Fréttablaðið - 25.11.2005, Síða 18
18 25. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
Afmælistilboð
stærstu fiskbúða landsins
Fiskbúðin Hafberg er 10ára - Fiskbúðin Vör er 17 ára
LAXAVEISLA Í DAG
Laxaflök...........aðeins.. 790,-kr.kg
Laxasneiðar......aðeins.. 590,-kr.kg
Lax í heilu.........aðeins..490,-kr.kg
komdu og gerðu góð kaup í tilefni afmæli okkar!!!!
Þú mátt ekki missa af þessu tilboði.
Eigum til fullt af humri, stórum sem smáum,
ásamt hinum landsfrægu risarækjum.
NEYTENDAMÁL Jón Bjarnason, þing-
maður vinstri grænna, spurði
viðskiptaráðherra á Alþingi í
gær, hvort til álita kæmi að setja
þjónustukvaðir á fyrirtæki með
almannaskyldur eða ráðandi
markaðshlutdeild þar sem til
dæmis yrði kveðið á um hámarks-
biðtíma eftir svörun í þjónustu-
síma.
„Hvatinn að þessari fyrirspurn
er persónulegs eðlis. Ég þurfti
nauðsynlega að ná í þjónustusíma
Símans 800 7000 og eftir að hafa
beðið á línunni í einar 15 mínútur
kom svarið að ég væri númer 30
á biðlista.“ Jón sagði að nákvæm-
lega sama sagan hefði endurtekið
sig síðar sama dag. Spyrja mætti
ráðherra neytendamála hvort
þetta væru eðlilegir viðskipta-
hættir.
Valgerður Sverrisdóttir, ráð-
herra neytendamála, sagði að
hið einfalda og stutta svar væri
nei. „Hvorki hafa verið settar
né kemur til álita að setja slík-
ar kvaðir á þjónustuaðila með
almannaskyldur eða ráðandi
markaðshlutdeild þar sem kveðið
yrði á um hámarksbiðtíma.“ Val-
gerður taldi að neytendur hlytu
að beina viðskiptum sínum annað
fengju þeir ekki fullnægjandi
þjónustu. „Markaðurinn sér um
þetta sjálfur.“
Valgerður bætti við að í sam-
keppnisrétti væri ekki bannað
að vera markaðsráðandi en ekki
mætti misnota þá aðstöðu. - jh
SÍMINN Engar kvaðir settar á Símann segir
ráðherra neytendamála.
Beið í fimmtán mínútur í síma og var þá sagt að hann væri númer 30 í röðinni:
Spurt um þjónustu Símans
SUNNANMENN Í NORÐRINU Kóreumara-
þonið var haldið í Pjongjang í Norður-
Kóreu í vikunni. 150 suður-kóreskir hlaup-
arar brugðu sér yfir landamærin og tóku
þátt. Fyrst gáfu þeir sér þó tíma til að skoða
helstu kennileiti höfuðborgarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HJÁLPARSTARF Fangelsismálastofn-
un og ABC Barnahjálp hafa hrundið
af stað tilraunaverkefni fyrir kom-
andi jól sem felst í því að fangar í
Hegningarhúsinu við Skólavörðu-
stíg og í fangelsinu á Akureyri
pakka inn jólakortum. Fangavörður
í Hegningarhúsinu segir að fang-
arnir taki vel í verkefnið. Kortin
verða til sölu um allt land og mun
ágóðinn af sölunni renna til hjálp-
arstarfs í þágu munaðarlausra
barna í Úganda, Indlandi, Pakistan
og Filippseyjum. - sk
Jólastemning í fangelsum:
Fangar nota
tímann vel
HEGNINGARHÚSIÐ VIÐ SKÓLAVÖRÐUSTÍG
Gefur kost á sér Marsibil Jóna
Sæmundsdóttir hefur tilkynnt að hún
sækist eftir öðru sæti á lista Framsókn-
arflokksins fyrir næstu borgarstjórnar-
kosningar. Marsibil er varaborgarfulltrúi
og hefur verið í miðstjórn flokksins
síðan 2001.
FRAMSÓKN
DÓMSMÁL Stefnt er að því að ný
sameiginleg heimasíða héraðs-
dómstólanna komist í gagnið 20.
febrúar næstkomandi.
