Tíminn - 18.07.1976, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 18. júli 1976
Plilillillilill
:
• ■• ■ ■
ns
.. . .; :
• j
Þetta eru vélarnar sem koma á markaöinn innan fárra ára. Efsta vélin er ætluð tii langflugs, sú í
miðjunni er hugsuð fyrir meðallangt flug (7N7). Neðst er svo þriggja hreyfla 7X7. Allar eiga vél-
arnar það sameiginlegt að vera mun hagkvæmari i rekstri en þær vélar sem eru i notkun i dag.
*
Farþegaflugvélar
næsta dratugs
NÝJU farþegavélarnar frá
Boeing verksmiðjunum i Ame-
riku, sem koma innan tiðar á
markaðinn hafa þegar hlotið
einkennisstafina 7xC7 og 7N7.
Þetta eru vélar sem munu hafa
minni eldsneytiseyðslu pr.
farþega, minni hávaða, þægi-
legri og stærri farþegarými,
meira rúm fyrir vörur, og mun
fullkomnari fjarskiptabúnað en
tiðkast i dag. Þá þurfa þær ekki
lengri flugbrautir, eins og
margur vildi halda, þvert á
móti, munu þær geta notað
styttri flugbrautir en notaðar
eru af vélum sömu stærðar i
dag.
7X7gerðin er I rauninni stærri
og endurbætt, en B-727 — 200
sem er i dag mest selda
farþegavél heimsins. Þegar
hefur verið selt af 727 um 1300
flugvélar. Við frekari saman-
burð á þessum tveim vélum
kemur m.a. i ljós að 7x7 hefur
átta sæti yfir ganginn, en 727
hefur aðeins sex. Ilin nýja vél
hefur rúm fyrir 198 farþega, og
er knúin með þremur hreyflum.
1 athugunum sem Boeing
verksmiðjurnar hafa gert þykir
það fullsannað, að megin eftir-
spurnin verður i vélum, sem
geta borið á milli 135 og 200
farþega. Auk þess sem þær
verða að hafa tiltölulega langt
*
flugþol. Hvorki Boeing né
Douglas verksmiðjurnar fram-
leiða vélar af þessum stæröar-
flokkum i dag.
Um er að ræða tvær tegundir
af 7N7. önnur er gerð fyrir
stuttar vegalengdir, en hin
hefur mikið flugþol. Sú fyrri
hefur tvo hreyfla, og er I aðal-
dráttum lengd 737 flugvél, en
með nýrri tegund vængja. Vélin
er hugsuð fyrir 135 til 160
farþega.
Hin vélin af 7N7 gerðinni er i
grófum dráttum endurbætt út-
gáfa af 707. Hún hefur fjóra
hreyfla og 8000 km, flugþol.
Farþegafjöldi getur verið á
milli 175 til 200 farþegar. Fyrir
flugfélögin skiptir ef til vill
mestu máli að með tilkomu 7N7
verður reksturinn allt að 20%
hagkvæmari, en rekstur sam-
bærilegra tegunda sem eru á
markaðinum i dag.
Kostnaðurinn við þessar nýju
vélar fráBoeingverksmiðjunum
er sá, að þær eru byggðar á
mikilli og góðri reynslu. Þannig
hafa t.d. orðið tiltölulega fá slys
á áðurgreindum tegundum. Þvi
taka flugfélög og tryggingafé-
lög tiltölulega litla áhættu, með
að kaupa 7N7 eða 7Cc7, heldur
en ef um algjörlega nýja tegund
væri að ræða.
(Þýtt og endursagt ASK)
*