Fréttablaðið - 25.11.2005, Page 10

Fréttablaðið - 25.11.2005, Page 10
10 25. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR FJÖLMIÐLAR „Við erum núna að skoða möguleikann á því að fara með öll tölublöðin í morgundreif- ingu,“ segir Karl Garðarsson, rit- stjóri Blaðsins. Samkvæmt nýrri könnun IMG Gallup á lestri dagblaða nna blasir við að m e ð a l le s t u r Blaðsins er kominn tals- vert niður fyrir mældan lestur þegar Blaðið var nýtt á markaði eða úr 35 prósenta m e ð a l l e s t r i l a nd s m a n n a undir fimm- tugu og niður í 29 prósenta lestur hjá sama hópi. Í millitíðinni náði Blaðið 37 prósenta lestri og fellur því um átta prósentustig frá því í síðustu könnun, eða um rúm tuttugu pró- sent. „Fyrsta lestrarkönnunin var gerð þegar Blaðið hafði verið á markaði í um þrjár vikur. Það var ákveðin spenna þá eins og oft er þegar eitthvað er nýtt,“ segir Karl. Karl bendir á áberandi mikinn lestur á laugardagsútgáfu Blaðsins og telur að skýringin sé að laugar- dagsblaðinu er dreift á morgnana. „Laugardagsblað Morgunblaðsins hefur 48 prósenta lestur á höfuð- borgarsvæðinu og Blaðið nær þar 46 prósentum þannig að þar munar ekki miklu,“ segir Karl. Hann er ekki fús til þess að upplýsa nánar um hvernig hann hyggst koma blaðinu öllu í svo- kallaða morgundreifingu en ljóst má telja að erfitt gæti reynst að nýta þjónustu Íslandspósts til þeirra verka. „Þetta er hlutur sem við erum ennþá að skoða og höfum verið að fara yfir á undan- förnum mánuðum,“ segir Karl. Blaðinu er dreift ókeypis í um 80 þúsund eintökum. Til samanburðar við þessa útkomu Blaðsins má benda á að þegar Fréttablaðið hafði verið í dreifingu í svipaðan tíma í októ- ber 2001, mældist meðallestur þess vera 54 prósent. Í sömu könnun mælist lestur Fréttablaðsins vera 71 prósent meðal allra landsmanna og hefur þar dvínað um eitt prósentustig frá könnun sem gerð var á svip- uðum tíma í fyrra. Heildarlestur Morgunblaðsins dregst saman um þrjú prósentustig á sama tímabili og situr nú í 51 prósenti þegar litið er til allra aldurshópa. saj@frettablaðið.is 67,6% 46,1% M O R G U N B LA Ð IÐ 51% 16,7% 32,2% 17,9% D V 27,4% B LA Ð IÐ 64,1% FR ÉT TA B LA Ð IÐ 40,4% 28% M A R K A Ð U R IN N 41,9% 23,2% TÍ M A R IT M B L 29,6% 40,4% 34,1% M YN D B Ö N D M Á N A Ð A R IN S 40,1% D A G SK R Á IN 52,6% B IR TA 46,8% 27,7% VI Ð SK IP TA B LA Ð M B L 93,5% SJ Ó N VA R P IÐ 76,3% ST Ö Ð 2 74,5% 92,2% 68,3% 71,9% SK JÁ R 1 27,9% SI R K U S 15%13,9% ST Ö Ð 2 B ÍÓ 15,1% 25,5% ST Ö Ð 2 + edda.is Ný ljóðabók frá Þórarni Eldjárn Ný og fjölbreytileg ljóðabók eftir eitt vinsælasta skáld þjóðarinnar, Þórarin Eldjárn. Hagmælisgrey um ljóðið Víst er það löngu ljóst og bert að ljóðið ratar til sinna. Samt finnst mér ekki einskisvert að ýta því líka til hinna. „Annars er bókin hans Þórarins sérlega fín. Þarna eru bæði rímuð kvæði og órímuð, alvörugefin, glettin, smáskrítin og djúpvitur - vald Þórarins á málinu er einstakt.“ Egill Helgason, Silfur Egils, visir.is LÍFEYRISMÁL Lífeyrisþegar bera sjálfir ábyrgð á því að Trygginga- stofnun hafi réttar forsendur til útreiknings bóta á hverjum tíma. Þetta kemur fram í greinargerð sem TR hefur sent frá sér vegna þeirrar umræðu sem uppi hefur verið að undanförnu um ofgreiðslur og van- greiðslur bóta til lífeyrisþega. Fréttablaðið greindi frá því í gær að rúmlega eitt hundrað manna skuldi TR milljón eða meira hver, vegna ofgreiddra bóta sem þeir hafa fengið, langflestir þessa hóps eru öryrkjar. Þessar greiðsl- ur eru afturkræfar leggi viðkom- andi