Fréttablaðið - 05.11.2005, Qupperneq 72
56 5. nóvember 2005 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Lengi vel benti fátt til
annars en að Jóhann myndi semja
við Val en hann ákvað að lokum
að semja við Grindavík en hann
skrifaði undir tveggja ára samn-
ing við liðið í gærkvöld.
„Þetta snýst um áhuga þjálf-
arans og liðsins,“ sagði Jóhann
en heyra mátti á honum að Sig-
urður Jónsson, þjálfari Grinda-
víkur, hafi átt hvað stærstan þátt
í því að lokka Jóhann suður með
sjó. „Ég hef gríðarlega mikla trú
á Sigga og hann hefur mikla trú
á mér. Hann lagði mikla áherslu
á að fá mig og það kunni ég að
meta. Það hafði klárlega mikið að
segja,“ sagði Jóhann sem fundaði
með Willum Þór Þórssyni, þjálf-
ara Vals, á fimmtudaginn. Will-
um virðist ekki hafa selt Jóhanni
mikið á þeim fundi.
Jóhann á góða vini í Grindavík-
urliðinu sem allir koma frá Akur-
eyri.
„Gömlu félagarnir úr Þór,
Óðinn, Orri og Andri, eru allir
þarna og það skiptir mig máli,“
sagði Jóhann en mikið hefur verið
rætt um að hann sé að fá mjög
góðan samning. Sagt var að hann
gæti fengið heildarpakka sem
hægt væri að meta á 6 milljónir
króna á ári.
„Þetta snýst ekkert um pen-
inga. Eingöngu um liðið og þjálf-
arann og hvað hjartað sagði mér
að gera,“ sagði Jóhann sem gat þó
ekki neitað því að hann væri að fá
fínan samning. „Já, já en samn-
ingarnir sem ég hafði úr að velja
voru sambærilegir og ég valdi ekki út frá því hvað ég væri að fá mikið í laun.“ henry@frettabladid.is
Fór til Grindavíkur út af Sigurði þjálfara
Akureyringurinn Jóhann Þórhallsson ákvað að ganga í raðir Grindvíkinga í gær. Ástæðan er áhugi þjálfar-
ans á honum og metnaður félagsins. Valur sat eftir með sárt ennið.
FÓTBOLTI Milan Stefán Jankov-
ic, aðstoðarþjálfari Grindavíkur
og fyrrum aðalþjálfari félagsins,
er þessa dagana staddur í heima-
bæ sínum Bihac í Króatíu þar sem
hann er að þjálfa í knattspyrnu-
skóla ásamt æskuvini sínum
Davor Suker, einni skærustu
stjörnu króatískrar knattspyrnu
frá upphafi. Þetta kemur fram á
heimasíðu Grindvíkinga.
Í fréttinni kemur einnig fram
að Suker sé tilbúinn að koma með
knattspyrnuskólann til Íslands
og ætla Grindvíkingar að hefja
undirbúning um leið og Jankovic
kemur heim til Íslands. - hbg
Milan Stefán Jankovic:
Þjálfar með
Davor Suker
Leifur Garðarsson, nýráðinn þjálfari
Fylkismanna í fótboltanum, kveðst ekki
missa svefn þótt hver leikmaðurinn á
fætur öðrum týnist í burtu frá félaginu.
Nú síðast voru það Helgi Valur Daníels-
son og Valur Fannar Gíslason sem fóru
til annara liða en áður hafði Björgólfur
Takefusa farið í KR, auk þess sem Viktor
Bjarki Arnarsson fer líklega aftur til
Víkings, en þangað hafði Fylkir lánað
hann síðasta sumar. Þá eru Gunnar Þór
Pétursson og Finnur Kolbeinsson búnir
að leggja skóna á hilluna og skilja eftir
skörð sem hafa ekki enn verið fyllt.
„Ég er pollrólegur yfir þessu öllu
saman. Hjá Fylki er fullt af ungum strák-
um sem eru tilbúnir að leggja sig fram
fyrir félagið. Ég vil miklu frekar nota þá
heldur en leikmenn sem eru ekki með
hugann 100% við Fylki,“ segir Leifur og
þvertekur fyrir að leikmanna-
hópurinn sé orðinn eitt-
hvað þunnskipaður.
„Ekki ef marka má þann
fjölda sem hefur verið
að mæta á æfingar eftir
að við byrjuðum aftur.
Það er frábærlega gaman
á æfingum hjá okkur og
stemningin í hópnum er
mjög fín,“ segir Leifur.
Þrátt fyrir brotthvarf
þessara þungavigtarmanna
geta stuðningsmenn Fylk-
is glaðst yfir því að fá þrjá
lykilmennn til baka úr
vondum hnémeiðslum; þá Sævar Þór
Gíslason, Hauk Inga Guðnason og Ólaf
Stígsson en þeir tveir síðastnefndu voru
þó byrjaðir að spila undir lok síðasta
tímabils. Guðni Rúnar Helgason, Daninn
Christian Christiansen og Ólafur fram-
lengdu samninga sína við liðið í fyrradag
og áður höfðu flestir ungu leikmenn liðs-
ins framlengt samninga sína. „Vð erum
ennþá með reynslumikla menn sem
munu koma til með að styðja vel við
bakið á þeim yngri. Og það er nú
bara nóvember og mjög langt í
mót. Þegar nær dregur sumri
getur vel verið að við förum
að líta í kringum okkur en
eins og er missi ég ekki
svefn vegna ástandsins,
síður en svo,“ segir Leifur.
LEIKMANNAFLÓTTINN HJÁ FYLKI: FJÖLMARGIR LYKILMENN HORFNIR Á BRAUT
Leifur sefur rólegur þrátt fyrir allt
> Birgir í bobba
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er í
34.-39. sæti eftir þrjá hringi á öðru stigi
úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina.
Birgir Leifur er á tveimur höggum yfir
pari þegar aðeins á eftir að leika einn
hring á mótinu en aðeins 27 kylfingar
komast áfram á þriðja stigið. Birgir er
tveimur höggum frá því að komast í
hóp 27 efstu og hann má því hafa sig
allan við í dag þegar fjórði og síðasti
hringurinn verður leikinn.
Við mælum með...
... því að fólk fjölmenni í Egilshöllina
í dag og fylgist með köppum á borð
við Ian Rush, Kenny Samson, Frank
Stapleton og fleiri góðum etja kappi við
íslenska jaxla á borð við Ólaf Þórðarson
og Sigurð Jónsson. Þetta mót er án
vafa eitt það áhugaverðasta sem haldið
hefur verið hér á landi.
KÁTIR Á GÓÐRI STUND Það var létt yfir Jóhanni og manninum sem fékk hann til Grindavík-
ur, Sigurði Jónssyni, eftir undirskriftina í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.