Tíminn - 18.07.1976, Qupperneq 24
24
TÍMINN,
Sunnudagur 18. júli 1976
Bernhard
Nordh:
I JOTUNHEIMUM
FJALLANNA 20
mjór áll, en bæði til samans voru þau aðeins tæp míla á
lengd. Marzáin sem féll niður hjá Malgómaj, var háska-
legt vatnsfall með strengjum og fossum. Jónas vonaðist
til að hann kæmist víðar en um Marzvötnin á bátnum
sínum. Hann var ekki þyngri en svo, að auðvelt yrði að
draga hann yfir tangann niður að Kolturvatninu, og þá
gat hann róið til Lappakirkjunnar í Fattmomakk og
nýbyggðanna að Miklanesi, Laufskálum, Skriðufelli og
Saxanesi. Honum var opin leiðtil allra nýbyggðanna við
Kolturvatnið á þessum fararkosti.
Þegar Jónas hafði lokið við að tjarga bátinn kom Lars
til hans og spurði hvort hann ætti tjöru aflögu svo að
hann gæti bikað gamla bátinn sem dreginn hafði verið á
land. Jónas tók tjörudallinn, og f eðgarnir urðu samferða
niður á vatnsbakkann. Bátur Lars var að minnsta kosti
þrisvar sinnum þyngri en nýja kænan og það þurfti tals-
vert átak til þess að hvolfa honum.
— Þessi er nú að verða aflóga, sagði Jónas og stakk
hnífnum sínum inn í hálffúinn borðstokkinn.
— Hann dugar í sumar, og seinna verða einhver ráð
með að eignast nýjan.
Jónas byrjaði að skafa bátinn, en vinnugleðin var ekki
lengur eins mikil og áður. Allt í einu sagði hann:
— Nú geta Lapparnir komið með hverjum degi sem
líður. Ætlar þú að tala við þá?
— Ætli það ekki — ef þess er kostur.
— Ég f er með þér. Þeir skulda mér tvö hreindýr.
— Skulda þér hreindýr? sagði Lars.
— Standi þeir við orð sín, skulda þeir mér tvö hrein-
dýr. Ég samdi svo við Turra í fyrra, að hann skyldi láta
mig hafa eitt hreindýr fyrir hvern jarfa, sem ég dræpi.
— Haf i Turri falliztá það, þá færðu hreindýrin, Jónas.
— Ekki skyldi maður vera of viss um það. Sögðu
Lapparnir ekki einu sinni,að það væri þykkjulaust af
þeirra hálfu, þótt við byggjum hér — og nú eru þeir að
reyna að hrekja okkur burt?
— Við höfum ekki neinar sannanir fyrir því, að það sé
rétt, svaraði Lars stillilega. Við verðum að vita betri skil
á þessu áóur en við förum að f leipra með það.
— Það er þó betra að búast til varnar, áður en það er
um seinan, tautaði Jónas. Nei — maður getur ekki
treyst þessu Lappahyski. Mér verður gramt í geði, þegar
ég hugsa til þess, hve vingjarnlegir við höfum verið við
það. Þessir ræf lar halda náttúrlega, að við séum hræddir
við þá. En þeir skulu komast að raun um annað. Fái ég
ekki þessi hreindýr með góðu, skal ég ná þeim á annan
háft.
— Jæja? Ætlar þú að gerast ræningi,Jónas? spurði
Lars lágum rómi.
— Ræningi! Kallaðu það, hvað sem þér þóknast,
pabbi. Ennöll þessi vinsemd er þýðingarlaus. Fáum við
að vera óáreittir í Marzhlíð þótt við látum hreindýrin
þeirra í friði? Nei — við verðum reknir héðan á sama
hátt og aðrir, og þeir hafa þó einhverjir skammtað sér
dálitlar skaðabætur. Þegar ég skaut jarfana í vetur, fór
ég framhjá fjórum dauðum hreindýrum, en þegar ég
kom til baka, voru þau horf in. Það þykknaði í mér þá, en
nú er mér sama í hvers potti þau haf a lent.
— Þau hreindýr komu aldrei í neins manns pott.
— Hvernig veizt þú það.
— Ég tók þessi hreindýr.
— Þú? hrópaði Jónas forviða. Tókst þú hreindýrin,
pabbi?
— Já svaraði Lars án þess að minnsu svipbrigði
sæust á harðlegu andlitinu. Ég fór inn í Ketildal um
nóttina. Mig langaði ekki til þessað synir mínir gerðust
kjötþjófar.
Jónas tuldraði eitthvað í barm sér, en vannst ekki tími
til þess að segja neitt, sem skiljanlegt væri, því að nú var
kallað hástöf um heima við bæinn. Jónas tók undir eins til
fótanna og hljóp heim.
Það var Páll, sem kallað hafði. Hann nötraði allur af
æsingi.Jónas skildi undir eins, hvað á seyði var. Það var
aðeins eitt,sem gat gert Pál uppnæman. Nú var ekki tími
til þess að jagast um hreindýr og Lappa.
