Fréttablaðið - 25.11.2005, Side 2

Fréttablaðið - 25.11.2005, Side 2
2 25. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR STJÓRNMÁL Einar Oddur Kristj- ánsson þingmaður Sjálfstæðis- flokksins og varaformaður fjár- laganefndar segist vona að úr einkaneyslu landsmanna dragi á næsta ári og tekjur ríkissjóðs minnki af þeim sökum. „Ég vona það innilega vegna þess að skuldasöfnun einstaklinga á þessu ári er skelfileg og hefn- ir sín grimmilega,“ segir Einar Oddur. Samkvæmt áliti meirihluta fjárlaganefndar verður afgang- ur ríkissjóðs um 19 milljarðar króna á næsta ári. Í annarri umræðu um fjárlagafrumvarp- ið á Alþingi í gær kom fram í máli Einars Odds að hann teldi líklegt að þessi afgang- ur yrði í raun mun minni. „Ég vona að þetta verði svo. Ég vona að gengið láti undan. Ég vona að það dragi úr kaupum á erlendum varningi og einkaneyslan minn- ki. Það verður að gerast á næsta ári vegna þess að ég tel að fram- leiðsluatvinnuvegirnir hafi ekki meira þanþol. Ég vona sem sagt að gengið láti undan og kaup- mátturinn rýrni og þar með að tekjur ríkissjóðs minnki.“ Einar Oddur telur að ríkis- sjóður hafi vel efni á því að sjá af umtalsverðum tekjum. „Þetta eru óeðlilegar tekjur sem ríkis- sjóður hefur í dag sem við sjáum í þessum mikla viðskiptahalla. Það er því óeðlilegt að ríkis- sjóður sé að hafa svona miklar tekjur og ég vona að þær hverfi því við höfum ekkert með þær að gera.“ Einar Oddur sagði það viðvar- andi veikleika Íslendinga að láta undan launakröfum og kallaði það lausung í efnahagslífinu. Einar Oddur gagnrýndi sér- stakar heimildir stjórnvalda til fjárútláta og nefndi sérstak- lega heimild ríkisins til að fjár- magna tónleikahöll í Reykjavík. „Þátttaka ríkisins á að vera að minnsta kosti 6 milljarðar króna. Ef ríkið á að taka þátt í kostnaði við að reisa þessa tón- listarhöll þá verður að leggja það fyrir þingið. Ég hef ástæðu til að ætla að menn séu að átta sig á að svona lausung gengur ekki. Það þarf að láta reyna á það hvort þingið sé sammála svona útgjöldum.“ johannh@frettabladid.is �������������������� ������������������ �������������������������������� ������������������������� ���������������� ��������������� ������������ �������������������� ��� ���������������� ������������ ������������������� ���������� DÓMSMÁL Framkvæmdastjóri nektardansstaðar í Reykjavík hefur verið dæmdur til að borga 180.000 krónur í sekt fyrir að brjóta lög um atvinnuréttindi útlendinga. Mál var höfðað á hendur honum vegna þriggja 24 ára gamalla tékkneskra nektardans- meyja sem komu til landsins í byrjun apríl og ætluðu að starfa hér fram í maí. Framkvæmdastjórinn sagðist hafa staðið í þeirri trú að konurn- ar mættu starfa hér í þrjá mán- uði án atvinnuleyfis, en hann tilkynnti um komu þeirra til Hagstofunnar. Dómurinn taldi manninn hafa brotið af sér af gáleysi, en honum hafi borið að afla atvinnuleyfis fyrir dansarana. Greiði maðurinn ekki sektina innan mánaðar bíður hans hálfs- mánaðar fangelsi. Þá þarf hann að greiða sakarkostnað upp á 198.929 krónur. - óká Nektardansstaður í Reykjavík: Sótti ekki um atvinnuleyfi BAGDAD, AP Þrjátíu manns biðu bana þegar bíl hlöðnum sprengi- efni var ekið að sjúkrahúsi í bænum Mahmoudiya og hann svo sprengdur í loft upp. Talið er að árásarmaðurinn hafi ætlað að drepa bandaríska hermenn sem voru að heimsækja börn á spítalann með leikföng í farteskinu. Honum tókst þó ekki að aka bifreið sinni lengra en að öryggishliði sjúkrahússins þar sem hann svo kveikti á vítisvél- inni. Á meðal þeirra þrjátíu sem biðu bana voru þrjár konur og tvö börn. 35 slösuðust, þar á meðal nokkrir hermenn. Þá létust ellefu manns í bænum Hillah þegar bílsprengjuárás var gerð á hóp fólks sem var að kaupa sér svaladrykki af götusala síð- degis. Latih Kubba, talsmaður rík- isstjórnarinnar, sagði á blaða- mannafundi í gær að búast mætti við að uppreisnarmenn myndu færast í aukana á næstu vikum til að spilla fyrir kosningunum 15. desember næstkomandi. Sú kenning virðist eiga við