Fréttablaðið - 25.11.2005, Síða 94
25. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR62
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HRÓSIÐ
...fær William Hung fyrir að vera
alltaf svona jákvæður.
LÁRÉTT
2 gáski 6 þys 8 knæpa 9 lofttegund 11
tveir eins 12 tárfelldu 14 hroki 16 ætíð 17
hár 18 enþá 20 samtök 21 karl.
LÓÐRÉTT
1 korntegund 3 í röð 4 limlesta 5 rönd 7
fiskur 10 út af fyrir sig 13 efni 15 örk 16
er 19 ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2 fjör, 6 ys, 8 krá, 9 gas, 11 kk, 12
grétu, 14 dramb, 16 sí, 17 ull, 18 enn, 20
aa, 21 mann.
LÓÐRÉTT: 1 bygg, 3 jk, 4 örkumla, 5 rák, 7
sardína, 10 sér, 13 tau, 15 blað, 16 sem, 19
nn.
Eitthvað sem ég held að flest allir ef ekki allir upplifi
á lífsleiðinni er að standa í flörti á vinnustað. Það er
þó ekki þannig að það hafi verið ætlunin frá fyrsta
vinnuviðtali að finna sér einhvern til að daðra við á
daginn þegar makinn sér ekki til. Einhverra hluta vegna
æxlast það yfirleitt þannig að manni tekst að finna sér
einhvern til að titla „uppáhalds samstarfsmanninn“. Ég
held að ég hafi alltaf átt mér einn slíkan nema kannski
sumarið sem ég var að vinna í banka þar sem starfs-
fólkið samanstóð af tíu konum og einum karlmanni á
„besta“ aldri. Það sumar var ég sérlega iðin vinnunni
og hefur sjaldan þótt eins erfitt að koma mér af stað á
morgnana. Svo ekki sé talað um hvernig ég klæddi mig
upp fyrir daginn.
Fyrir nokkrum árum var ég að vinna á stað með fjórum
afar laglegum mönnum. Það telst mjög gott skor töl-
fræðilega séð og ég var í essinu mínu í vinnunni. Þetta
sumar var ég singúl í fyrsta sinn í mörg ár svo mér
fannst ég mega dilla mér fram úr hófi, klæðast stuttum
pilsum og vanda mig við að vera sæt. Að sjálfsögðu
krýndi ég einn þeirra sem minn uppáhalds og passaði
að hann sæi öll múvin mín.
Fljótlega var fyrsta vinnustaðardjammið haldið. Ég
hafði afskaplega mikið fyrir því að líta vel út það
kvöldið og mætti uppstríluð í besta dressinu mínu.
Þegar líða tók á kvöldið vorum við farin að sýna hvort
öðru einkennilega mikinn áhuga sem ég held að
flestir hafi tekið eftir. Þar sem nokkur hvítvínsglös voru
í höfn var athyglin á því farin að bresta. Í stuttu máli
þá endaði þetta kvöld eins og flestir höfðu séð fyrir.
Nema hvað að á leiðinni heim leið drengurinn út af
og gubbaði í leigubílinn. Ég dröslaði honum inn til
sín og undir sæng en skellti mér á sófann af hræðslu
við að maginn hans gerði frekari uppreisn. Þegar ég
vaknaði hjá honum daginn eftir, sem var nota bene
vinnudagur, sást langar leiðir að hann langaði helst
að gufa upp. Við tókum leigubíl saman í vinnuna með
stuttu stoppi heima hjá mér til að skipta um föt. Þegar
við komum í vinnuna ákváð-
um við að labba inn í hvort í
sínu lagi og reyna að vera alveg
eðlileg. Við vorum þó ekki eðli-
legri en það að allt í einu vorum
við hætt að tala saman í vinnunni
og forðuðumst hvort annað eins og
heitan eldinn. Aumingja drengurinn
þorði varla að yrða á mig það sem
eftir lifði sumars og ég einbeitti mér
að öðrum vettvöngum deitlífsins.
Ég held að það sé mun vænlegra
að standa í skemmtilegu flörti
og láta það aldrei verða meira
en flört. Það er mun vænlegra
að halda skemmtanalátunum
fyrir vinina og láta aldrei glitta í
vitleysinginn í vinnunni.
REYKJAVÍKURNÆTUR HARPA PÉTURSDÓTTIR LÆRIR AF REYNSLUNNI
Vinnustaðaflört
FRÉTTIR AF FÓLKI
Betri helmingur bandaríska rokk dúettsins the White Stripes, Meg
White, var stödd á útgáfutónleikum
íslensku sveitanna AmPop og Worm is
Green á Nasa á miðvikudagskvöldið.
