Fréttablaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 6
6 25. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR ARFTAKI HARRY POTTER? „Hrein skemmtun, stanslaust fjör.“ – The Times Spielberg kvikmyndar ÍSLENSK A A U G L† SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - V ER 3 03 72 1 1/ 20 05 KJÖRKASSINN Á að kaupa tæki fyrir tollgæsl- una til að gegnumlýsa gáma til að sporna gegn fíkniefnasmygli? Já 89% Nei 11% SPURNING DAGSINS Í DAG Ríkir trúfélagafrelsi á Íslandi? SAMGÖNGUR Nýtt íslenskt skipafélag er í burðarliðnum og hyggur félag- ið á reglulega fragtflutninga á milli Eyjafjarðar og Evrópu snemma á næsta ári. Viðræður við væntanlega fjárfesta standa yfir en Magnús Þór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, segir fjármögnun langt komna. „Þar sem eigendahópurinn er ekki fullmótaður er of snemmt að gefa upp hverjir eigendurnir eru en þó get ég sagt að þeir verða bæði norskir og íslenskir. Skipafélagið verður skráð á Íslandi og með höf- uðstöðvar á Akureyri en hugsanlegt er að afgreiðslustaðir verði einnig á öðrum þéttbýlisstöðum á Eyjafjarð- arsvæðinu,“ segir Magnús. Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarð- ar hefur á yfirstandandi ári skoðað leiðir til að lækka flutningskostnað fyrirtækja á Eyjafjarðarsvæðinu og auka þar með samkeppnishæfni þeirra. Niðurstaða atvinnuþróun- arfélagsins er að vænlegast sé að koma upp beinum flutningum á milli Norðurlands og helstu mark- aða í Evrópu, en Magnús segir að um 20 prósent af öllum útflutningi Íslendinga komi frá Eyjafjarðar- svæðinu. „Með tilkomu skipafélagsins geta fyrirtæki á Eyjafjarðarsvæð- inu, sem standa í inn- og útflutningi, lækkað flutningskostnað sinn veru- lega því ekki verður nauðsynlegt að aka vörum í stórum stíl á milli höfuðborgarsvæðisins og Norður- lands,“ segir Magnús. Til að halda stofnkostnaði niðri er gert ráð fyrir að skipafélagið taki á leigu fimm til sex þúsund tonna gámaflutningaskip sem flutt geti á bilinu fjögur til fimmhundruð gáma í senn. „Til að tryggja lág flutningsgjöld verður kostnaði og yfirbyggingu félagsins haldið í lágmarki en þess þó gætt að félag- ið hafi fjárhagslega burði til að halda úti skiparekstri með litlum tekjum fyrstu árin. Áfangastað- ir félagsins erlendis verða vænt- anlega í Bretlandi, Danmörku og Hollandi og til að byrja með verður siglt tvisvar í mánuði á milli allra áfangastaðanna,“ segir Magnús. kk@frettabladid.is Nýtt skipafélag stofnað á Akureyri Íslenskir og norskir fjárfestar hyggjast koma á fót skipafélagi sem sigla mun með vörur á milli Eyjafjarðar og Evrópu. Fjármögnun er langt komin en með tilkomu skipafélagsins getur flutningskostnaður eyfirskra fyrirtækja lækkað. HAFNARSVÆÐIÐ Á AKUREYRI Aðstaða hins nýja skipafélags verður að öllum líkindum á Oddeyrartanga og hafa átt sér stað viðræður þess efnis á milli hafnaryfirvalda á Akureyri og forsvarsmanna nýja skipafélagsins. MAGNÚS ÁSGEIRSSON Framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar segir við- ræður hafnar við væntanlega viðskiptavini nýja skipafélagsins. DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur hefur vísað frá máli sem Læknafélag Íslands höfðaði fyrir hönd lækna í starfsnámi um rétt þeirra til til hvíldartíma sam- kvæmt kjarasamningi fjármála- ráðherra og Læknafélagsins. Málið var höfðað á hendur Land- spítala - háskólasjúkrahúsi, sem krafðist þess á móti að málinu yrði