Fréttablaðið - 25.11.2005, Side 38
[ ]
Kynningartilboð
á 23 L vínþrúgum
Hótel Loftleiðir er meðal
þeirra sem bjóða upp á jóla-
hlaðborð. Við báðum yfirkokk-
inn að gefa okkur nasasjón af
herlegheitunum.
„Jólahlaðborðið okkar er með
dönsku sniði enda hefur ein þekkt-
asta smurbrauðsjómfrú Danmerk-
ur, Ida Davidsen, hjálpað okkur
undanfarin tíu ár,“ segir Reynir
Magnússon, matreiðslumeistari á
Hótel Loftleiðum. Hann kveðst að
sjálfsögðu vera með alla þá rétti
sem prýtt geta gott jólahlaðborð
og sem sýnishorn velur hann síld
enda telur hann fjölbreytileikann
í síldarréttunum eitt af því sem
geri jólahlaðborðin á Loftleiðum
frábrugðin öðrum. „Þetta er hluti
af því úrvali sem Ida býður upp á
í sínu veitingahúsi í Kaupmanna-
höfn,“ segir hann.
Marentza Poulsen hefur verið
gestgjafi við jólahlaðborðin á
Hótel Loftleiðum í tíu ár. Reyn-
ir segir hennar hlutverk vera að
kenna fólki hvernig eigi að raða á
diskana af hlaðborði. „Maturinn
verður miklu lystugri ef rétt er
raðað,“ segir hann og mælir með
að fólk taki síldarréttina fyrst og
fái sér síðan nýjan disk og fari
í næsta hluta borðsins. „Það er
um að gera að setja ekki of mikið
og of ólíkar tegundir á diskinn í
einu,“ tekur hann fram.
Reynir og hans fólk eru með níu
tegundir af síld á borðinu, hverja
annarri girnilegri enda unnar af
mikilli nákvæmni. „Við búum til
alla síldarréttina alveg frá grunni
og leggjum mikið upp úr því að
það sé gert tímanlega, þannig að
bragðið njóti sín sem best,“ segir
Reynir og gefur landsmönnum
uppskrift til að spreyta sig á. ■
Síldin setur svip á
jólahlaðborðið
Piparkökur eru komnar í allar verslanir. Þeir sem eru ekki búnir
að baka fyrir jólin geta tekið forskot á sæluna og keypt sér poka af
piparkökum. Ekki spillir fyrir að kaupa líka malt og appelsín til þess
að drekka með kökunum.
Síldarréttirnir eru litríkir og girnilegir.
STEIKT FERSK SÍLD:
Ferskum síldarflökum er velt upp úr
blöndu af rúgmjöli og hveiti (helmingur af
hvoru). Síldin er kæld niður og sett í síld-
ar lög. Síldin er best ef hún fær að liggja
í 3-4 vikur í leginum inn í kæli. Síldin er
skorin í bita og sett á fat með smávegis
af legi og skreytt með laukhringum og
lárviðarlaufi.
SÍLDARLÖGUR
300 ml kryddedik
200 ml vatn
1 laukur gróft skorinn
1 rauðlaukur gróft skorinn
1/2 tsk. svört piparkorn heil
1/2 stk. lárviðarlauf
240 ml sykur
2 msk. Worchester sósa
1 tsk. nautakraftur
Allt soðið saman og látið sjóða í tíu
mínútur við vægan hita.
Lögurinn er sigtaður áður en honum er
hellt yfir síldina.
Bear Crossing er heiti á vín-
línu frá ástralska vínfyrir-
tækinu Angove´s. Flöskurn-
ar bera merki Australian
Koala Foundation, samtaka
til verndar kóalabjörnum en
þessi smávöxnu og vinalegu
pokadýr eru í mikilli útrým-
ingarhættu. Hluti andvirðis
af hverri seldri flösku renn-
ur til sjóðsins og hefur þetta
framtak vakið mikla athygli
náttúruunnenda. Miðinn á
flöskunni líkist varnaðar-
skiltunum sem eru sett upp
við þjóðvegi sem kóalabirnir
eru gjarnir á að þramma yfir.
