Tíminn - 18.07.1976, Page 26
26
TíMINN
Sunnudagur 18. júli 1976
KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR —
Hin ágæt-
asta afþrey-
ingarmynd
Þeir félagar standa I stórræOum, en þrátt fyrir þaö er ekki ailtaf
hátt á þeim risiö.
KVIKMYNDA-
HORNIÐ
Umsjónarmadur
Haltdór
Valdimarsson
Tónabió:
Þrumufleygur og Léttfeti
Leikstjórn: Michael Cimino
Aðalhlutverk: Ciint Eastwood,
Jeff Bridges, Geoffrey Lewis,
Catherine Bach, Gary Busey, Roy
Jenson, Bill McKinney, George
Kennedy.
Fifldjörf bankarán eru ekki
nýnæmi á hvita tjaldinu. kvik-
myndahúsgestir hafa þegar feng-'
ið ótaldar kennslustundir i skipu-
lagi, undirbúningi og framkvæmd
alls kyns rána og þjófnaða — það
svo að annar hver stráklingur
verður að teljast sérfræðingur á
þvi sviði.
Þvi er þó ekki að neita að Clint
Eastwood og félögum tekst að
koma nokkuð á óvart með ýmsum
þáttum myndarinnar um Þrumu-
fleyg og Léttfeta, einkum þar sem
aðdragandi ránsins er óvenjuleg-
ur um margt, svo og vegna áður
litt kannaðra möguleika, sem
þeir benda á i þessum málum.
Við höfum áður séð til banka-
ræningja, sem ganga ákveðið til
verks, skipuleggja aðgerðina til
hins ýtrasta, framkvæma siðan
með nákvæmni sem sæma myndi
hverjum verkfræðingi. Við höfum
séð þá ráðast inn i banka á af-
greiðslutima, beita skotvopnum
til að neyða peninga af hrelldum
bankastarfsmönnum, og hlaupast
siðan á brott með fenginn. Við
höfum einnig séð ræningja
sprengjá sér leið inn i banka-
hvelfingar að nóttu til með dyna-
miti eða öðru sprengiefni.
En, mér vitanlega höfum við
ekki fyrr séð ræningja beita fyrir
Jeff Bridges.
sig stórri fallbyssu, til þess að
komast að fjármunum.
Þráðurinn
Söguþráður myndarinnar er
léttur og leikandi, með hæfilegu
alvöruivafi þó. t upphafi hennar
liggja leiðir þeirra Þrumufleygs
og Léttfeta saman, á óvenjulegan
máta. Þaðan i frá stendur og með
þeim vinátta, sem ér engu siður
óvenjuleg og endist þeim þar til
yfir lýkur.
Þrumufleygur er á flótta undan
félögum sinum fyrrverandi. Þeir
álita að hann hafi svikið þá i
hendur lögreglunni og hyggja á
hefndir. Léttfeti verður til þess að
bjarga honum, hvað eftir annað,
þar til loks hraðakstur hans nægir
ekki lengur til, og þeir falla báðir
i hendur ofsækjandanna.
Þegar á hólminn kemur skýrast
málin þó nokkuð, og félagarnir
ákveða að fyrirgefa Þrumufleyg
syndir hans, slást i för með þeim
Léttfeta og leita sameiginlega
ævintýra.
Samkvæmt uppástungu Létt-
feta ákveða þeir að reyna aftur
við sama banka, á nákvæmlega
sama hátt — þar sem enginn mun
vera viðbúinn slikri fifldirfsku.
Hvað þeir og gera.
Eastwood i skuggann
Án þess að halla megi á einn
eða annan, verður að segjast eins
og er að Jeff Bridges, i hlutverki
Léttfeta, stelur senunni algerlega
frá hetjunni Eastwood og öðrum
gamalreyndum köppum, sem i
myndinni koma fram. Allt frá
upphafi myndarinnar, þegar
hann beitir „lagni” við að komast
yfir farartæki, þar til i lokin, þeg-
ar hann hlýtur uppfyllingu
drauma sinna i vegarnesti, fer
hann með hlutverk sitt ákveðn-
um, en þó varfærnislegum tökum.
Clint Eastwood fellur i skugg-
ann að þessu leyti, ásamt þeim
Kennedy og Geoffrey Lewis. Ef til
vill leitar Eastwood sjálfur
skuggans lika, beinir athyglinni
að þeim sem verðskuldar hana
helzt. Hann hefur sýnt til þess
ákveðna tilhneigingu i fyrrL
myndum sinum, ólikt mörgum
öðrum kvikmyndaleikurum —
einkum og sér i lagi þeim sem
hafið hafa feril sinn i hetjuhlut-
verkum — sem virðastþola illa að
vélin beinist að öðrum nösum en
þeirra eigin.
Annars er flest gott um kvik-
mynd þessa að segja. Hún er ef til
vill ekki sérlega spennandi, enda
vafasamt að henni hafi verið það
ætlað frá höfundarins hendi. Hún
fjallar á nokkuð snarpan og
skemmtilegan máta um samband
mannanna fjögurra, einkum
sambandið milli Léttfeta og
Rauða Leary, sem er nokkuð
brösótt og endar með ósköpum.
Ber þar margt fyrir sem gaman
má af hafa, enda njóta báðir leik-
ararnir sin i hlutverkum og leika
af innlifun.
Efni myndarinnar sem slikt er
að visu nokkuð langsótt, en þó
engu að siður hugsanlegt — jafn-
vel um það bil að verða liklegt,
þvi sú tið rennur brátt upp að
venjulegir bófar vopnist fallbyss-
um, æðri bófar kjarnorkuvopn-
um.
Ef finna ætti að henni að ein-
hverju leyti, þá er það helzt til að
að telja að hún er' full langdregin
og hæggeng á köflum.
Að öðru leyti fær myndin hin
beztu meðmæli, sem prýðis af-
þreying og jafnvel semsiðaboð-
andi mynd að nokkru leyti, þvi
hún hefur til að bera boðskap,
þótt hann sé ef til vill nokkuð vel
falinn.
Clint Eastwood.
KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR — KVIKMYNDIR —