Dómar verða birtir á nýjum
vef Dómstólaráðs en fram til
þessa hafa bara Hæstiréttur og
Héraðsdómur Norðurlands eystra
gert það.
Freyr Ófeigsson, dómstjóri á
Norðurlandi eystra, segir stefnt
að opnun nýja vefsins í febrúar.
„En ég hef nú heyrt svona dag-
setningum fleygt alveg síðan við
opnuðum fyrir átta árum,“ bætir
hann við.
„En ég veit ekki betur en þetta
sé allt á lokastigi.“ - óká
Nýr vefur Dómstólaráðs:
Dómar verða
birtir á netinu
Snæbjörn Árnason, rækjusjómaður á Bíldudal, gagnrýnir rannsókn á rækju:
Segir 50 milljónum kastað á glæ
SNÆBJÖRN ÁRNASON Snæbjörn segist ekki skilja hvernig Hafrannsóknarstofnun hafi efni á
því að eyða 50 milljónum í að vernda 21 milljón króna aflaverðmæti.
Sigurinn staðfestur Kjörstjórn í
Líberíu lýsti því yfir í fyrradag að Ellen
Johnson-Sirleaf væri réttkjörinn forseti
landsins. Hún bar sigurorð af George
Weah í síðari umferð forsetakosning-
anna 8. nóvember en ásakanir um
svindl urðu til þess að sigurinn var ekki
staðfestur fyrr en nú. Johnson-Sirleaf er
fyrsta konan sem kjörin er þjóðhöfðingi
Afríkuríkis.
LÍBERÍA
SUÐUR-KÓREA, AP Slagsmál brutust
út á suður-kóreska þinginu í vik-
unni þegar frumvarp um opnun
hrísgrjónamarkaðar landsins var
samþykkt.
Þingmenn lítils stjórnarand-
stöðuflokks reyndu að hertaka
forsetasætið í þingsalnum en
þingmenn stjórnarflokkanna
komu í veg fyrir það.
Hundruð bænda mótmæltu
utan við þinghúsið en þeir óttast
um afkomu sína. Forseti þingsins
sagði þingið ekki hafa haft aðra
kosti en að samþykkja frumvarpið
þar sem Suður-Kórea væri bund-
in af samningum um alþjóðavið-
skipti. ■
Átök vegna hrísgrjóna:
Þingið logaði
í slagsmálum
LÚSKRAÐ Á ANDSTÆÐINGNUM Hugmyndir
um innflutning á hrísgrjónum hleyptu illu
blóði í þingheim. AP
HAFRANNSÓKNIR „Önnur eins
vitleysa hefur ekki verið við-
höfð held ég frá því að Bakka-
bræður reyndu að bera ljósið
inn í baðstofuna í trogi,“ segir
Snæbjörn Árnason, rækjusjó-
maður á Bíldudal, um verkefni
Hafrannsóknarstofnunar í Arn-
arfirði.
„Það eru að minnsta kosti
50 milljónir settar í þetta verk-
efni sem hefur það að markmiði
að vernda rækjustofn en afla-
verðmæti hans er aldrei meira
21 milljón. Þetta er greinilega
ekki stofnun í neinu fjársvelti
sem getur unnið svona,“ segir
hann. „Þar fyrir utan eru engin
líffræðileg eða fiskifræðileg rök
fyrir þessari rannsókn sem virð-
ist vera gæluverkefni sem skatt-
borgarar fá að gjalda fyrir.“
Verkefnið gengur út á það í
meginatriðum að þorskinum í
Arnarfirði er gefin loðna á viss-
um stöðum og þannig er reynt
að hamla því að hann leiti innar
í fjörðinn til að gæða sér á rækj-
unni sem þar er.
Vignir Thoroddsen, fjármála-
stjóri Hafrannsóknarstofnunar,
segist ekki getað tjáð sig um
hversu miklum fjármunum hafi
verið veitt í verkefnið en kostn-
aðaráætlun hljóðaði upp á 50
milljónir. „En þessi rannsókn
snýst ekki aðeins um það að
vernda rækjustofninn svo það
er ekki rétt að setja þetta upp
svona,“ segir hann.
Ekki náðist í Björn Björnsson
hjá Hafrannsóknarstofnun en
hann hefur umsjón með verk-
efninu. -jse