Angove´s Bear Crossing
Cabernet/Merlot vínið hefur
vakið athygli og þykir þessi
þrúgnasamsetning mjög
fersk. Má drekka með flest-
um kjötréttum, pitsu og mis-
munandi ostum, einnig mjög
gott eitt og sér. Vínið verður
á sérstöku tilboðsverði fram
að jólum. Verð í Vínbúðum 3.890 kr. í 3l kössum.
Þakkargjörðarhátíðin stendur
nú sem hæst í Bandaríkjunum.
Síðasti fimmtudagur nóvember-
mánaðar er dagur þakkargjörðar-
hátíðar Bandaríkjamanna. Þakk-
argjörðarhátíðin er í raun eina
hátíðin sem allir Bandaríkjamenn
fagna óháð trúarbrögðum eða lit-
arhætti og er að því leyti stærri
en jólin og páskarnir. Þá er fjög-
urra daga helgi frá fimmtudegi
til sunnudags, skrúðgöngur og
skemmtiatriði og fjölskyldur
koma saman og snæða hátíðamat.
Uppskeruhátíðir hafa í ein-
hverri mynd verið liður í menn-
ingu síðan mannfólkið hóf að yrkja
jörðina sér til viðurværis. Frá
Grikkjum til forna má sjá þann
sið að fagna góðri uppskeru þróast
og aðlagast siðvenjum þjóða víðs
vegar um heiminn. Þakkargjörð-
arhátíð Bandaríkjamanna á rætur
sínar að rekja til uppskeruhátíðar
er haldin var árið 1621. Þjóðsagan
hermir að indíánarnir hafi kennt
landnemum þessa tíma að sá að
vori og þannig tryggt þeim næga
uppskeru um haustið til að halda í
þeim lífinu yfir veturinn sem var
að ganga í garð.
Í dag er litið á þakkargjörðar-
hátíðina fyrst og fremst sem tæki-
færi fyrir vini og vandamenn til að
safnast saman yfir ríkulegri mál-
tíð og glaðri kvöldstund. Algengt
er að hver manneskja við matar-
borðið nefni þá hluti sem þeir eru
þakklátir fyrir, og taki svo hraust-
lega til matar síns.
Hefðbundin þakkargjörðar-
máltíð samanstendur af kalkúni
með brauðfyllingu, kartöflumús,
rjómalöguðu grænmeti (rófum,
gulrótum eða spínati) og að sjálf-
sögðu eplapæ að hætti mömmunn-
ar í eftirrétt.
Takk fyrir allt
gamalt og gott!
Kalkúnn er ómissandi hluti af þakkargjörð Bandaríkjamanna.
UPPSKRIFT FRÁ ÓTTARI MARTINI
NORÐFJÖRÐ HEIMSPEKINGI.
1 kg lambakjöt, beinlaust
1-2 laukar
1 hvítlauksrif
olía til að steikja upp úr
1 dós tómatmauk milt
1 og 1/2 dl vatn
2 msk. púðursykur
2 tsk. karrý sterkt
1 tsk. salt
1 kjúklingateningur
3 epli
2 appelsínur
Kjötið er skorið niður í bita og laukurinn í
sneiðar. Hvítlaukurinn er pressaður. Þetta
er brúnað um stund í olíunni á pönnu
eða í djúpum potti. Eplin eru skræld og
skorin í bita og appelsínurnar í sneiðar
með börkinn á (þetta með börkinn
er mikilvægt). Þegar kjötið er orðið
brúnað er öllu hinu bætt á pönnuna
eða í pottinn, suðan látin koma upp og
rétturinn látinn malla við vægan hita í
40-45 mínútur. Borðað með hrísgrjónum
eða kartöflumús, nanbrauði og gjarnan
ávaxtasalati.
Kjötréttur með
ávöxtum
Uppskrift }
BEAR CROSSING:
Kóalabjörninn í kassa