Fréttablaðið - 02.12.2005, Page 67
Stórsveitin Benni Hemm Hemm
mun gefa út samnefnda hljóm-
plötu í byrjun næsta árs í Japan.
Þar með fetar hún í fótspor Sigur
Rósar, Bjarkar og Quarashi sem
öll hafa gert góða hluti í austrinu
þó sú síðastnefnda hafi notið hvað
mestra vinsælda þar. Reyndar var
Benedikt H. Hermannsson, for-
sprakki sveitarinnar, með báða
fæturna á jörðinni þegar Frétta-
blaðið náði tali af honum í rokinu
við Langholtskirkju. Þar var hann
á leiðinni út í bakarí enda kominn
hádegismatur í Sólheimabókasafni
þar sem Benedikt starfar sem
bókavörður í hálfu starfi.
„Þetta er ótrúlega magn-
að,“ sagði hann en það er P-Vine
Records sem gefur plötuna út.
Hann sagði að útgáfufyrirtækið
ætlaði þó að fara rólega í sakirnar.
Hljómsveitin Benni Hemm
Hemm er engin venjuleg hljóm-
sveit því meðlimafjöldi fer aldrei
undir níu manns en hefur mest-
ur verið fimmtán. „Ég hef aðeins
verið að reikna út ferðakostnað
fyrir okkur ef við myndum fara til
Japans.
Með farmiðum og gistingu á
farfuglaheimilum yrði kostnaður-
inn í kringum tvær milljónir,“ segir
Benedikt, sem virðist þó ekki ætla
láta það stöðva ferðina. „Ég ætla
að þrjóskast við og rannsaka þetta
eitthvað frekar,“ segir hann og því
ekki loku skotið fyrir að Japanir fái
heimsókn frá einhverri fjölmenn-
ustu sveit landsins.
Platan hefur gengið vel hér
heima og er fyrsta upplag að
klárast. Þrátt fyrir að Benedikt
sé auðvitað mjög ánægður með
góðar viðtökur fylgir þessari vel-
gengni ákveðið stress því nú þarf
að útvega næsta upplag. „Ég hafði
alls ekki gert ráð fyrir þessu.“ ■
Hyggur á landvinninga í austri
BENEDIKT H. HERMANNSSON Bókavörðurinn reynir að finna út hvernig ódýrast sé að komast
til Japans en plata Benna Hemm Hemm kemur þar út í byrjun næsta árs. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ítalski hetjutenórinn Luciano
Pavarotti hefur staðfest þann
orðróm að hann ætli sér að endur-
nýja kynni sín við Jose Carreras
og Placido Domingo. Verður þetta
í allra síðasta skipti sem þeir koma
fram saman undir heitinu „Tenór-
arnir þrír“.
Pavarotti, sem er sjötugur að
aldri, vill láta tónleikana vera
lokakaflann á löngum og farsæl-
um ferli en hann hyggst brátt
hætta að syngja opinberlega. „Ég
held að við verðum að halda eina
til tvo tónleika áður en yfir lýkur,“
sagði Pavarotti við fréttamenn á
dögunum.
Sameinast á ný
DOMINGO, CARRERAS OG PAVAROTTI
�����������
�� �����������������
�������� ���
���������
FÖSTUDAGUR 2. desember 2005 51
Curtain Call: The Hits inniheldur alla
smelli kappans ásamt nýju efni. 17
laga plata sem inniheldur smelli á
borð við My Name Is, The Way I
Am, Lose Yourself og Stan ásamt
þremur nýjum lögum,
þ.á m. When I’m Gone.
Tvöfalda deluxe útgáfan inniheldur
aukadisk “Stan’s Mixtape”.
1.799
Einfaldur
1.999
Tvöfaldur - CD
Fersk
tónlist.
..
...í jólapakkann
í ár!
1.999
DVD
The Anger Management Tour sýnir þessa súperstjörnu
rappsins á tónleikum sem hann hélt í heimaborg sinni Detroit.
Hann tekur hér alla smelli sína ásamt 50 Cent, G-Unit, D12 og
Obie Trice. Einnig fullt af aukaefni á disknum.