Tónleikar AmPop heppnuðust víst afar
vel og meðlimir öruggir á sviðinu. Meðal
annarra gesta voru tónlistarspekúlant-
arnir Andrea Jóns, Óli Palli og Ágúst
Bogason á Rás 2 og Airwaves-mennirnir
Árni E. og Egill Vínýll. Að
sögn gesta var Meg hin
hressasta og
horfði á alla
tónleikana.
Jack White
er farinn af
landinu en
kunnugir
segja að
Meg sé
búin að
hanga á
barnum
Sirkus öll
kvöld.
Það er því
spurning hvort að hún gerist næsti
Damon Albarn íslands og kaupi hlut í
barnum.
Ein vinsælasta heimasíða landsins, www.fazmo.is, hefur lagt upp laup-
ana og í staðinn er komin ný sem ber
heitið www.tveir.is. Fazmo-klíkan varð
fræg á einni nótt þegar hún var bendluð
við slagsmál í miðborg Reykjavíkur. Eftir
töluverða fjölmiðlaumfjöllun brugðu
aðstandendur
fazmo.is á það ráð
að fríska upp á
ímynd heimasíð-
unnar. Fóru þeir
að skipta sér af
prófkjörsmálum
Sjálfstæðisflokksins
og auk þess að tjá
sig um það sem bar
hæst í þjóðmála-
umræðunni. Aðstandendur síðunnar
eru ekki hættir afskiptum af bloggi
og öðrum nettengdum málefnum þó
fazmo-síðan sé horfin á braut. Klíkan
er nú reyndar orðin tveggja manna
tal því tveir.is samanstendur af þeim
Hallgrími Andra og Ingvari Þór. Nýja
heimasíðan ber þess glögg merki að
þar eru á ferðinni þroskaðir menn með
háleit markmið því þeirra fyrsta verkefni
er að standa fyrir atburði sem ber heitið
„Við nauðgum ekki“ og verður á Óliver
í kvöld.
[ VEISTU SVARIÐ ]
1 Í lok ársins 2008
2 100 pör
3 Coca Cola
Fyrir tíu árum var Ólafi Páli Gunn-
arssyni boðið á Glastonbury-hátíð-
ina sem starfsmanni Rásar 2 af
BBC. Þessi ferð átti eftir að draga
dilk á eftir sér því þessum rafeinda-
virkja af Akranesi var í kjölfarið
boðið að vera með þátt um tónlist og
Rokkland varð að veruleika. Ólaf-
ur Páll hefur nú haft umsjón með
þættinum í áratug og því tilvalið
að fagna þessum tímamótum með
viðeigandi hætti. Boðið hefur verið
í afmæli á Grand Rokki í kvöld þar
sem starfsmenn RÚV standa fyrir
skemmtidagskrá auk þess sem hin
bráðefnilega Jakobínarína spilar en
hún á einmitt lag á nýjasta Rokk-
landsdisknum. „Reyndar eiga Roll-
ing Stones það líka en þeir áttu ekki
heimangengt að þessu sinni,“ segir
Ólafur og hlær. Þá þykir mjög lík-
legt að útvarpsmaðurinn troði sjálf-
ur upp og spili með stórsveit sinni
en það er ekki algengt að hann sýni
tónlistarhæfileika sína opinberlega.
„Nei, ég geri mjög lítið af þessu,“
útskýrir hann.
Á þessum áratugaferli hefur
Ólafur Páll komist í kynni við fjöld-
ann allan af tónlistarfólki af öllum
stærðum og gerðum. „Ég man eftir
fyrsta viðtalinu við Sigur Rós árið
1997 og þá er mér minnistætt við-
tal við Chris Martin, forsprakka
Coldplay, þegar þeir komu hingað
í fyrsta skipti,“ segir Ólafur en
Martin var svo ánægður með við-
talið að það rataði inn á heimasíðu
sveitarinnar. „Hann tók síðan mjög
vel á móti mér og konunni minni
þegar við fórum að sjá þá hita upp
fyrir U2 í Slane-kastala.“
Ólafur segist vera mjög þakk-
látur fyrir að hafa fengið tækifæri
til að vinna við ástríðuna sína sem
tónlistin sé. Hann á þó enn eftir
að taka draumaviðtalið sem er við
átrúnaðargoðið Neil Young. „Ég
veit samt ekki hvort ég myndi þora
því af ótta við vonbrigði en varla
slægi ég þó hendinni á móti því ef
mér gæfist þess kostur.“
- fgg
Á enn eftir að taka draumaviðtalið
ÓLAFUR PÁLL Hefur verið einvaldur Rokklands í tíu ár og það stefnir ekkert í að valdatím-
anum fari að ljúka enda segist Ólafur ennþá hafa gaman af því sem hann er að gera.
