Fréttablaðið - 25.11.2005, Side 49
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { suðurland } ■■■■ 9
„Okkar starf felst í því að afla fjár
sem við veitum svo til leikskóla,
skóla, elliheimila, björgunarsveita,
sjúkrahúsa og svo framvegis,“ segir
Rannveig Anna Jónsdóttir, formað-
ur Kvenfélags Eyrarbakka.
Hún segir félagið einnig sjá um
jólaball fyrir börnin, gefa gjafir,
hátíðarhöld á 17. júní og heilmargt
fleira. „Einnig gerum við hluti sér-
staklega fyrir okkur, við förum til
útlanda og höldum námskeið,“
segir Rannveig. Helstu fjáröflunar-
leiðirnar eru basar, erfidrykkjur og
bingó. Basar er haldinn á hverju ári
í kringum jólin og eru konurnar í
næstum tvo mánuði að búa til hluti
á basarinn.
Félagsmenn eru í kringum fimm-
tíu og eru konur frá þrítugu og upp
úr. Flestar eru frá Eyrarbakka en
nokkrar eru fluttar úr bænum en
taka samt sem áður þátt í starfsem-
inni.
Rannveig viðurkennir að heil-
mikið starf fylgi því að vera í kven-
félaginu en það sé afskaplega gef-
andi og á síðasta ári hafi félagið
náð að gefa fyrir fimm milljónir.
„Við fyllumst miklu stolti þegar
við gefum og það er alltaf gott
að sjá árangur erfiðis síns,“ segir
Rannveig Anna.
Stoltar að gefa
Kvenfélag Eyrarbakka er elsta kvenfélag landsins, stofnað 1888. Við slógum á þráðinn
til formannsins, Rannveigar Önnu Jónsdóttur, og forvitnuðumst um starfsemi félagsins.
Á myndinni eru meðlimir kvenfélagsins
með brúður sem þær bjuggu til í samstarfi
við Unicef.
Eigendur Rauða hússins á
Eyrarbakka, auk Guðmundar
Annas Árnasonar, matreiðslu-
og afgreiðslumanns þar, hafa
keypt rekstur veitingahússins
Kaffi Krúsar á Selfossi.
„Við ætlum að opna
bistró, auka svolítið við það
sem hefur hingað til verið í
boði þar,“ segir Pétur Andr-
ésson, sem á Rauða húsið
ásamt Inga Þór Jónssyni og
fjölskyldum beggja. Auk þess
eiga félagarnir fyrirtækið
Þrjá bolla ásamt Guðmundi,
en það fyrirtæki mun standa
fyrir rekstri Kaffi Krúsar.
„Matseðillinn verður bæði
ítarlegri og fjölbreyttari,“
bætir Guðmundur við.
Guðbjörg Anna Árnadóttir
hefur rekið Kaffi Krús í rúman
áratug, og bauð gestum upp á
súpu og brauð og fleiri léttar
veitingar.
Kaffi Krús
skiptir um
eigendur