Fréttablaðið - 05.11.2005, Qupperneq 73
LAUGARDAGUR 5. nóvember 2005 57
FÓTBOLTI Enn bætist í hóp þeir-
ra félaga á Bretlandseyjum sem
hafa áhuga á framherjanum
Gunnari Heiðari Þorvaldssyni.
Southampton er stokkið í slaginn
um Eyjapeyjann en liðið sendi
njósnara á leik Lens og Halmstad
í UEFA-bikarnum á fimmtudag.
Hann hefur væntanlega ekki séð
mikið til Gunnars þar sem Lens
átti leikinn og vann öruggan sigur,
5-0.
Everton og Birmingham hafa
einnig verið að fylgjast með
Gunnari Heiðari sem og skosku
félögin Hearts, Celtic og Rang-
ers. Þýsku liðin Hamburg SV og
Werder Bremen hafa einnig verið
nefnd til sögunnar.
Það er því fátt sem bendir til
annars en að Gunnar Heiðar sé
á förum frá Halmstad og ef fram
heldur sem horfir mun hann vænt-
anlega geta valið úr tilboðum.
- hbg
Eyjapeyinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson er enn eftirsóttur á Bretlandi:
Undir smásjá Southampton
GUNNAR HEIÐAR Mörg stórlið á Bretlandi
eru með hann í sigtinu þessa dagana.
FÓTBOLTI Bikarmeistarar Vals voru
ekki lengi að bregðast við því að
Jóhann Þórhallsson skyldi ákveða
að semja við Grindavík í stað Vals.
Skömmu eftir að fréttir bárust
af því að Jóhann væri á leið til
Grindavíkur kom fréttatilkynning
frá Valsmönnum um að þeir hefðu
náð munnlegu samkomulagi við
Húsvíkinginn Andra Val Ívarsson
og Danann Jakob Spangsberg sem
leikið hefur með Leikni síðustu
tvö ár.
Báðir þessir leikmenn eru fram-
herjar en mjög ólíkir þó. Andri
Valur er stór og kraftmikill fram-
herji en Jakob er geysilega fljótur.
Báðir þykja öflugir skallamenn.
Andri Valur var lengi vel á leið til
Keflavíkur en virðist hafa snúist
hugur á síðustu stundu.
„Aksturinn var ekki að heilla mig.
Ég er í háskólanum og þar gengur
mér upp og niður. Ég sá því fljótt
að mér veitti ekkert af klukkutím-
unum sem myndu sparast með því
að spila fótbolta í bænum,“ sagði
Andri Valur við Fréttablaðið í gær
en ítrekaði þó að honum hefði lit-
ist vel á allt hjá Keflavík og óskaði
þeim alls hins besta. - hbg
Valur gefst ekki upp:
Andri og Jakob
í stað Jóhanns
ANDRI VALUR ÍVARSSON Hefur yfirgefið
herbúðir Völsungs og skrifað undir samn-
ing við bikarmeistara Vals.
BÓK 3
ER KOMIN!
109 GLÆNÝJAR SUDOKU GÁTUR
Nú hefur Bók 3 bæst í hóp mest seldu
Sudoku bóka landsins.
„Kemur í veg fyrir Alzheimer og aðra heilahrörnun“
The Observer
„Flugferðin hefur aldrei verið jafn fljót að líða“
Ónefndur bloggari
„Bætir minnið“
Dr. Susan Blackmore
Krakkabókin kemur út fimmtudaginn 11. nóv.
Frábær fyrir byrjendur og börn. Frá litlum gátum
upp í stórar, með bæði táknum og tölum.
„Ég elska Sudoku!“
Kisulóra, barnaland.is
„Eflir rökhugsun og hefur mikið þjálfunargildi“
Skólavefurinn.is
EINU BÆKURNAR MEÐ ÁÐUR ÓBIRTUM GÁTUM
36
� � LEIKIR
� 14.00 Víkingur og Haukar mætast
í DHL-deild kvenna í handbolta í
Víkinni.
� 14.00 Stjarnan og Grótta mætast í
DHL-deild kvenna í handbolta í
Ásgarði í Garðabæ.
� 14.00 KA/Þór og HK mætast í
DHL-deild kvenna í handbolta í KA-
heimilinu.
� 16.15 Stjarnan og Fylkir eigast við
í DHL-deild karla í handbolta í
Ásgarði í Garðabæ.
