Fréttablaðið - 25.11.2005, Blaðsíða 78
25. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR46
tonlist@frettabladid.is
> Plata vikunnar
GARÐAR THÓR CORTES:
CORTES
„Platan er vel heppnuð
blanda af klassískum
perlum og popplögum.
Garðar getur gengið stolt-
ur frá sinni fyrstu einsöngsplötu.“
FGG
> Popptextinn
„Time goes by so slowly for those
who wait,
no time to hesitate.
Those who run seem to have all
the fun,
I´m caught up and don´t know
what to do.“
HIN SÍUNGA MADONNA ER Á MILLI
TVEGGJA ELDA Í DISKÓLAGINU HUNG
UP AF PLÖTUNNI CONFESSIONS ON A
DANCEFLOOR.
1. SYSTEM OF A DOWNHYPNOTIZE
2. WEEZERPERFECT SITUATION
3. THE DARKNESSONE WAY TICKET
4. AMPOPMY DELUSIONS
5. THE STROKESJUICEBOX
6. JAKOBÍNARÍNAI´VE GOT A DATE WITH MY TELEVISION
7. BLOC PARTYTWO MORE YEARS
8. DEATH CAB FOR CUTIESOUL MEETS BODY
9. SUPERGRASSLOW C
10. ARCADE FIREWAKE UP
X-DÓMÍNÓSLISTINN
TOPP 10 LISTI X-FM
SYSTEM OF A DOWN Rokksveitin ógurlega
er komin á topp X-Dómínóslistans með
lagið Hypnotize.
Orri Harðarson: Trú
„Orri Harðarson hefur gert vandaða og
þægilega plötu sem á eftir að koma að góðum
notum á köldum vetrardögum. Dúett hans
með KK í laginu Listin að lifa stendur upp úr.“
FB
The Dead 60´s: The Dead
60´s
„The Dead 60´s er ný bresk sveit sem hljómar
nákvæmlega eins og helmingsblanda The
Specials og The Clash. Fín plata en sveitin
á eflaust eftir að eiga erfitt með að fóta sig
vegna þess hversu mikið þeir minna á áhrifa-
valda sína.“
BÖS
Nylon: Góðir hlutir
„Nylon verður að setja meiri þokka í tónlistina
ef þær vilja selja þessa „þroskuðu“ ímynd.“
FGG
Þórir: Anarchists Are Hope-
less Romantics
„Með annarri plötu sinni festir Þórir sig í
sessi sem einn áhugaverðasti tónlistarmaður
þjóðarinnar af ungu kynslóðinni.“
FB
Skítamórall: Má ég sjá
„Fyrir aðdáendur Skítamórals er Má ég sjá
prýðileg viðbót í safnið. Sveitin kann að trylla
lýðinn sinn og gerir það eflaust með þessari
plötu.“
FGG
Rammstein: Rosenrot
„Fimmta plata Rammstein er nákvæmlega
eins og hinar fjórar. Nema hvað að núna bíta
þeir ekki einu sinni á vöfflur. Varist Rosenrot
eins og heitan eldinn.“
BÖS
TÓNLIST
SMS UM NÝJUSTU PLÖTURNAR
> Í SPILARANUM HJÁ RITSTJÓRNINNI
Írafár: Írafár, Svala: Bird of Freedom, Heiða: Hluti af
mér, Lummurnar: Heitar lummur, System of a Down:
Hypnotize og Kings of Leon: Aha Shake Heartbreak.
Á Sumari á Sýrlandi eru klass-
ísk lög á borð við Út á stoppistöð,
Strax í dag, Tætum og tryllum, She
Broke My Heart, Í bláum skugga
og Fljúgðu. Aukalögin á endurút-
gáfunni eru fyrstu fjögur lög Stuð-
manna frá árinu 1974, tvö lög sem
eru tekin upp á balli í Sigtúni 1983,
tvö lög sem eru tekin upp á tónleik-
um í Royal Albert Hall í mars á
þessu ári og loks ný útgáfa af lag-
inu Söngur dýranna í Týról með
nýjum texta um Úlfgang bónda.
Bæklingurinn sem fylgir
plötunni er einkar veglegur með
textum og hugleiðingum Jakobs
Frímanns Magnússonar um lög
plötunnar. Jakob segir að nokkr-
ar ástæður séu að baki vinsæld-
um plötunnar í gegnum tíðina.
„Þarna er verið að leika sér með
bæði yrkisefni, hljóðfæri og tækni
sem á þeim tíma við tiltölulega
nýtilkominn möguleiki,“ segir
Jakob. „Yrkisefnið var afþreying-
arsaga íslenskrar æsku frá 1940
til 1970 þar sem farið var dálítið
frjálslega með stefnur og strau-
ma á þeim þremur áratugum.
Þetta var líka fyrsta breiðskífan
sem við allir komum að og fannst
óskaplega skemmtileg. Við vorum
eins og kvígur að vori og lékum
við hvern okkar hala,“ segir hann
og bætir við: „Þetta var allt ort
á íslensku sem var ekki í tísku.
Þarna vorum við að fara algjör-
lega á móti ríkjandi stefnum og
straumum bæði í framsetning-
unni og tónlistarstílnum. Þarna
ægði saman stílbrotum svo úr
varð ein óróaheild. Síðast en ekki
síst þá var sáralítið annað í boði
á þessum tíma. Þarna var ein
sjónvarpsstöð sex kvöld í viku og
ein útvarpsstöð. Þau lög sem hún
spilaði urðu þekkt samstundis og
má segja að það hafi verið tiltölu-
lega létt verk og löðurmannlegt í
þá daga að slá rækilega í gegn. Ég
hef fulla samúð með yngri kyn-
slóðinni í dag sem þarf að glíma
við tíu útvarpsstöðvar, fimmtán
prentmiðla og fimm sjónvarps-
stöðvar. Ef þú nærð ekki í gegn
samtímis ertu dauðadæmdur og
það skýrir að íslenskar sveitir
eiga oft erfitt með að fóta sig.“
Í tilefni af plötunni ætla Stuð-
menn að halda tvenna tónleika í
Damaskus, höfuðborg Sýrlands,
í júní á næsta ári. „Þetta verða
tvennir tónleikar í óperuhúsi og á
útileikvangi. Það verður fönkað og
djassað í Damaskus,“ segir Jakob
og er greinilega spenntur fyrir
förinni. Hann segir að Stuðmenn
sé óþekktir í Sýrlandi og því eigi
þeir verðugt verkefni fyrir hönd-
um. „Við ætlum að kynnast þeirra
tónlist um leið og við kynnum
þeim okkar. Við erum að skima
eftir þarlendum tónlistarmönnum
sem gætu tekið í með okkur, þar
á meðal fiðlung frá Damaskus og
flautuleikara.“
Um næstu mánaðamót er síðan
væntanlegur DVD-mynddiskur
með Stuðmönnum sem nefnist
Stuðmenn í Royal Albert Hall. Þar
er sýnd upptaka frá vel heppn-
uðum tónleikum sveitarinnar í
mars í fyrra þar sem þeir trylltu
lýðinn í hinu fræga tónlistarhúsi.
Einnig eru á disknum tónleikar
Stuðmanna í Þjóðleikhúsinu og
sýnishorn frá tónleikum þeirra í
Kaupmannahöfn.
Eins og kvígur að vori
Í tilefni af þrjátíu ára afmæli plötunnar Sumar á Sýrlandi með Stuðmönnum hefur verið
gefin út sérstök afmælisútgáfa með níu aukalögum. Freyr Bjarnason ræddi við Jakob
Frímann Magnússon um þessa frægu plötu.
