata ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar. Kórinn hefur haldið fjölda tón- leika í Reykjavík og nágrenni og fór í tónleikaferð um Norðurland síðastliðið sumar. Séra Árni Bergur Sigurbjörnsson þjónaði sem sóknarprestur í Ólafsvíkurprestakalli frá 1972 til 1980 og í Ásprestakalli í Reykjavík frá 1980. Hann lést 17. september síðastliðinn. Kór Áskirkju átti alla tíð ein- staklega gott samstarf við séra Árna Berg og vill sýna þakklæti sitt með þessum minningartónleikum. KÓR ÁSKIRKJU Kórinn minnist séra Árna Stóra svið Salka Valka Lau 12/11 kl. 20 Fi 17/11 kl. 20 Fi 24/11 kl. 20 Fö 25/11 kl. 20 Su 4/12 kl. 20 Su 11/12 kl. 20 Woyzeck Í kvöld kl. 20 Rauð kort Fi 10/11 kl. 20 Græn kort Fö 11/11 kl. 20 Blá kort Fö 18/11 kl. 20 Lau 19/11 kl. 20 Kalli á þakinu Su 6/11 kl. 14 UPPSELT Su 13/11 kl. 14 Su 20/11 kl. 14 Lau 26/11 kl. 14 Su 27/11 kl. 14 Id - HAUST Wonderland, Critic ´s Choice? og Pocket Ocean Su 6/11 kl. 20 Su 13/11 kl. 20 Su20/11 kl. 20 Mi 23/11 kl. 20 Aðeins þessar sýningar! Nýja svið/Litla svið Lífsins tré Í kvöld kl. 20 Fi 10/11 kl. 20 Fö 11/11 kl. 20 UPPSELT Fö 18/11 kl. 20 Lau 19/11 kl. 20 Fö 25/11 kl. 20 Alveg brilljant skilnaður Su 6/11 kl. 20 UPPSELT Su 13/11 kl. 20 UPPSELT Su 20/11 kl. 20 UPPSELT Su 27/11 kl. 20 UPPSELT Má 28/11 kl. 20 AUKASÝNING Síðustu sýningar! Manntafl Lau 12/11 kl. 20 Fi 17/10 kl. 20 Fi 24/10 kl.20 Miðasala á netinu Einfalt og þægilegt er að kaupa leikhúsmiða á heimasíðu Borgarleikhússins www.borgarleikhus.is Þar er einnig að finna ým- san fróðleik um verkin sem sýnd verða í vetur. �������� ������� ��������������������� �� � � � ������ ���������� ���� ���������� ��� ���� ������ ����� ����������������������������������������������������������������������� ����������� � �� ���������������������������� ���������������������������������������� ������������ �������������� �� ����������� ���������������������������������������������������������������� ����������������������������������������������� ���������� ��������������������������� ������������������������ �������������� ������������ �� �������������������������������������� eftir Thomas MEEHAN, Charles STROUSE & Martin CHARNIN SÍÐUSTU SÝNINGAR Frábær fjölskylduskemmtun! - Fréttablaðið HHHH -DV Hinsegin óperetta eftir Gaut G. Gunnlaugsson og Gunnar Kristmannsson Síðasta máltíðinSýnt í Iðnó "Hugmynd Gunnars og Gauts er snjöll og dáruskapurinn fer aldrei yfir þau fínu mörk að verða að fíflagangi. Það gerir grínið enn betra." Bergþóra Jónsdóttir - mbl Næstu sýningar: fim. 3.nóv. kl. 20:00 og lau. 5.nóv. kl. 17:00 Miðasala í Iðnó í síma 562-9700, idno@xnet.is og á www.midi.is Landsbankinn er stoltur bakhjarl sýningarinnar. UPPSELT Á ALLAR SÝNINGAR NÓVEMBER SALA MIÐA Á SÝNINGAR Í DESEMBER Á WWW.MIDI.IS OG HJÁ IÐNÓ Í SÍMA: 562 9700 ÉG ER MÍN EIGIN KONA 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.