rök að styðjast því í fyrradag réðust menn íklæddir herklæðum inn á heimili Khadim Sarhid al-Hemai- yem, stjórnmálamanns úr röðum súnnía, og skutu hann og þrjá syni hans og tengdason til bana. - shg LÍK Á BÖRUM Þrjátíu létust í árás á sjúkrahús í Mahmoudiya í gær en innandyra voru bandarískir hermenn að útbýta leikföngum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Á fimmta tug fórust í tveimur sjálfsmorðsárásum í Írak í gær: Öflug sprenging við sjúkrahús BAUGSMÁL Sigurður Tómas Magnússon, sérstakur ríkissak- sóknari í Baugsmálinu, kærði í gær til Hæstaréttar þann úrskurð Héraðsdóms Reykja- víkur að honum sé ekki heimilt að fjalla um þá átta ákæruliði sem enn eru fyrir dómstólum. Sigurður Tómas kveðst gera þá kröfu að úrskurðurinn verði felldur úr gildi og viðurkennt verði almennt og sérstakt hæfi hans til saksóknar í málinu. Sigurður Tómas æskir þess einnig að Hæstiréttur dæmi um það hvort Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hafi verið hæfur til þess að setja hann sérstakan saksóknara til að fjalla um umrædda ákæruliði. Ekki reyndi á það atriði þegar úrskurður féll í Héraðsdómi Reykjavíkur síðastliðinn þriðju- dag um að Sigurður Tómas væri ekki bær til þess að fjalla um málið. Settur saksóknari og verj- endur sakborninga í Baugsmál- inu hafa frest til þess að skila greinargerðum vegna kærunn- ar til klukkan 16 í dag. - jh Saksóknari í Baugsmálinu kærir úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar: Vill dóm um hæfi Björns SIGURÐUR TÓMAS MAGNÚSSON SETTUR SAKSÓKNARI Hann vill einnig fá úrskurð Hæsta- réttar um hæfi dómsmálaráðherra til að skipa sig sérstakan saksóknara. SPURNING DAGSINS Guðmundur, verður ykkur nokkur skotaskuld úr tenging- unni? „Nei, okkur verður ekki skotaskuld úr henni, en Skotarnir skulda okkur.“ Guðmundur Gunnarsson er framkvæmda- stjóri Farice. Skoskur gröfumaður sleit strenginn í sundur við Inverness í fyrradag. ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� Óskar þess innilega að tekjur ríkissjóðs minnki Einar Oddur Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir miklar tekjur ríkissjóðs byggjast á einka- neyslu og kveðst vona innilega að úr þeim dragi og afgangur ríkissjóðs rýrni. Hann vill einnig lægra gengi krónunnar. Sérstakar heimildir ríkisstjórnarinnar til milljarða fjárútláta kallar Einar Oddur lausung. Þingmenn Samfylkingarinnar í minni- hluta fjárlaganefndar leggja til að tekjuaf- gangur ríkissjóðs verði tæpir 24 milljarð- ar króna í stað tæplega 20 milljarða eins og meirihluti nefndarinnar leggur til. Þeir leggja til að svigrúm það sem ríkisstjórnin telur til skattalækkana verði notað til að lækka matarskatt og hækka persónuafslátt. Þá leggja nefnd- armennirnir fram tillögur um sparnað í ríkisrekstri og breyttar áherslur. Þær fela meðal annars í sér aukin framlög til mennta-, velferðar- og byggðamála eða sem nemur 3,5 milljörðum króna. Fulltrúar vinstri grænna í fjárlaga- nefnd segja væntingar ríkisstjórnarinnar vera í takmörkuðum takti við raunveru- leikann. Ruðningsáhrif stóriðjustefn- unnar væru mikil og skattastefnan þjónaði fremur hátekjufólki en hinum sem minna hafa. Í máli Jóns Bjarna- sonar, þingmanns vinstri grænna kom fram að á viðurkenndan mælikvarða hefði misskipting aukist um þriðjung frá árinu 1995. Stjórnarandstæðinar gagnrýndu harðlega fjarveru fimm ráðherra í upp- hafi annarrar umræðu um fjárlaga- frumvarpið í gær. Þeir beindu spjótum sérstaklega að Þorgerði Katrínu Gunn- arsdóttur menntamálaráðherra sem stödd er í opinberum erindagjörðum í Senegal og kemur aftur til til starfa 5. desember næstkomandi. Umræður um fjárlagafrumvarpið stóðu langt fram á kvöld. STJÓRNARANDSTÆÐINGAR DEILA Á FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ: Aukin misskipting á 10 árum EINAR ODDUR KRISTJÁNSSON „Það er því óeðlilegt að ríkissjóður sé að hafa svona miklar tekjur og ég vona að þær hverfi því við höfum ekkert með þær að gera.“

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.