� � SJÓNVARP
� 09.00 Ítölsku mörkin á Sýn.
� 09.30 Ensku mörkin á Sýn.
� 10.00 Spænsku mörkin á Sýn.
� 10.30 Meistaradeild Evrópu á Sýn.
� 12.15 Meistaradeildin með
Guðna Bergs á Sýn.
� 12.35 Enska útrvalsdeildin á
Enska boltanum. Leikur Aston Villa
og Liverpool sýndur beint.
� 12.55 Mastersmót Icelandair og
Ian Rush á Sýn.
� 13.10 Meistaradeildin með
Guðna Bergs á Sýn.
� 13.50 Ítalski boltinn á Sýn. Leikur
AC Milan og Udinese sýndur í beinni
útsendingu.
� 14.15 Íslandsmótið í handbolta á
RÚV.
� 14.45 Á vellinum með Snorra Má
á Enska boltanum.
� 15.00 Enska úrvalsdeildin á Enska
boltanum. Leikur Sunderland og
Arsenal er aðalleikur dagsins. Aðrir
leikir eru sýndir á aukarásum Enska
boltans.
� 15.45 Handboltakvöld á RÚV.
� 16.05 Íslandsmótið í handbolta á
RÚV.
� 17.15 Enska úrvalsdeildin á Enska
boltanum. Leikur Portsmouth og
Wigan Athletic sýndur beint.
� 17.30 Bandaríska mótaröðin í
golfi á Sýn.
� 18.00 The Tour Championship í
golfi á Sýn.
� 21.30 Helgarsportið á RÚV.
� 22.00 Hnefaleikar á Sýn. Bardagi
milli Scott Harrisson og Nedal
Hussein.
� 00.00 Hnefaleikar á Sýn. Bardagi
milli Kostya Tszyu og Ricky Hatton.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
2 3 4 5 6 7 8
Laugardagur
NÓVEMBER
29. september 2005 FIMMTUDAGUR
Sportslanga 4.11.2005 16:57 Page 2
FÓTBOLTI Margir knattspyrnuá-
hugamenn munu upplifa langþráð-
an draum á morgun þegar margar
skærustu stjarna enska boltans
fyrr á árum koma á leikvanginn í
Egilshöllinni til þess að taka þátt
í móti sem kennt er við Ian Rush.
Lið frá Liverpool, Manchester
United og Arsenal munu taka þátt
ásamt gríðarsterku íslensku liði
sem í eru kappar á borð við Guðna
Bergsson og Eyjólf Sverrisson.
Stjörnurnar komu til landsins
seinni partinn í gær og héldu beint
á blaðamannafund á Nordica. Það
var mjög létt yfir mannskapnum
og ljóst að gömlu kempurnar eru
hingað komnar til að skemmta sér
og öðrum. Þegar blásið verður til
leiks hefst aftur á móti alvaran.
„Þetta er alltaf gríðarlega
skemmtilegt en það er ekkert
launungarmál að við spilum til
að vinna. Við fáum okkur nokkra
bjóra í kvöld en á morgun mætum
við ákveðnir í leikina,“ sagði Dan-
inn Jan Mölby við Fréttablaðið
eftir fundinn en þessi fyrrver-
andi miðjumaður Liverpool var
að koma til Íslands í fyrsta ski-
pti síðan 1981 en þá lék hann
með danska U-21 árs liðinu gegn
Íslandi. „Við viljum skemmta fólki
og þessi mót hafa alltaf slegið í
gegn hjá almenningi.“
Mótið hefst klukkan eitt í dag
í Egilshöll og veislan mun standa
í fjóra tíma. Aðeins kostar 1000
kr. á mótið en það verður einnig í
beinni á Sýn. henry@frettabladid.is
Við spilum til að vinna
Það verða stórstjörnur á hverju strái í Egilshöllinni í dag þegar Icelandair Ian
Rush-mótið fer fram. Jan Mölby, leikmaður Liverpool, ætlar sér sigur í mótinu.
GRANNUR OG SPENGILEGUR Danski miðjumaðurinn Jan Mölby hefur aðeins bætt á sig
síðan þessi mynd var tekin. Hann mun skemmta áhorfendum ásamt Ian Rush og fleiri
góðum í Egilshöll í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES