Fréttablaðið - 25.11.2005, Page 82

Fréttablaðið - 25.11.2005, Page 82
 25. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR50 Topshop er búð sem þarf ekki að kynna fyrir neinum enda fá búðirnar um 350 þúsund gesti á viku eða rúmlega eitt Ísland eða svo. Í haust náðu hönnuðir búðanna miklum áfanga þegar fyrsta Topshop „cat- walkið“ var sýnt á Lond- on Fashion Week í haust. Ýmsir hönnuðir hafa starfað í samvinnu með hönnuðum Topshop og eru það meðal annars Jonathan Saunders, Ashish, Sophia Kokos- olaki og Peter Jensen. Vor-/sumarlínan hjá Topshop samanstend- ur af fjórum stefnum. Warhol: Hér er gamli bítnikka- s t í l l i n n frá sjöunda á r a t u g n u m tekinn og nýttur á nýjan og afar sval- an hátt. Sjáið fyrir ykkur Edie Sedgwick og Nico og bætið við ýmsu úr tísku nútímans og stíll- inn er kominn. Svart og hvítt, þverrönd- ótt, þröngar svartar buxur, stórar flat- ar tölur, flatbotna skór og stígvél og víðar peysur. Modernist: Flík- ur í yfirstærð eru notaðar mjög mikið og fötin tekin saman í mittið með belti eða böndum. Efnismikil blöðru- pils í bland við jakka í hermanna- stíl, stórar ermar og upprúllaðar stutt- buxur. Hvíti liturinn er yfirgnæfandi en inni á milli má finna liti eins og rósrauðan, gráan og ljósbrúnan auk málmlita. Babylicious: Hér er það glamúr- inn sem ræður ríkjum í bland við einfaldan klæðnað. Svart- ir og einfaldir, flegnir kjólar eða peysur og flíkurn- ar skreyttar með stórum og áberandi sk a r t g r i pu m . Platform-skór með fylltum hæl. Litirnir sem eru áberandi eru brúnir litir í öllum tónum. Judo: Áhrif sótt úr heimi bardaga- listannna júdós og karates. Gróf- leikinn er ríkjandi og birtist helst í sýnilegum saumum og grófum efnum. Sloppurinn sem bundinn er utan um keppnismenn í þess- um greinum er mikið notaður og áhrif frá honum sjást í mörgum flíkum. Ríkjandi litir eru ljósblár, grásvartur og lime-grænn. Dorothy Perkins er himnasending fyrir pæjur á aldrinum 30-50 ára. Þarna geta konur á þessum aldri fundið smekklegan fatnað sem er afar móðins og um leið á góðu verði. Sumarlínan hjá Dorothy Perkins er dásamlega flott og sækir áhrifa úr ýmsum áttum. Ein línan kallast Ladylike og sækir innblástur til sjöunda ára- tugsins sem eins og margir vita er mjög áberandi í tískunni í dag. Doppótt munstur er yfirgnæfandi á flíkunum og litirnir eru aðallega dökkblár, rauður og hvítur. Einnig eru slaufur áberandi, axlabönd, blómakjólar og blúndur. Áhrif frá tímum Napóleons eru notuð í Revolution sem von er á í búðir í janúar. Þar er að finna stutta klæðskerasniðna jakka, stuttar buxur, þröng mitti og fleiri áhrif frá gömlum flíkum. Línan Ooh lala er síðan væntan- leg í febrúar með kjólum í anda sjötta áratugarins, meiri doppur og blöðrupils. Í mars er það svo Peasant- línan sem sækir áhrif í sveitalífið með blómakjólum og rómantískum sniðum. DOROTHY PERKINS Meiri tímabilaáhrif hér á ferðinni, klútur og stór sólgleraugu. FLOTTIR SKÓR Í viktoríönskum og sixtís-stíl. TÍMABILAÁHRIF Þessi kjóll gæti alveg verið frá sjötta áratugnum. SKÓTÍSKA Doppótt og dásamlegt í skótísk- unni hjá Dorothy Perkins. Dásamlegir tískustraumar á leiðinni Fyrirtækið Arcadia hélt sýningu fyrir blaðamenn í London á dögunum þar sem kynntar voru vor- og sumarlínur ársins 2006 en fyr- irtækið rekur búðir eins og Topshop, Topman, Dorothy Perkins og Evans. Borghildur Gunnarsdóttir kynnti sér komandi áhrif í tísk- unni. Topshop Hönnuðirnir hjá Topman hafa góða trú á því að karlmenn