Fréttablaðið - 25.11.2005, Síða 24
25. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR24
Undanfarna daga hefur komið til átaka á
milli ísraelskra hermanna og skæruliða
Hizbollah-samtakanna. Eftir að borgara-
styrjöldinni í Líbanon lauk hefur verið
heldur hljótt um samtökin en þau eru
langt í frá dauð úr öllum æðum.
Eru þetta ekki bara ótíndir hryðju-
verkamenn?
20.000 manns eru enn undir vopnum
Hizbollah og af og til kemur til átaka
á milli þeirra og Ísraelsmanna við hin
umdeildu Shebaa-býli á landamærum
ríkjanna. Staða Hizbollah í líbönsku
samfélagi er hins vegar önnur og flóknari. Eftir að Ísraelsmenn drógu
herlið sitt frá suðurhluta Líbanons árið 2000 hefur Hizbollah einkum
unnið að því að bæta hag fátækra sjía með því að reisa heilsugæslu-
stöðvar og skóla. Jafnframt hefur þeim gengið ágætlega í hefðbundnu
stjórnmálastarfi. Að mörgu leyti svipar Hizbollah því til Hamas-samtak-
anna í Palestínu.
Af hverju láta samtökin að sér
kveða nú?
Þótt Hizbollah-menn hafi annað slagið
velgt Ísraelum undir uggum þá eru átök
síðustu daga óvenju hatrömm. Sýrlend-
ingar hafa átt í vök að verjast í samfélagi
þjóðanna eftir að óháð rannsóknarnefnd
komst að þeirri niðurstöðu að þeir
áttu þátt í morðinu á Hariri fyrrverandi
forsætisráðherra Líbanons. Stjórnvöld
í Damaskus hafa ávallt stutt Hizbollah
og má leiða að því líkum að þau hafi
hvatt þessa bandamenn sína til illinda
því aukin spenna í Líbanon eykur um
leið nauðsyn þess að alþjóðasamfélagið
styrki Sýrlandsríki í stað þess að veikja þarlend stjórnvöld.
Að sama skapi falla árásir á Ísraela jafnan í frjósaman jarðveg hjá
stórum hluta Líbana og ef til vill hefur Hizbollah-mönnum þótt ástæða til
að hressa upp á vinsældir sínar eftir að þær dvínuðu í kjölfar morðsins á
Hariri vegna sambands þeirra við Sýrlendinga.
FBL-GREINING: HIZBOLLAH OG ÁTÖKIN VIÐ SHEBAA-BÝLIN
Flokkur Guðs sýnir klærnar
Talið er að 130 milljónir
kvenna um allan heim hafi
verið umskornar, þar af
þrjár milljónir á þessu ári.
Stór hluti kvenna sem verða
fyrir heimilisofbeldi telur
að þær eigi það skilið. Þe-
tta er á meðal niðurstaðna
tveggja skýrslna sem út
komu í gær.
Kynbundið ofbeldi er ekki nýtt af
nálinni en skýrslur sem tvær stofn-
anir Sameinuðu þjóðanna gáfu út í
gær sýna hversu rótgróið það er
og hve margháttaðar afleiðingar
þess geta verið. Sú fyrri kemur
frá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni
og fjallar um heimilisofbeldi en
hina setti Barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna UNICEF saman um þá
tegund limlestinga sem nefnd er
umskurn kvenna.
Telja sig eiga ofbeldið skilið
Í skýrslu WHO er rætt um heim-
ilisofbeldi við 24.000 konur í tíu
löndum: Brasilíu, Eþíópíu, Japan,
Namibíu, Perú, Samóa, Serbíu,
Taílandi, Bangladess og Tansan-
íu. Þetta er fyrsta skýrsla sinnar
tegundar en ekki þótti ástæða til
að kanna ástandið í Vestur-Evrópu
og Norður-Ameríku þar sem það
hefur áður verið gert.
„Heimilið á að vera staður þar
sem fólk nýtur friðhelgi. Reynsl-
an sýnir hins vegar að konur eru í
meiri hættu heima hjá sér en úti á
götu,“ sagði Henrica Jansen, einn
skýrsluhöfunda, á blaðamanna-
fundi í Genf í gær. Þetta eru orð að
sönnu því tíðni heimilisofbeldis er
geigvænleg, ekki síst í svonefndum
þróunarlöndum. Þannig er sjö af
hverjum tíu konum í Eþíópíu mis-
þyrmt á heimilum sínum á meðan
15 prósent japanskra kvenna lýsa
slíkri upplifun. Til samanburð-
ar má nefna að fyrri rannsóknir
sýna að fimmtungur bandarískra
og sænskra kvenna hefur sætt
barsmíðum eða öðru ofbeldi og
23 prósent breskra og kanadískra
kvenna.
Höfundar skýrslunnar telja að
skýringin á þessum mun á milli
fátækari og ríkari heimshluta liggi
meðal annars í því að konur í iðn-
ríkjunum eigi auðveldara með að
losna úr samböndum þar sem þeim
er misþyrmt en konur í þróunar-
löndunum.
Í þessu sambandi er ekki síður
ískyggilegt að stór hluti kvenna
sem verða fyrir misþyrmingum
telur slíkt ásættanlegt og eru konur
í fátækari ríkjum heims frekar
þessarar skoðunar. 78 prósent
eþíópískra kvenna telja sig eiga
ofbeldið skilið og fjórar af hverj-
um tíu konum frá Bangladess telja
að það sé réttur eiginmannsins að
lemja þær. „Maðurinn minn mis-
þyrmir mér og nauðgar og ég verð
bara að hlýða. Áður en þið tókuð
við mig viðtal hafði ég ekki hugs-
að út í þetta, ég hélt að svona ætti
þetta einfaldlega að vera, að svona
hegðuðu eiginmenn sér,“ sagði ein
kvennanna frá Bangladess.
