Fréttablaðið - 10.11.2005, Qupperneq 80
60 10. nóvember 2005 FIMMTUDAGUR
www.fjarkennsla.is
Átt þú góða tölvu
en notar hana lítið?
Úrval námskeiða á Netinu - með íslensku tali
Fjarkennsla býður upp á úrval kennsluefnis, jafnt fyrir byrjendur og þá sem eru lengra komnir. Öll námskeið
eru í formi sýnikennslu og að sjálfsögðu er allt efni vefsins á íslensku, bæði texti og talað mál.
Grunnur: Windows XP • Outlook Express • Internetið • Matreiðslukennarinn • Flight Simulator 2004 • Brellur og brögð • Stafrænar myndavélar
Grafík: Photoshop • Photoshop verkefni • Premiere Pro • Premiere Elements • Flash MX
Skrifstofa: Word 2003 • Word 2003 PRO • Excel 2003 • Excel 2003 PRO • Outlook 2003 • Outlook 2003 PRO • FrontPage • PowerPoint 2003
Fjarkennsla ehf. • Lyngási 18 • 220 Garðabær • Sími 511 4510 • www.fjarkennsla.is
Ókeypis
aðgangur
til reynslu - svo er þitt að velja
ka
ld
al
jó
s
20
05
á þínum forsendum
þegar þér hentar.
Á vefnum fjarkennsla.is gefst öllum tækifæri til að leita
sér grunnþekkingar eða aukinnar færni í notkun helstu
forrita, leiðsagnar í notkun veraldarvefsins eða jafnvel læra
betur á nýju stafrænu myndavélina.
Nú hefur öllum heimilum landsins borist aðgangslykill frá
Fjarkennslu ehf. sem veitir tímabundinn aðgang að öllum
námskeiðum, fræðslu- og afþreyingarefni fyrirtækisins –
notendum að kostnaðarlausu.
Frjáls aðgangur að öllu efni vefsíðunnar fjarkennsla.is veitir þér
ráðrúm til að átta þig á þeim möguleikum sem tölvan á heimilinu
hefur uppá að bjóða. Einnig gefst þér tækifæri til að meta hvort
tími sé kominn til að læra meira. Með kennsluefni Fjarkennslu er
það leikur einn - á þínum forsendum og þegar þér hentar.
FÓTBOLTI Rick Parry og félagar í
stjórn Liverpool hafa síðustu átján
mánuði leitað að fjársterkum aðila
til þess að setja drjúgan skilding
í félagið. Sú leit hefur hingað til
ekki borið árangur enda hafa
peningamennirnir sem félagið
hefur rætt við flestir viljað eign-
ast meirihluta í félaginu en slíkt
hefur ekki verið til umræðu.
Nú er stjórn Liverpool loks
farin að sjá til lands eftir fund
með bandaríska milljarðamær-
ingnum Robert Kraft. Hann er
mikill íþróttaáhugamaður og á
fyrir NFL-liðið New England
Patriots, sem hefur unnið Super-
bowl þrisvar á síðustu fjórum
árum, sem og knattspyrnuliðið
New England Revolution sem
gamla Liverpool-hetjan Steve
Nicol þjálfar. - hbg
Peningaleit stjórnar Liverpool loks að bera árangur:
Kraft að kaupa í Liverpool?
SIGURSÆLL NFL-lið Krafts, New England
Patriots, hefur verið ákaflega sigursælt
síðustu ár. Kraft sést hér fagna góðum sigri
með leikstjórnanda liðsins, Tom Brady.
KÖRFUBOLTI LA Lakers hefur komið
allra liða mest á óvart í NBA-
deildinni í vetur en liðið hefur
unnið þrjá af fyrstu fjórum leikj-
um sínum í deildinni. Lið Lakers
er mikið breytt frá síðustu leiktíð
og flestir leikmanna liðsins eru
ungir, óreyndir og óþekktir að
Kobe Bryant undanskildum.
Mikið álag er á Kobe á þessari
leiktíð og hann hefur brugðist vel
við áskoruninni það sem af er.
Hefur hann leitt liðið með leik
sínum og er búinn að skora yfir
þrjátíu stig í öllum fjórum leikj-
unum. Ef fram heldur sem horfir
verður hann stigakóngur deildar-
innar í vetur. - hbg
Kobe Bryant í miklu stuði:
Aldrei undir
þrjátíu stigum
KOBE BRYANT Í fantaformi þessa dagana.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
NFL Vandræðagemlingurinn Terr-
ell Owens er loksins búinn að biðja
félaga sína í ruðningsliðinu Phila-
delphia Eagles afsökunar á hegð-
un sinni en hann hefur lítið annað
gert síðustu mánuði en að gera
lítið úr þeim og félaginu.
Afsökunarbeiðnin kemur ekki
af góðu því Eagles var búið að
setja hann í leikbann án launa
fyrir margítrekuð brot og sagðist
félagið ekki ætla að leyfa honum
að spila aftur á þessari leiktíð.
Owens virðist loksins hafa gert
sér grein fyrir vandanum sem
hann er búinn að koma sér í og nú
á að gera allt til að komast upp úr
holunni.
„Þetta tekur á mig og ég er sár
yfir því að vera ekki lengur hluti
af liðinu,“ sagði Owens á fjölmenn-
um blaðamannafundi fyrir utan
heimili sitt. „Ég vil biðja félaga
mína og þjálfarann afsökunar á
öllu því neikvæða sem ég hef sagt
um þá.“
Leikmenn Eagles segja að þessi
afsökunarbeiðni komi allt of seint
og að þeir muni ekki taka mark á
henni. Owens verður því væntan-
lega að fylgjast með boltanum í
sjónvarpinu í vetur. - hbg
Terrell Owens reynir að hysja upp um sig buxurnar:
Baðst afsökunar en of seint
TERRELL OWENS Reynir að bæta fyrir mistök-
in en gerir það mörgum dögum of seint.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Miðjumaðurinn Lee
Hendrie verður að öllum líkindum
lánaður frá Aston Villa á næstunni
en hann er svo gott sem búinn að
gefa upp alla von um að komast
aftur í lið félagsins á næstunni.
Hendrie var í banni í upphafi
tímabilsins og svo varð hann að
gangast undir aðgerð. Hann er því
ekki inni í myndinni hjá O´Leary,
stjóra liðsins, eins og staðan er í
dag og er einnig í engu formi.
Lee Hendrie:
Á leið frá
Aston Villa
LEE HENDRIE Ekkert spilað í vetur.