séu smátt og smátt að verða hugrakkari þegar kemur að tískunni. Fötin sem eru væntanleg hjá Topman státa því af djörfum stíl en afar smekklegum. Geek: Hér er nördastíllinn í öllu sínu veldi. Blandað er saman mjúkum pastellitum annars vegar og skær- um litum hins vegar og áhrifavaldur er meðal annars listaverk David Hockneys. Stíllinn er afslappaður en um leið ákveðinn með skjannahvítum lit á móti sterk- um litum. Mjúkir stuttir sumarjakkar eru notaðir með buxum með broti og nördalegu prjónavesti yfir skyrtu. Tough love: Litir eru aðal drifkrafturinn hér. Fötin eru frekar einföld og ekki mjög áberandi en undir- liggjandi er hermannastíllinn sem setur svip á snið- in. Einnig hafa hönnuðir notast við áprentun og er hún í pönkuðum stíl. Trailer: Áhrif sótt í stíl þeirra Ameríkana sem kall- aðir eru hvítt rusl eða hjólhýsapakk. Mikilvægt er að klæðast mörgum lögum af fötum í þessum stíl. Sveitalubbagallabuxur við skyrtur með bótum á olnbogum og herðum. Litir eru jarðartónar og einstaka skærir litir inn á milli. Flíkurnar eru frekar hráar og eiga að virka eins og þær séu notaðar. Culture: Þessi lína sem kennir sig við menninguna er í raun að vísa til menningarinnar á Portobello Road að sögn hönnuða Topman. Stíllinn á að vera nokkurs konar blanda af notuðum fötum og nýjum. Þröngar gallabuxur, litríkir gamaldags bolir, axlabönd og stuttir jakkar. Nokkr- ar flíkurnar eru í raun flíkur sem hönnuðirnir fundu á flóamörkuðum og létu endurgera og fjöldaframleiða. Zen: Eins og nafnið bendir til eru áhrif sótt í japanska menningu í þess- ari línu. Litirnir eru rólegir og yfirvegaðir og það er fátt sem truflar augað þegar litið er yfir fötin. Dempaðir litir eru fengnir með því að þvo flíkurnar á vissan hátt og tóna þannig skæra liti niður. Topman Dorothy Perkins Evans er staðsett í Hagkaupum og þar er einnig hægt að finna föt fyrir konur á aldrinum 30 og upp úr. Búðin einbeitir sér að því að bjóða upp á tískuvöru líka því sem aðrar tískubúð- ir bjóða upp á en í stærri stærðum. Þar af leiðandi er mikil tímabilatíska á leiðinni þar í bland við hermannaáhrif. Hvíti liturinn verður ríkjandi í bland við doppótt mynstur sem og röndótt og sterka liti inn á milli. Einnig er mikið af rómantískum fötum með blúndum og pífum og litum eins og ljósbláum, ljósbrúnum og fölbleikum. Það er gott að vita af búðum sem viðurkenna þá staðreynd að þó konur eldist þá vilja þær ennþá vera pæjur og fylgja tískunni og bæði Evans og Dorothy Perkins bjóða upp á afar sjarmerandi flíkur handa þessum konum. Evans SILFUR Sætur silfraður sixtís-kjóll úr smiðju Topshop. SIXTÍS Hér er auðvelt að sjá áhrif frá sjöunda áratugnum. EVANS Allt er vænt sem vel er grænt. Sæt prjónapeysa í sixtís-stíl. TOPMAN Rauður, blár og hvítur eru ríkjandi hjá Topman. NÖRDINN Graham Coxon í Blur og Rivers Cuomo í Weez- er eiga sennilega báðir mikinn þátt í að nördalúkkið þykir töff í dag. KÓNGURINN? Töff sólgleraugu úr Topman sem hefðu getað verið í eigu Elvis Presley. CULTURE Einnig úr línunni þar sem Portobello Road var áhrifavaldur. Gamal- dags og töff. TRAILER Þessi föt eru úr línunni Trailer og sækja áhrif í hjólhýsa- hyski Bandaríkjanna. TOPMAN Komandi sum- artíska er afar skrautleg og fjölbreytt. PORTOBELLO Þessi lína gæti vel verið beint úr næstu búð með notuð föt, en er þó væntanleg í búðir Topman. SÓLGLERAUGU Stór og flott sólgleraugu sem minna á þau sem Audrey Hepburn gekk oft með.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.