FRÉTTABLAÐIÐ / GVA
Í gær var í Laugarásbíói frum-
sýnd heimildarkvikmyndin Ómur
af söng en það er heimildarmynd
eftir Þórstein Jónsson. Þar er
brugðið upp mynd af lífinu á
dvalarheimilum Hrafnistu bæði
í Reykjavík og Hafnarfirði. Aðal-
persónan er Guðný Þórðardóttir
sem er 93 ára gömul en hvergi af
baki dottin. Hún syngur í kórnum,
áformar að setja á svið leikþátt og
leika þar aðalhlutverkið. Þá koma
einnig við sögu Sigurður Ólafsson
sem segist vera kominn í Paradís
og Klöru Tryggvason sem fær
sínar heimsóknir aðallega í gegn-
um pakka og símtala þar sem flest
börnin hennar búa erlendis.
Leikstjórinn var að vonum mjög
spenntur fyrir frumsýningunni.
„Þetta er mynd um hvernig það er
að lifa inni á elliheimili og hvern-
ig má hafa gaman af því,“ segir
Þórsteinn en hann var á hraðferð
niður í bíó til að taka á móti frum-
sýningargestum. „Þau eru á fullu
í sköpun, syngja í kór og þjálfa
líkamann,“ heldur hann áfram og
bætir enn fremur við að það séu
dansleikir í hverri viku. „Þetta er
heimur sem kom mér á óvart,“ við-
urkennir hann. Þórsteinn segir að
menning þessarar kynslóðar fylgi
þeim inn á heimilið og hann segist
hafa velt því fyrir sér hvað unga
fólkið taki með sér þegar þeirra
tími komi. „Ætli það verði ekki
tölvur og sjónvarp,“ segir hann og
hlær. Myndin var eitt og hálft ár
í vinnslu en hann byrjaði án þess
að hafa einhverjar ákveðnar per-
sónur í huga en svo hafi hann ein-
beitt sér að þeim persónum sem
höfðu sögu að segja. „Það er eng-
inn sögumaður sem leiðir til þess
að það þarf að taka upp mikið efni
þar sem myndirnar þurfa að segja
alla söguna,“ útskýrir hann.
Leikstjórinn segir það hálf
hryggilegt hvað unga fólkið hafi
glatað mikið af samskiptum við
eldri kynslóðina. „Við erum ekki
að vanrækja þau heldur sjálf
okkur. Það ætti í raun að vera opið
hús á Hrafnistu þar sem ungu
fólki gæfist kostur á að ræða við
öldungana,“ segir Þórsteinn. Það
var Hrafnista sem átti frumkvæð-
ið að þessari mynd en Þórsteinn
segir þetta þó vera langt frá því
að vera kynningarmynd um dval-
arheimilið. „Þeir eru það ánægð-
ir að þeir ætla að bjóða þjóðinni
frítt á myndina í næstu viku,“ segir
Þórsteinn og reiknar enn fremur
með því að myndin rati í sjónvarpið.
freyrgigja@frettabladid.is
ÞÓRSTEINN JÓNSSON: HEIMUR SEM KOM Á ÓVART
Fólkið á Hrafnistu
kann að skemmta sér
ÞÓRSTEINN JÓNSSON Frumsýndi í gær heimildarkvikmynd um íbúa á dvalarheimilum
Hrafnistu í bæði Reykjavík og Hafnarfirði. Hrafnista hefur ákveðið að bjóða þjóðinni frítt á
hana alla næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN
DV
o
g H
er
ef
or
d
ste
ikh
ús
b
jóð
a 2
f
1
út
að
b
or
ða
(Sj
á n
án
ar
in
ni
í
bl
að
in
u)
( j
i
i í
l
i
) Strokudrengur
Skilað til
félagsmála-
yfirvalda
DV
o
g
He
re
fo
rd
st
eik
hú
s b
jó
ða
2
f
1
út
a
ð
bo
rð
a
(S
já
n
án
ar
in
ni
í
bl
að
in
u)
i
j
(
j
i
i í
l
i
)
DV2x10 24.11.2005 20:51 Page 1
1 dál ur 9.9.2005 15:17 Page 1