Páll hverf inn til sín, áður en bróðir hans kom í hlaðið.
En Jónas vissi, hvað hann átti að gera. Hann æddi beint
inn á þess að líta einu sinni við nýtjörguðum bátnum
sinum, kallaði másandi til Mörtu og skipaði henni að láta
matarbita í malinn og þreif síðan byssu sína. Hún var
hlaðin. Þessu næst brá hann ólinni, sem púðurhornið oa
haglapungurinn voru fest við, um öxl sér, og hrifsaði
malinn af Mörtu. Hún hafði verið f Ijót að taka til nestið,
enda var þetta ekki \f fyrsta skipti, sem Páll kvaddi
bróður sinn til ferðar í skyndi, þegar svipað stóð á. Það
var heldur ekki langrar stundar verk að þrífa stóru
G
E
I
R
I
Mongo...stórkostleg
pláneta! Þróun
hennar hefur verið
með eindæmum!
A botni þessa
sjávar eru kóngsrikin
Coralia og Neptuna..
A! Og þarna uppi búa
Fálkamennirnir, borg
þeirra er mjög háþróuð
og tæknivædd!
Geiri er á leið til
að hitta Döllu og
Zarkov.
WWÍ1ÍIM8WÍÍ
i::
1
SUNNUDAGUR
18. júli
8.00 Morgunandakt. Séra
Sigurður Pálsson vigslu-
biskup flytur ritningarorð
og bæn.
8.10 Fréttir. 8.15 Veðurfregn-
ir. Létt morgunlög.
9.00 Fréttir. Otdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir)
on”, forleikur eftir Cheru-
bini. Filharmoniusveitin i
Vin leikur, Karl Munching-
er stjórnar. b. Fiðlukonsert
1 D-dúr op. 61 eftir
Beethoven. Arhutr
Grumiaux og Concertegouw
hljómsveitin i Amsterdam
leika, Colin Davis stjórnar.
c. „Missa brevis” eftir
Zoltan Kodaly. Maria Gyur-
kovics, Edit Gaucs, Timoa
Cser, Magda Tiszay, Endre
Rösler og György Littassy
syngja með Budapestkórn-
um og Ungversku Rikis-
hljómsveitinni, Zoltan
Kodaly stjórnar.
11.00 Messa i Bústaðakirkju
(hljóðrituð 14. þ.m.) Prest-
ur: Séra Ólafur Skúlason.
Organleikari: Birgir Ás
Guðmundsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Frá Ólypipiuleikunum i
Montreal. Jón Ásgeirsson
segir frá. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.20 Minir dagar og annarra
Einar Kristjánsson frá Her-
mundarfelli spjallar við
hlustendur.
13.40 Miðdegistónleikar: Frá
útvarpinu I Köln. Flytjend-
ur: Carl Seemann og blás-
arar úr Consortium
Classicum. a. pianókvintett
op. 41 eftir Franz Danzi. b.
Fantasia i d-moll eftir
Mozart. c. Tilbrigði eftir
Mozart um stef eftir Gluck.
d. Blásarakvartett i Es-dúr
eftir KarlStamitz. e. Pianó-
kvintett i Es-dúr (K452) eft-
ir Mozart.
15.00 Hvernig var vikan?
Umsjón Páll Heiðar Jóns-
son.
16.00 islensk einsöngslög Snæ-
björg Snæbjarnardóttir
syngur lög eftir Jón Björns-
son og Eyþór Stefánsson.
Ólafur Vignir Albertsson
leikur á pianó.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Alltaf á sunnudögum.
Svavar Gests kynnir lög af
hljómplötum.
17.10 Barnatimi: Ágústa
Björnsdóttir stjórnar.
Kaupstaðir á íslandi: Akur-
eyri. Gisli Jónsson mennta-
skólakennari talar um
Akureyri fyrr og siðar.
Steinunn Bjarman les þýð-
ingu sina á kafla úr bókinni
íslandsferð eftir Estrid Ott.
18.00 Stundarkorn með pianó-
leikaranum Alexis Weissen-
berg. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 Orðabelgur Hannes
Gissurarson sér um þáttinn.
20.00 islensk tónlist Björn
Ólafsson og Sinfóniuhljóm-
sveit íslands leika Svitu nr.
2 i rimnalagastil eftir Sigur-
svein D. Kristinsson. Páll P.
Pálsson stjórnar.
20.10 Dagskrárstjóri um
stund. Ólafur Jónsson fil.
kand. ræður dagskránni.
21.40 Æviskeið I útlöndum.Jó-
hann Pétursson Svarf-
dælingur segir frá i viðræðu
við Gisla Kristjánsson. Ann-
ar þáttur: Fimmtiu ár með
sýningahópum i Vestur-
heimi.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Dansiög
Sigvaldi Þorgilsson dans-
kennari velur lögin og kynn-
ir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.