Fréttablaðið - 25.11.2005, Síða 52
■■■■ { suðurland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■12
www.arborgir.is
482-3800
Austurvegi 38
800 Selfoss
„Það er von á henni eftir tvær
vikur eða svo,“ segir Víðir Björns-
son, einn af meðlimum Nilfisk,
spurður hvenær von sé á fyrs-
tu breiðskífunni. Hún ber titilinn
Don‘t Run After Your Own App-
les, og á henni verður að finna
lög sem bandið hefur unnið á
síðustu tveimur árum, allt frá því
að hljómsveitin var stofnuð hinn
10. mars 2003. Víðir viðurkenn-
ir að titillinn sé dálítið sérstakur,
en hann hafi komið til í hálfgerðu
gríni. Fólki sé hins vegar velkomið
að leggja dýpri merkingu í nafnið.
„Við fengum fyrst hugmyndina á
íslensku, ekki hlaupa á eftir þínum
eigin eplum, og þýddum það svo
yfir á ensku. Þá kom þetta svona
skemmtilega asnalega út,“ segir
Víðir.
Hefur umhverfi Suðurlands haft
áhrif á tónlistina ykkar?
„Ég veit það nú ekki, við erum
kannski einangraðri og verðum
minna fyrir áhrifum. Við gerum bara
það sem við viljum gera,“ segir Víðir.
Hann segir bandið semja lögin
í sameiningu en Jói söngvari sjái
um textasmíð og laglínu. Öll lögin
eru sungin á ensku, enda ætlar
hljómsveitin að fara í tónleikaferð
um heiminn á næsta ári.
„Útgáfutónleikarnir verða í
Reykjavík í desember en á næsta
ári verðum við með helling af
tónleikum, bæði hér heima og
erlendis. Við förum meðal ann-
ars til Danmerkur, Bandaríkjanna
og Rússlands næsta sumar,“ segir
Víðir. Hann viðurkennir að vera
orðinn ansi spenntur að fá plöt-
una í hendurnar, eins og senni-
lega fleiri. 12 Tónar munu sjá um
að dreifa plötunni, en þeir sem
geta ekki beðið geta tekið forskot
á sæluna með því að fara inn á
vefsíðuna rokk.is og hlusta þar á
lagið Sometimes (in the Summer),
sem er þar á topp tíu listanum yfir
heitustu lögin.
Ekki hlaupa á eftir þínum eigin eplum
Allt frá því að hljómsveitin Nilfisk sló eftirminnilega í gegn þegar Foo Fighters upp-
götvaði hana á Stokkseyri og bauð henni að hita upp fyrir tónleika sína í Laugardals-
höllinni hefur verið beðið eftir plötunni. Nú er biðin á enda og platan að koma.
„Við tímum bara ekki að selja
húsið okkar á Selfossi, við leigjum
það út þessa stundina og bíðum
eftir tækifæri til þess að geta verið
þar í um fjóra mánuði á hverju
ári,“ segir Steinunn.
Steinunn og maður hennar,
Þorsteinn Hauksson tónskáld,
keyptu hús sitt á Selfossi árið
1997 og hafa búið þar meðfram
dvöl sinni í Frakklandi.
„Við festum góðar rætur á Sel-
fossi þann tíma sem við bjuggum
þar, enda er þetta dásamlega rólegt
og gott samfélag þar og stressið
er áberandi minna en í Reykja-
vík,“ segir Steinunn og bætir við
að greiðvikni fólks á Selfossi sé
nokkuð sem hún hafi sérstaklega
tekið eftir. „Fólk er svo hjálpsamt
þar,“ segir hún.
Hús þeirra á Selfossi er tveggja
hæða einbýlishús í skandinavísk-
um stíl með stórum gluggum og
segist Steinunn einna helst sakna
göngutúra um Þrastaskóg og
annarrar útivistar sem auðvelt
er að stunda á Suðurlandi. Auk
þess voru það viðbrigði að flytja
í suður-franska þorpið þar sem
þau nú búa, því þar eru þau Þor-
steinn algjörlega háð bílnum, sem
á Selfossi er auðvelt að komast af
án, eða nota lítið, að sögn Stein-
unnar.
Steinunn hefur nýverið gefið
út skáldsöguna Sólskinshestar.
Selfoss jafnast á við franska þorpið
DRAUMUR RITHÖFUNDARINS STEINUNNAR SIGURÐARDÓTTUR ER AÐ GETA BÚIÐ JAFNFÆT-
IS Á SELFOSSI OG Í FRAKKLANDI. ÞÓ FRANSKA SVEITAÞORPIÐ SEM HÚN BÝR Í NÚ SÉ BÆÐI
RÓMANTÍSKT OG HEILLANDI TELUR STEINUNN SELFOSS EKKI SÍÐRI.
Nýverið tók deiliskipulag Dyrhóla-
eyjar í Mýrdalshreppi gildi með birt-
ingu auglýsingar í Stjórnartíðindum.
Deiliskipulagið tekur til friðlandsins
Dyrhólaeyjar utan Mávadrangs og
Lundadrangs.
Sveitarfélagið vonast til að þar
með geti Umhverfisstofnun farið
að vinna að úrbótum á svæðinu,
en brýn nauðsyn er á að koma upp
salernisaðstöðu og að stýra umferð
ferðamanna með gerð göngustíga.
Greinargerð og uppdrættir verða
væntanlega aðgengileg á www.vik.is
innan tíðar.
Nýtt deiliskipulag í Dyrhólaey
Hljómsveitin Nilfisk stefnir á heimsreisu á næsta ári.
Steinunn Sigurðardóttir býr í Frakklandi en segist sakna Selfoss og hlakkar til þess að
flytja þangað aftur.
... að koma við í Eden í Hveragerði og fá þér ís. Einnig er gaman
að kíkja á veitingahúsið Cafe Kidda Rót, sem hefur vakið athygli
margra með auglýsingum við þjóðveginn um að þar sé hægt að
fá rómantíska hamborgara. Tilvalið fyrir fólk í svoleiðis hugleið-
ingum, þó svo engum sögum fari af því hvað geri hamborgarana
rómantískari en aðra hamborgara.
... að koma við á Selfossi og fara í bíó, en Selfoss-Bíó var opnað
í desember á síðasta ári og á því bráðum árs afmæli. Kvikmynda-
húsið er afar glæsilegt, með tveim sýn-
ingarsölum og gefur kvikmyndahúsum
höfuðborgarsvæðisins ekkert eftir. Svo er
tilvalið að kíkja í sund á Selfossi, enda
frábær sundlaug á staðnum.
Láttu það eftir þér ....
Náttúruparadísin Dyrhólaey.