fram gögn um að stuðst hafi verið við rangar tekjuupplýsingar. Í greinargerðinni er undirstrikað að til að auka líkur á því að réttar bótafjárhæðir séu greiddar er sú skylda lögð á herðar lífeyrisþegum að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til að hún geti tekið ákvörðun um bótarétt og bótafjárhæðir, svo og um allar breytingar sem verða á yfirstand- andi ári. Í því skyni að lágmarka ofgreiðslur eru gildandi tekjuáætl- anir sendar með mánaðarlegum greiðsluseðlum til lífeyrisþega. Í almannatryggingalögum er mælt fyrir um að Tryggingastofn- un skuli áætla tekjur lífeyrisþega fyrir hvert almanaksár. Tekjuá- ætlun Tryggingastofnunar byggir á nýjustu tiltæku tekjuupplýsing- um. Stofnunin sendir lífeyrisþeg- um tekjuáætlunina og gefur þeim kost á að gera athugasemdir við hana. Á grundvelli áætlunarinnar og breytinga frá lífeyrisþegum eru bætur reiknaðar út fyrirfram fyrir viðkomandi ár. TR undirstrikar að afar mikilvægt sé að lífeyrisþegar láti stofnunina vita ef breyting- ar verða á fjárhagslegum högum þeirra, þannig að ekki verði um ofgreiðslur eða vangreiðslur til þeirra að ræða. - jss Áminning Tryggingastofnunar vegna of- eða vangreiðslna tekjutengdra bóta: Lífeyrisþegar bera ábyrgðina LÍFEYRISÞEGAR Geta ráðið öllu um hvort þeir fá þær bætur sem þeim ber með því að veita Tryggingastofnun réttar upplýsing- ar um breytingar á fjárhag. JÓLAMARKAÐUR Jólamarkaðurinn í Stuttgart, sem á sér aldalanga hefð, var opnaður í gær. Hér skreytir Jörg Kumfert söluskálann sinn í sönnum jólaanda. MYND/AP GÓÐGERÐARMÁL Jólasveinaþjónusta Skyrgáms afhenti nýlega Hjálpar- starfi kirkjunnar tæpa hálfa milljón til aðstoðar börnum í Úganda sem misst hafa báða foreldra sína úr alnæmi. Jólasveinaþjónusta Skyrgáms hefur verið starfrækt í sjö ár og hefur Hjálparstarf kirkjunnar notið góðs af starfsemi hennar. - sk Jólasveinaþjónusta Skyrgáms: Börn í Úganda fá aðstoð September Október DAGBLÖÐ Lestur Blaðsins dregst saman um tuttugu prósent Ný könnun á vegum IMG Gallup leiðir í ljós að lestur Blaðsins hefur minnkað um rúm tuttugu prósent frá því í síðustu könnun. Ritstjóri Blaðsins telur sóknartækifærin liggja í því að dreifa blaðinu á morgnana. KARL GARÐARSSON RITSTJÓRI BLAÐSINS Karl segir að hug- myndir um að koma Blaðinu í morgun- dreifingu séu í mótun en vill ekki útskýra þær nánar. VIÐSKIPTI Halldór Ásgrímsson for- sætisráðherra hefur skipað ell- efu manna nefnd til að fjalla um forsendur alþjóðlegrar fjármála- starfsemi á Íslandi og samkeppn- ishæfni landsins á því sviði. Í nefndinni eru: Sigurður Ein- arsson, stjórnarformaður KB banka sem er formaður nefnd- arinnar, Bolli Þór Bollason ráðu- neytisstjóri, Baldur Guðlaugsson ráðuneytisstjóri, Pálmi Haralds- son framkvæmdastjóri, Ásdís Halla Bragadóttir, forstjóri BYKO, Jón Sigurðsson seðla- bankastjóri, Haukur Hafsteinsson framkvæmdastjóri LSR, Hulda Dóra Styrmisdóttir ráðgjafi, Guðjón Rúnarsson framkvæmda- stjóri, Halldór B. Þorbergsson hagfræðingur og Katrín Ólafs- dóttir aðjúnkt. Gert er ráð fyrir að nefndin ljúki störfum næsta vor. Fjármálastarfsemi á Íslandi: Nefnd skipuð FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Apríl Október September Október MEÐALLESTUR TÍMARITA SJÓNVARP Uppsafnað áhorf fyrir vikuna MEÐALLESTUR DAGBLAÐA DAGBLÖÐIN Ný könnun IMG Gallup leiðir í ljós að lestur Blaðsins er minni nú en hann var þegar blaðið hóf göngu sína. Forráðamenn hyggja á breytingar í dreifingu til þess að styrkja stöðu Blaðsins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.