Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.12.2005, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 02.12.2005, Qupperneq 32
 2. desember 2005 FÖSTUDAGUR32 KÍNA Nú er ljóst að yfir 160 verka- menn biðu bana í Dongfeng-kola- námunni nærri borginni Qitaihe í Heilongjiang í norðaustanverðu Kína á sunnudaginn þegar neisti hljóp í kolaryk með þeim afleið- ingum að mikil sprenging varð djúpt ofan í dimmri og þröngri námunni. Þetta slys er ekkert einsdæmi því á hverju ári bíða yfir fimm þúsund verkamenn bana í kínverskum námum. Zhang Xianzhe kom úr fjöl- skyldu sem hefur haft lifibrauð sitt af námagreftri í margar kynslóðir. Þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára gamall hafði hann stritað í Dongfeng-námunni í sjö ár fyrir rúmar tíu þúsund krónur á mánuði. Á þriðjudag- inn voru fjölskyldu hans færð tíðindin um að Zhang hefði verið á meðal þeirra sem týndu lífi í sprengingunni. „Það er ekkert sem við getum gert,“ sagði Zhang Yaowu, faðir hans, sjálfur fyrrverandi náma- verkamaður, kaldri röddu í sam- tali við fréttamann AP-frétta- stofunnar. „Við verðum að vinna og vinnan er hættuleg. Lífið heldur áfram.“ Xianchen, bróð- ur Zhangs, var hins vegar heit- ara í hamsi. „Ég get ekki lýst því hvernig mér líður.“ Námuslys kostuðu á síðasta ári yfir sex þúsund mannslíf, eða sextán á dag, og þetta ár virð- ist ætla að taka svipaðan toll. Félagasamtök frá Hong Kong sem berjast fyrir bættum aðbún- aði verkamanna telja að bana- slysum í námum fari fjölgandi með hverju árinu. Gögn þeirra benda til að sjö af þeim níu námu- slysum sem fleiri en hundrað hafa farist í frá 1949 hafi orðið á síðustu fimm árum. Þannig fór- ust 214 verkamenn í sprengingu í febrúar síðastliðnum í Liaoning- héraði. Flest slysin verða í litlum námum sem oft og tíðum hafa ekki tilskilin starfsleyfi. Örygg- istilskipanir eru sjaldnast í hávegum hafðar og loftræsting og brunavarnir eru yfirleitt með slælegra móti. Enda þótt kínversk stjórnvöld hafi lokað yfir 12.000 námum á þessu ári, stórhert eftir- lit og hert refsingar þeirra sem hundsa tilmæli um bætt öryggi virðist lítið breytast. Efnahags- uppgangur síðustu ára kallar á stóraukna orkuframleiðslu og því hefur hagkerfið heldur ekki efni á að halda námunum lengi lok- uðum eða láta fylgja eftirlitinu fast eftir. „Kínverskir kolanámu- menn greiða með blóði sínu til að Kína geti sýnt fram á átta pró- senta hagvöxt,“ segir í skýrslu samtakanna frá Hong Kong. „Það er of grimmilegt og of hátt verð að greiða.“ Rétt eins og ummæli föður Zhangs að ofan sýna eru margir Kínverjar vonlitlir um að nokk- uð muni breytast. „Þetta land er óréttlátt,“ er dómur frænku hans. Aðrir í herberginu sem viðtalið við hana fer fram í segja henni að gæta sín, slíkt geti verið hættu- legt að segja í viðurvist erlends blaðamanns. sveinng@frettabladid.is Sorgin sækir Qitaihe heim Að minnsta kosti 161 verkamaður fórst í námuslysi í Qitaihe í Kína í vikunni. Hver og einn þeirra á fjöl- skyldu og vini sem syrgja þá meira en orð fá lýst. MANNLEGUR HARMLEIKUR Ættingi eins verkamannanna frá Qitaihe brestur í grát þegar hún heyrir um örlög ástvinar síns. Slys á fjarlægum slóðum eru oft meðhöndluð eins og hver önnur tölfræði í vestrænum fjölmiðlum. Á bak við hvert einasta dauðsfall eru hins vegar manneskjur sem verða aldrei samar eftir að ógæfan hefur dunið yfir. NORDICPHOTOS/AFP 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.