Tíminn - 18.07.1976, Page 1
HÁÞRÝSTIVÖRUR
okkar sterka hlið
Síðumúla 2!
Sími 8-44-43
Háskólinn:
Heldur færri
umsóknir en
á sama tíma
á síðasta ári
— 57 sóttu um sjúkraþjálf*
un. en aðeins 18 komust að
Gsal-Reykjavik. — Innritunar-
fresti fyrir nýstúdenta inn i Há-
skóla tslands lauk 15. júli sl. og
fékk Timinn þær upplýsingar á
skrifstofu Háskólans, að þá hefðu
borizt um 790 umsóknir —en búið
var að flokka 750 þessara um-
sókna. Enn eru að berast um-
sóknir utan af landi, og að sögn
þeirra i háskólanum er ljóst, að
þessi tala á eftir að hækka tals-
vert. Hins vegar er fjöldi um-
sókna nokkru minni nú en á sama
tima i fyrra.
Þeir nýstúdentar, sem hafa sótt
um inngöngu og búið er að flokka
i þær deildir, sem þeir sóttu um,
Saga íslands:
skiptast þannig milli deilda.
(Miðað við töluna 750):
Guðfræðideild 9, læknisfræði 83,
lögfræði 71, viðskiptafræði 94,
heimspekideild 144, verkfræði- og
raunvisindadeild 175, tannlækna-
deild 11, lyfjafræðideild 16, hjúkr-
unarfræði 21, félagsvisindadeild
69 og sjúkraþjálfun 57.
Eins og komið hefur fram i
fréttum er sjúkraþjálfun ný
kennslugrein i háskólanum, og
verður að takmarka fjölda ný-
stúdenta i deildina. Aðeins 18 af
þessum 57, sem sækja um deild-
ina, fá skólavist i ár.
Hjá skrifstofu háskólans fékk
Timinn þær upplýsingar, að fjöldi
þátttakenda i hverri grein væri
mjög svipaður og i fyrra, hvergi
væru um verulega aukningu að
ræða né verulega fækkun.
r
Irarnir
komnir
til Islands
á skinn-
bátnum
Brendan
trski skinnbáturinn Brendan
lagðist að varðskipabryggj-
unni i Reykjavik um klukk-
an tiu i gærmorgun og tók
G.E. þá þessa mynd. Fjöldi
fóiks var saman kominn til
að taka á móti skipsmönn-
um, en þeir virtust vera vel
haldnir þrátt fyrir langa úti-
vist. Nú eru um átta vikur
frá þvi að báturinn lagði af
stað frá irlandi. Megin
tilgangur fararinnar er að
sanna þá hugmynd að irskir
munkar hafi komið til
islands og jafnvel Ameriku i
bát sem þessum.
A ýmsu hefur gengið i
ferðinni til islands. Þannig
tafðist báturinn I nokkra
daga vegna óhagstæðra
vinda áður en skipsmönnum
tókst loks I gær að ná höfn i
Reykjavfk.
Þriðja bindið í árslok
ASK-Reykjavik. — Það er nú
verið að vinna að þriðja bindi is-
landssögunnar, verkið er nær til-
búið, eftir er að samræma handrit
og fara yfir þau, sagði Sigurður
Lindai prófessor og ritstjóri út-
gáfunnar i samtali við Timann i
gær. — Um það hvenær verkið
kemur út þori ég ekki að fullyrða,
en það gæti orðið I lok þessa árs
eða á fyrstu mánuðum þess
næsta. Eftir það gæti ég imyndað
mér, að hægt væri að koma út
einu bindi á ári, en ails er ætlunin
að komi út átta bindi.
1 fyrirhuguðu bindi, sem i
grófum dráttum nær frá 1262 til
1550 þá skrifar Björn Þorsteins-
son t.d. um stjórnmál og atvinnu-
lif, Magnús Stefánsson hluta af
kirkjusögu, Jónas Kristjánsson
um bókmenntir, Jónas Gislason
um siðaskiptin og Björn Th.
Björnsson um listasögu. Þá sagði
Sigurður, að það gæti orðið raunin
að fleiri höfundar leggðu þessu
bindi til efni, en það væri ekki enn
fullráðið, hvort það kæmi nú eða i
næstu bókum.
Aðspurður um sölu á þeim
bókum, sem þegar hafa komið út,
sagði Sigurður, að hún hefði verið
allsæmileg. Þegar hefði salan
farið langt með að greiða
prentunarkostnað, en rikið
greiddi höfundarlaun. Hinsvegar
benti flest til þess, að með tið og
tima gæti útgáfa Islandssögunnar
staðið undir sér. Eðlilega hefði
verið um mikinn stofnkostnað að
ræða, kostnað, sem yrði tiltölu-
lega litill þegar útgáfan væri
komin á skrið.
— Þvi miður þá hef ég haft mun
meira að gera við störf min, en
ætlunin var, en nú sé ég fram á
mun rýmri tima, þannig að
ekkert ætti að vera þvi til fyrir-
stöðu, að eitt bindi kæmi út á ári.
Það er hins vegar óhagkvæmt að
gefa út öllu meira. Við höfum nú
hrafl i söguna fram á þessa öld,
en það efni á eftir að laga, sam-
ræma og stytta, og vissulega er
mikið verk eftir óunnið, sagði
Sigurður Lindal að lokum.
Á blaðsíðu 3 er nánar sagt frá ferð
bátsins og viðtal er við skipstjórann
Tim Severin
Flateyri:
Stóraukin atvinna eftir
komu togarans Gyllis
— hásetakaupið 1200 þúsund á tæpum 4 mánuðum
K.Sn.—Flateyri. A
sunnudaginn landaði togarinn
Gyllir 126 tonnum af fiski eftir 8
daga veiðiferð, og hefur hann þá
aflað 1160 tonn þá 100 veiðidaga,
Togarinn Gyllir frá Fiateyri
er 430 brúttórúmlestir, smið-
aður í Noregi og kom nýr til
Flateyrar i marzmánuði sl.
Timamynd: K.Sn.
sem verið hafa siðan togarinn
hóf veiðar 20. marz sl.. Afla-
verðmætið er 64 milljónir króna,
meðalverð hvers kílós 55 kr.,
og er hásetakaupið orðið 1200
þúsund krónur. Skipstjóri á
Gylli er Grétar Kristjánsson frá
Súðavik og fyrsti stýrimaður
Páll Halldórsson frá Hnifsdal.
Siðan togarinn kom hefur at-
vinna i frystihúsinu aukizt mjög
mikið og starfa þar nú rösklega
80 heimamenn og 20 aðkomu-
menn.
Nú er unnið að endurbótum og
breytingum á frystihúsinu, og
verður væntanlega fljótlega
tekið þar upp bónuskerfi, sem
margir óska eftir, en er umdeilt.
Staðreynd mun það engu að sið-
ur, að tekjur fólks af fiskverkun
aukast með bónuskerfi, og litur
fólk hér þvi björtum augum til
framtiðarinnar.