Tíminn - 18.07.1976, Page 5
Sunnudagur 18. júll 1976
TÍMINN
5
Leiðist
einlífi
Hugmyndir Dinah Shore um
samskipti karls og konu mun að
likindum ekki falla i þann jarð-
veg sem að mati fólks nú á
timum kallast jafnrétti. Dinah
heldur þvi fram að konan þurfi
mann til að lifa fyrir, og hún
tekur það skýrt fram að hún
vilji heldur deila llfi sinu með
karlmanni heldur en að vera
óháður einstaklingur. Hið kven-
lega eðli konunnar ætti aldrei að
vanmeta segir hún. Það eina að
vera kona hefur mikla kosti, og
auðvitað hef ég ekki veriö neitt
annað, heldur hún áfram. Ef
konan finnur mann, sem vill
gefa henni nafn sitt, vinna fyrir
henni, borga reikninga hennar
fara með hana i fri, svo að hún
geti á einhvern hátt vikkað sjón-
deildarhring sinn, þá ætti henni
að vera auðvelt að hugsa vel um
hann og börnin og búa honum
þannig þægilegt heimili, þetta
eru ekki slæm skipti segir
Dinah. Konur mega ekki halda,
að þær hafi farið á mis við eitt-
hvað, þó hlutskipti þeirra hafi
orðið eins og áður er lýst. Að
lokum segir Dinah, að það sé af-
skaplega ánægjulegt hvað
varðar félagsskap og önnur
mannleg samskipti, að geta
komið inn á opinberan stað t.d.
bar án þess að vera talin eitt-
hvað frábrugðin i hegðun.
„Konur og karlar verða að geta
lifað fyrir hvort annað”, eru
hennar lokaorð.
Risagröf
1 hæð nokkurri i Kákasus
noröanverðu hefur fundizt um
5000 ára gömul gröf. Hún er
hlaöin upp úr flötum hraunsteini
og eru margir steinarnir meira
en tonn að þyngd. I gröfinni
voru beinagrindur af karli og
konu ásamt miklu af ýmsum
húsmunum, gullskrauti o.s.frv.
Það er sérstaklega athyglisvert,
að karlmaðurinn hefur verið um
2.20 m á hæð. Jafnvel nú I dag
væri hann talinn risi að texti,
hvað þá fyrir 5000 árum, þar
sem allt bendir til, að menn hafi
þá verið talsvert lægri vexti en
nú.
Sigrazt á
inflúensunni
Milljónir Bandarikjamanna
fengu inflúensu siðastl. vetur,
Og nú óttast sérfræðingar að
hin hættulega Svinainflúensa sé
á leiðinni, og hún geti orðið öllu
verri. Það hefur verið stungið
upp á þvi, að rikisstjórnin þar
styðji að fjöldabólusetningu til
að koma i veg fyrir farsótt. Svo
aldrei hefur verið eins nauðsyn-
legt og nú að vera vel á verði og
kynna sér hvernig á að bregðast
við þegar fólk veikist, hvernig á
að þekkja inflúensuna og vita
hvað gera skal. Búið er að gefa
út bók (What to do about the flu)
til leiðbeiningar fólki og upp-
lýsinga um nýjustu læknisráö.
Hana skrifaði dr. Pascal J.
Imperato, framkv.stjóri heilsu-
gæzlumála i New-Yorkborg.
Þar er að finna handhægar
leiðbeiningar um hvernig hægt
er aö gera varúðarráðstafanir
gegn smitun, og einnig um með-
ferð þessa algenga sjúkdóms,
sem getur verið hættulegur.
Eftir að hafa lesið þessa
auðskildu og gagnorðu bók þá
veit fólk meira um inflúensu-
faraldra liðinna ára — eins og
1918, 1957, 1968 og 1972, en það
Fiskirækt í
Sovétríkjunum
Fiskiræktarstöðvar við árnar
Volgu, Kura og Ural, sem allar
falla i Kaspiahafið, hafa stuðlað
að stækkun styrjustofnsins,
jafnvel svo að nú nálgast há-
markið, sem var á 5. tug ald-
arinnar. Styrjuhrognin sem
myndin er af, ganga venjulega
undir nafninu „Rússneskur
kaviar.” Innan Sovétrikjanna
eru 135 fiskræktarstöðvar, þar
sem ræktaður eru yfir 40
tegundir sjaldgæfra fiskteg-
unda, styrjur, lax o.fl., og
þ.á.m. ýmsar fisktegundir, sem
þarmeð hefur verið bjargað frá
útrýmingu. Fiskifræðingar hafa
sett þá ágizkun fram, að aðeins
eitt af hverjum 10 þúsund
seiðum þroskaðist við náttúrleg
skilyrði, en i fiskiræktarstöðv-
um hafa þau 300 sinnum meiri
möguleika. Onnur mynd sýnir
3ja mán. gamla styrju, sem
ræktuð var i fiskiræktarstöð I
lýðveldinu Azerbaijan, sunnan
Kákasusfjallanna. Styrjunni
verður sleppt i ána Kura, og
þaðan kemst hún i Kaspiahafið
Þriðja myndin sýnir sér-
fræðinga i fiskiræktarstöð i
Azerbaijan við aðgerð á styrju
til að flýta fyrir þroska hrogn-
veit lika meira um hvernig á að
búa sig undir næsta faraldur.
Þar er sagt, hvað gera skuli ef
sjúkdómseinkennin koma i ljós
hvað á að gera ef ekki næst i
lækni, hvað á að gera til að
koma i veg fyrir lungnabólgu,
og hver eru séreinkenni hjá
börnum. Fólk mun lika sjá, að
það getur gert meira en það
hugði fyrirfram til að verjast
inflúensu, og hvernig hægt er að
halda veikindum i skefjum, ef
til þeirra kemur. 1 þessari bók
er listi yfir 10 helztu varnarráð,
— jafnvel matarkúr. Og alveg
sérstakur kapituli er um Svina-
inflúensuna. A myndinni eru
rikisstarfsmenn aö prófa bólu-
efnið gegn Svinainflúensu. Dr.
Harry Meyer fær sprautu hjá
dr. Theodore Cooper.
rrrTiiiiTiiirf »