Fréttablaðið - 02.12.2005, Síða 41
FÖSTUDAGUR 2. desember 2005 5
Mónika Melkorka Arnarsdóttir
er sjö ára gömul og er rosalega
dugleg að spara peninga. Hún
er búin að missa fjórar tennur
sem hún setti undir koddann
fyrir tannálfinn.
Mónika var ekki alveg klár á því
hversu margir peningar væru í
sparibauknum þegar blaðamaður
spurði hana að því. Baukurinn var
hins vegar nokkuð þungur og Món-
ika er viss um að í bauknum leynist
nokkrir seðlar. „Það eru fjólubláir
seðlar í bauknum,“ segir hún stolt
og sýndi blaðamanninum einn
fjólubláan seðil sem hún fékk frá
tannálfinum, og hún geymir seðil-
inn á góðum stað í herberginu sínu
svo enginn komist í hann.
Peningana sem Mónika fær í
baukinn segist hún fá frá mömmu
sinni. „En svo vinn ég líka fyrir
peningum. Ég tek til á laugardög-
um og þá fæ ég einn rauðan pening.
Svo á ég líka Latabæjarpeninga og
þegar kemur sumar þá ætla ég að
kaupa hollan mat og papriku fyrir
Latabæjarpeningana. Maður getur
ekki keypt dót fyrir Latabæjarpen-
ingana bara hollan mat, sem maður
kaupir í Hagkaup.“
Mónika á líka fullt af peningum
í bankanum. „Spairbaukurinn er
fullur. Ég á tvo sparibauka en hinn
er í bankanum. Í bankanum á ég
alveg meira en mamma og Logi,“
segir Mónika og blaðamaðurinn
gapti af undrun og sagði henni
að hún væri nú ekkert smá rík að
eiga svona marga peninga. „Já ég
veit,“ samþykkir Mónika. „Ég ætla
að geyma peningana þangað til ég
verð 19 ára þá ætla ég að kaupa mér
hús og bíl og gjöf handa mömmu.“
Mónika segist halda að fólk verði
ríkt með því að safna peningum og
vinna en einnig segir hún fólk vera
ríkt þegar það á góða vini og góða
mömmu. johannas@frettabladid.is
Maður er ríkur þegar maður á góða mömmu
Mónika Melkorka Arnarsdóttir
er hagsýn sjö ára gömul stelpa.
Jólasmjörið
er nú selt á
tilboðsverði
í öllum
verslunum.
Allir þurfa
smjör en
kannski
sjaldan
jafn mikið
og nú þegar
jólin eru á
næsta leiti. Stórbaksturinn er
fram undan, smjör er nauðsynlegt
á laufabrauðið og enginn kemst í
gegnum jólin án góðrar smjörklípu.
Osta- og smjörsalan er því komin
í hátíðaskapið og hvetur alla til að
kaupa sér jólasmjörið á tilboði í
næstu verslun.
Jólasmjörið á tilboði
NÚ ER LAG AÐ GRÍPA EITT SMJÖR-
STYKKI ÚR BÚÐINNI.
Vinnufatabúðin býður nú upp á
20-30 prósenta afslátt af öllum
kuldaflíkum. Afslættinum lýkur
ekki fyrr en í mars en á niðursettu
verði eru tíu til fimmtán tegundir af
kuldajökkum og -úlpum fyrir herra.
Viðskiptavinum er velkomið að
skipta vörunum í aðra stærð eða flík
og eru ein tímamörk sett á skilin,
hvort sem fólk vill skipta fyrir eða
eftir jól. Vinnufatabúðin er til húsa á
Laugavegi 76.
tilboð }
Kuldadagar
20-30 PRÓSENTA AFSLÁTTUR AF
ÖLLUM KULDAJÖKKUM OG -ÚLPUM
Í VINNUFATABÚÐINNI.
Í ÚTILÍFI Í SMÁRALIND Í DAG GEFST
FÓLKI KOSTUR Á AÐ KAUPA SÉR
HLAUPASKÓ FRÁ ADIDAS Á KYNN-
INGARAFSLÆTTI.
Í dag aðstoða sérfræðingar frá
Adidas fólk við að velja hlaupaskó
sem henta hlaupalagi hvers og
eins og verður sú hlaupagreining
viðskiptavinum að kostnaðarlausu.
Einnig verða Adidas-hlaupaskórnir á
20 prósent kynningarafslætti. Sértu
svo ekki ánægð eða ánægður með
skóna þína getur þú fengið þá end-
urgreidda. Hlaupagreiningin verður
á milli klukkan 13 og 18 í Útilífi í
Smáralind.
Adidas á afslætti
HLAUPAGREINING OG KYNNINGAR-
AFSLÁTTUR Í ÚTILÍFI.