STUÐMENN Hljómsveitin vinsæla ætlar að
halda tvenna tónleika í Damaskus í júní á
næsta ári.
SUMAR Á SÝRLANDI Platan Sumar á Sýrlandi er fyrir löngu orðin klassísk dægurperla.
Roger Waters, fyrrum forsprakki hljómsveitarinnar Pink
Floyd, segist vera tilbúinn til að gera eitthvað með sveitinni
á nýjan leik.
Pink Floyd átti frábæra endurkomu á Live 8 í sumar eftir
að lítið hafði farið fyrir sveitinni. „Ég væri virkilega til í að
gera eitthvað meira,“ sagði Waters í spjalli við BBC. „Það var
svo gaman á Live 8. Við mættum og tókum nokkrar æfingar.
Um leið og við stungum í samband fyrir fyrstu æfinguna leið
mér eins og ég væri að klæða mig í gamlan skó,“ sagði hann.
Waters hætti í Pink Floyd árið 1981 en kom fram með
sveitinni í fyrsta sinn síðan þá á Live 8. Pink Floyd sló í gegn
árið 1973 með plötunni Dark Side of the Moon, sem er fyrir
löngu orðin klassík í rokksögunni. Sex árum síðar gaf hún
út plötuna The Wall sem jók enn á vinsældir hennar. Waters
samdi öll lögin á plötunni og var hugsjónarmaðurinn á bak
við verkið.
Pink Floyd var nýlega vígð inn í fræðgarhöll rokksins
ásamt m.a. The Kinks, The Who og John Peel. Kæmi sveitin
saman á ný í upphaflegri mynd yrðu það frábær tíðindi fyrir
fjölmarga tónlistarunnendur um heim allan.
Waters vill meira
Söngkonan Madonna fór beint á
topp bandaríska sölulistans með
plötu sína Confessions on a Dance-
floor.
Þar í landi hefur platan alls selst
í 350 þúsund eintökum síðan hún
kom út. Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem Madonna fer á toppinn með
plötur sínar því þær tvær síðustu,
American Life og Music, léku
einnig sama leik.
Það sem gerir nýju plötuna frá-
brugðna hinum er að hún hefur
fengið betri dóma gagnrýnenda
auk þess sem salan á henni er
töluvert meiri. Til að mynda seld-
ist American Life í rúmum 240
þúsund eintökum sína fyrstu viku
á lista fyrir tveimur árum.
Þetta er tíunda hljóðversplata
Madonnu. Fyrsta smáskífulagið,
Hung Up, hefur að geyma hljóðbút
frá Abba og er nú eitt heitasta lagið
á útvarpsstöðvum og danshúsum
heimsins.
Madonna á toppnum
MADONNA Söngkonan Madonna er að
gera góða hluti með sína nýjustu plötu.
PLÖTUR MADONNU
Madonna
Like A Virgin
True Blue
Who‘s That Girl (Úr kvikmynd)
You Can Dance (Remix plata)
Like A Prayer
I‘m Breathless (Úr kvikmynd)
Erotica
Bedtime Stories
Evita (Úr kvikmynd)
Ray Of Light
Music
American Life
Confessions On A Dancefloor
Útgáfa á fyrstu sólóplötu Pharr-
ells Williams, fyrrum meðlims
N.E.R.D. og The Neptunes, hefur
verið frestað þangað til í febrúar
á næsta ári.
Platan, sem heitir In My Mind,
átti upphaflega að koma út í
þessum mánuði en síðan var
útgáfudeginum frestað til 13.
desember. Engin ástæða hefur
verið gefin fyrir frestuninni.
Fyrsta smáskífulag plötunnar
nefnist Can I Have It Like That
þar sem Pharrel syngur dúett með
Gwen Stefani.
Plötu Pharrells frestað
PHARRELL OG STEFANI Gwen Stefani syng-
ur með Pharrell á Bandarísku tónlistarverð-
launahátíðinni.