vísað frá. Úrskurðurinn tekur ein- ungis til frávísunarkröfunnar. Í dómsúrskurði héraðsdóms segir meðal annars að málatil- búnaður að hálfu Læknafélags- ins sé óljós í stefnu að því leyti að þar sé fjallað bæði um frítöku- rétt samkvæmt kjarasamningi og hvíldarrétt samkvæmt lögum. Fléttist umfjöllun um þessi atriði saman með óskýrum hætti. Þá séu tilvitnaðar fundargerðir samstarfsnefndar Landspítala - háskólasjúkrahúss og Læknafé- lags Íslands ekki skýrar að þessu leyti, þar sem hugtökunum frí- tökurétti og hvíldarrétti virðist blandað saman. Í úrskurðinum er ekki kveðið á um hvort unglæknar í Félagi ungra lækna eigi inni hvíldartíma hjá Landspítala - háskólasjúkra- húsi á grundvelli gildandi laga, enda endurspegli kröfugerð og málsástæður Læknafélagsins á engan hátt slíkan ágreining. Ekki virðist vera ágreiningur með Landspítala og Læknafélaginu um að viðkomandi lagaákvæði taki til unglækna eða þeirra félagsmanna Læknafélagsins sem tilgreindir séu í kröfugerð Læknafélagsins. Málinu var vísað frá, sem fyrr segir, og Læknafélagi Íslands gert að greiða Landspítala - háskóla- sjúkrahúss 150 þúsund krónur í málskostnað. - jss Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Læknafélagsins og Landspítalans: Máli unglækna vísað frá UNGLÆKNAR Tveir unglæknar við vinnu sína á slysadeild - bráðamóttöku Landspít- ala - háskólasjúkrahúss í Fossvogi. VÍSINDI Frumkvöðull á sviði klón- unar og stofnfrumurannsókna hefur sagt af sér embætti eftir að upp komst að hann hefði notað eggfrumur starfsmanna sinna við tilraunirnar. Prófessor Hwang Woo-suk, frá Suður-Kóreu, öðlaðist heimsfrægð á sínum tíma fyrir að takast fyrst- um manna að klóna fósturvísa og stofnfrumur úr mönnum. Talið var að gæði klónunarinnar væru slík að á grundvelli tækninnar sem hann þróaði væri hægt að framleiða stofnfrumur til ígræðslu í fólk sem þjáist af sjúkdómum á borð við syk- ursýki og parkinsonsveiki. Um nokkra hríð hefur grunur leikið á að Woo-suk hafi fengið eggfrumur frá kvenkyns undir- mönnum sínum á rannsóknarstof- unni en slíkt þykir brjóta í bága við skráðar jafnt sem óskráðar siðareglur þar sem talsverð- ar líkur eru á að undirsátunum finnist þeir vera undir þrýstingi að gefa eggin. Í gær viðurkenndi hann að þannig hefði verið í pott- inn búið en bætti þó við að á þeim tíma sem tilraunirnar fóru fram hefði hann ekki vitað hvaðan eggin væru komin. Auk þess að biðjast afsökunar sæi hann sig knúinn til að segja af sér öllum opinberum embættum, þar á meðal forstöðu Alþjóðlegu stofnfrumurannsókna- stöðvarinnar sem hann stofnaði fyrr í mánuðinum. - shg Suður-kóreskur vísindamaður sem fyrstum tókst að klóna fósturvísa úr mönnum: Notaði egg starfsmannanna BEÐIST AFSÖKUNAR Dr. Hwang Woo-suk kvaðst harma að hafa ekki leyst frá skjóð- unni fyrr en nú. FRÉTTABLAÐIÐ/AP DÓMSMÁL Hæstréttur mildaði í gær tveggja ára fangelsis- dóm héraðsdóms yfir Herði Má Lútherssyni um tvo mánuði. Hann skal sæta fangelsi í 22 mánuði fyrir brot sín, en það eru áfengis- og fíkniefnabrot, ýmis umferðarlagabrot ásamt brotum á vopnalögum. Við húsleit hjá Herði fannst svokölluð litkúlubyssa, en Hörður hefur ekki skotvopnaleyfi. Hörð- ur bar við að byssan væri ónýt. Hann hafði ítrekað verið góm- aður með fíkniefni og oftsinnis ekið réttindalaus undir áhrifum slíkra efna. - saj Hæstiréttur mildar dóm: Dæmdur í 22 mánaða fangelsi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.