Sérstaka athygli vekur að
heilsufarsvandamál sem ofbeld-
inu fylgja, bæði andleg og líkam-
leg, eru þau sömu, óháð því hvar
í veröldinni fórnarlömbin búa eða
hver efnahagur þeirra er. Talið er
að konur sem sæta misþyrmingum
séu í tvöfalt meiri hættu á að missa
heilsuna, þróa með sér geðsjúk-
dóma og jafnvel íhuga sjálfsmorð
en þær sem búa við frið á heimil-
um sínum. „Hvort sem þú ert kona
á framabraut í Sao Paolo eða býrð í
sveitahéruðum Eþíópíu eru tengsl-
in á milli ofbeldis og bágrar heilsu
þau sömu,“ segir Claudia Garcia-
Moreno hjá WHO.
Þrjár milljónir umskornar í ár
Myndin sem dregin er upp í
UNICEF-skýrslunni er ekki mikið
fegurri. Þar er talið að þrjár
milljónir kvenna séu umskornar
hvert einasta ár, flestar þeirra í
Afríku og Mið-Austurlöndum.
Áður hafði verið áætlað að
tveimur milljónum kvenna væri
misþyrmt árlega með þessum
hætti en skilvirkari upplýsinga-
öflun sýnir að fjöldinn er mun
meiri. Ekki er þó unnt að meta
hversu margar deyja í kjölfar
þessarar lífshættulegu aðgerðar,
þar sem ytri kynfæri konunnar
eru hreinlega skorin í burtu.
„Í þeim 28 löndum Afríku sunn-
an Sahara og Mið-Austurlanda þar
sem umskurn kvenna er stunduð
hafa 130 milljónir kvenna orðið
að gangast undir þessa aðgerð,“
segir í fréttatilkynningu UNICEF
um málið. Ástandið er sérstak-
lega slæmt í Nílardalnum, en í
Egyptalandi eru 97 prósent gift-
ra kvenna umskornar og 80 pró-
sent kynsystra þeirra í Eþíópíu.
Í Jemen og Óman, þar sem fjöldi
egypskra farandverkamanna býr,
er hlutfall umskorinna kvenna
jafnframt afar hátt.
Umskurn er félagsleg frek-
ar en trúarleg athöfn og telur
UNICEF erfitt að uppræta þessa
tegund ofbeldis sökum þess hve-
rsu rótgróin hún er í þeim sam-
félögum þar sem henni er beitt.
„Stúlkur verður að umskera til
að vernda heiður þeirra og fjöl-
skyldna þeirra, sérstaklega nú á
dögum þegar þær fara að heiman
til háskólanáms og geta því lent
í alls kyns óvæntum aðstæðum,“
sagði kona frá Suður-Egyptalandi
í samtali við einn höfund skýrsl-
unnar. Því telur UNICEF að boð
og bönn nægi ekki til að koma í
veg fyrir umskurn kvenna heldur
verði að koma á hugarfarsbreyt-
ingu hjá íbúum þessara landa.
CLAUDIA GARCIA-MORENO Alþjóðaheilbrigðisstofnunin kynnti skýrslu sína í gær um heim-
ilisofbeldi. MYND/AP
HRÆÐILEGAR AFLEIÐINGAR HEIMILISOFBELDIS Í örvæntingu sinni vegna stöðugra bar-
smíða á heimili sínu reyndi þessi afganska kona að stytta sér aldur með því að hella yfir
sig bensíni og kveikja í. Sennilega er þó hvergi verra að vera kona en í Eþíópíu því þar eru
átta af hverjum tíu konum umskornar og sjö af hverjum tíu sæta heimilisofbeldi.
MYND/GETTYS
Ofbeldið verst í þróunarlöndum
> Vinsælustu
nöfnin á drengi
0-4 ára
í desember 2004.
Svona erum við
FRÉTTASKÝRING
SVEINN GUÐMARSSON
sveinng@frettabladid.is
200
193
159
199
142
A
R
O
N
D
A
N
ÍE
L
VI
K
TO
R
JÓ
N
SI
G
U
R
Ð
U
R
fréttir og fróðleikur
Mikil umræða
hefur átt sér stað
um varnarmál
Íslands að und-
anförnu. Baldur
Þórhallsson hefur
rannsakað stöðu
Íslands í alþjóða-
samfélaginu.
Eiga Íslending-
ar að leita til
Evrópu um varn-
arsamstarf?
Ef Bandaríkja-
menn eru ekki lengur tilbúnir til að vera
með þann varnarviðbúnað sem hér
hefur verið á undanförnum árum þá tel
ég það mikilvægt fyrir íslensk stjórnvöld
að skoða þann möguleika að eiga
nánara samstarf um varnir við einstök
Evrópuríki; já.
Getur aðild að Evrópusambandinu
komið í staðinn fyrir varnarsamn-
inginn?
Nei, Evrópusambandið mun aldrei
koma að vörnum Íslands líkt og Banda-
ríkin hafa gert. Evrópusambandið hefur
hvorki herafla né vilja til að taka að sér
varnir tiltekinna ríkja. En það er vaxandi
samvinna innan Evrópusambandsins
um öryggis- og varnarmál og ég sé
fyrir mér í framtíðinni aukna samvinnu
ríkjanna á þessum sviðum en ekki svo
að Evrópusambandið komi beint að
vörnum landsins.
SPURT OG SVARAÐ
VARNIR ÍSLANDS
Nánara sam-
starf við Evrópu
ÞAÐ SAKNAÐI
HANS ENGINN
Guðjón um jólabók Guðna
DV2x15 24.11.2005 20:51 Page 1