Tíminn - 18.07.1976, Qupperneq 15
Sunnudagur 18. júli 1976
TÍMINN
15
Rúðu-
brota-
far-
aldur
gébé Rvik — RUÖubrotafaraldur
gekk yfir miöbæinn I Reykjavik
aðfaranótt laugardagsins. Það
voru verzlanir á Laugavegi sem
urðu fyrir barðinu á nokkrum
mönnum, sem i flestum tilfellum
ætluðu að krækja sér i eitthvaö af
þeim vörum sem voru I glugg-
anum. En Bakkus var með i för-
inni og haföi þau áhrif að ekki
tókst sem skyldi. Lögreglunni
tókst að handsama alla þá, sem
brutu rúður þessa nótt.
Veður
hamlaði
veiðum
loðnubáta
ASK-Reykjavik. Bátarnir hafa
fiskað lftið frá þvi I gær, en hér er
kominn norð-austan kaldi og ekki
veiðiveður, sagði Hjálmar Vil-
hjálmsson fiskifræðingur um
borð i Bjarna Sæmundssyni við
Timann i gær. — Loðnan stóð
djúpt i gærkveldi og þau skip sem
eru hér hafa fengið þetta 100 tonn
hvert. Veiðisvæðiðer 90-100 milur
norður af Horni.
Hjálmar sagði, að loðnan sem
veiðsthefur nú undanfariðsé átu-
laus og smærri en sú loðna sem
bátarnir hafa verið að koma með
til Siglufjarðar. Þvf ætti hún að
geymast mun betur i bátunum en
fara ekki i graut eins og loðnan
sem fékkst fyrir skömmu.
— Þaö er engin vafi á að hér er
mikið magn af loðnu á stóru
svæði, sagði Hjálmar, hún þarf
bara að gefa sig, þá er eflaust
hægt að fiska hér feikimikið
magn.
Bátunum hefur fjölgað nokkuð
siðastliðna daga, en eftir 15. júli
voru engar takmarkanir á veið-
um. Nú hefur bætzt við flotann
m.a. Gisli Árni, Jón Finnsson,
Svanur og Bjarni ólafsson. Þá
var Börkur á leið á miðin.
Brotist í bát
á Akureyri
ASK-Rvik. Brotizt var inn i bát
sem lá við Slippstöðina á Akur-
eyri. Innbrotið átti sér stað s.l.
fimmtudagskvöld. Að sögn lög-
reglunnar á Akureyri, þá mun
einhverju af lyfjum hafa verið
stolið, en um hversu mikið magn
er að ræða er ekki vitaö. Ekki
hefúr enn tekizt að hafa uppá
þjófinum eða þjófunum.
Rólegt var á Akureyri i fyrra-
kvöld. Aðeins einn utanbæjar-
maður, Reykvikingur, gisti stein-
inn.
LANDVERND
ÁNING
VIÐ HRINGVEGINN
Kaupfélag Skaftfellinga
býður ferðafólk velkomið til
Vestur-Skaftafellssýslu og veitir því þjónustu:
í Vikurskála, er selur flestar vörur fyrir
ferðafólk, svo sem:
Matvörur — Ferðavörur — Sportvörur —
Ljósmyndavörur — Tóbak — Benzin, oliur
o.m.fl. Góð hreinlætisaðstaða.
í almennri sölubúð i Vik, allar algengar
neyzluvörur.
í Hóteli (opið allt árið).
í bifreiðaverkstæði er annast almennar
viðgerðir.
í smurstöð og hjólbarðaviðgerð.
í Esso, Shell og BP-þjónustu.
Á Kirkjubæjarklaustri:
í Skaftárskála, sem býður upp á flestar
vörur er ferðafólk þarfnast.
í almennri sölubúð, allar algengar neyzlu-
vörur og Esso, Shell og BP-þjónustu.
Verið velkomin á félagssvæði okkar!
Kaupfélag Skaftfellinga
Vík og Kirkjubæjarklaustri
Velkomin til Vopnafjarðar
Við bjóðum ferðafólki þjónustu okkar í
Söluskála, sem hefur á boðstólum ýmsa
grillrétti, öl, tóbak, sælgæti og ýmsar
smávörur fyrir ferðafólk. Esso-benzin og
oliur ásamt ýmsu öðru fyrir bilinn.
Bifreiðaverkstæði, er annast almennar
viðgerðir, smurning og gúmmiviðgerð.
Verzlunum okkar, er selja allar almennar
nauðsynjavörur ásamt gjafa-, sport- og
ferðavörum.
Kaupfélag Vopnfirðinga • Vopnafirði