Fréttablaðið - 02.12.2005, Side 68
2. desember 2005 FÖSTUDAGUR52
HINN FULLKOMNA HELGI: BIRGITTA HAUKDAL SÖNGKONA
����������������������
�����������������������������
���������������
��������������
����������������
��������
�������������
������
���������������
��������������� ��
���
��
��
��
�
�
��
��
��
��
��
�������
�������������
����������
�������������������������������������������������
����������������
�����������������
�����������������
Í kvöld munu sjö keppendur reyna að komast í tólf manna hópinn sem keppir í Smára-
lindinni. Það verður spennuþrung-
ið andrúmsloftið á Nasa þegar
keppendur stíga á svið og reyna
að heilla þjóðina og dómnefnd-
ina upp úr skónum. Simmi og
Jói eru sem fyrr kynnar kvölds-
ins en dómnefndina skipa Bubbi
Morthens, Sigríður Beinteins-
dóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson og
Einar Bárðarson.
Brynjar Örn Gunn-
arsson fær það erfiða
hlutskipti að koma fyrstur fram.
Þessi 23 ára gamli Suðurnesjam-
aður segir áhrifamestu bókina
sem hann hafi lesið vera Hringa-
drottinssögu en hann vill allra
helst hitta Steven Spielberg. Það
kemur heim og saman við hvar
Brynjar Örn sér sjálfan sig eftir
fimm ár; Að vinna í Hollywood
við einhverja stórmynd.
Inga Þyrí Þórðardótt-
ir er önnur á sviðið en
þessi 23 ára gamla Kópavogsmær
er skírð í höfuðið á ömmu sinni.
Hún hlustar mest á Ragnheiði
Gröndal um þessar mundir en lang-
ar til að hitta Arethu Franklin. Hún
hræðist tannlækna en munnurinn
á henni breytti eitt sinn lífi henn-
ar því Inga smakkaði á logandi
stjörnuljósi þegar hún var lítil.
Erla Stefánsdóttir er
þriðji keppandi kvölds-
ins en fyrirmyndin í lífi þessarar 22
ára gömlu Reykjavíkurmeyjar er
mamma hennar enda segir Erla að
mamma sín sé kjarnakvendi. Erlu
dreymdi alltaf um að verða fræg-
asta söngkona í heimi sem tæki
Hollywood með trompi. Hún segir
að ekkert komi í staðinn fyrir þá
upplifun þegar hún fékk prinsinn
sinn í fangið á fæðingardeildinni.
Hafnfirðingurinn Dan-
íel Óliver Sveinsson er
fjórði í röðinni. Þessi tvítugi gaf-
lari væri alveg til í að eyða eins
og einni næturstund með þokkag-
yðjunni Angelinu Jolie og slægi
hendinni ekkert á móti því að hitta
leikarana úr Friends. Farsíminn
leikur stórt hlutverk í lífi Daníels
sem hann segir að bjargi félagslífi
sínu daglega.
Tinna Björk Guðjóns-
dóttir er yngst allra í
kvöld, en þessi sextán ára gamla
yngismær er frá Egilsstöðum.
Hana dreymdi um að taka þátt í
Eurovision þegar hún var lítil en
eftir fimm ár segist hún sjá sjálfa
sig upplifa annan æskudraum sem
sé að klára hárgreiðslunámið.
Tinna Björk heldur mikið upp á
armband sem nafn hennar og vinar
er grafið á.
Harpa Soffía Einars-
dóttir er 22 ára gömul
Reykjavíkurmær. Ef hún fengi
að vera ein í einn dag myndi hún
fara í fjallgöngu með nesti og nýja
skó, leggjast svo í heitt bað með
kertaljós og góða bók. Væntanlega
yrðu geitungar víðs fjarri þennan
ágæta dag því Harpa Soffía hræði-
st ekkert meira en þá.
Angela Ingibjörg
Coppola er nítján ára
gömul og er úr Reykjavík. Fyr-
irmyndir hennar í lífinu eru for-
eldrarnir en hana langar allra
mest til að hitta hálfnafna sinn,
bandaríska kvikmyndaleik-
stjórann Francis Ford Coppola.
Þegar hún var lítil langaði hana
til að ferðast um heiminn en
mest breyttist líf hennar við að
flytjast til Íslands.
Þriðji hópurinn reynir fyrir sér í kvöld
Erla Stefánsdóttir 900 9003
SMS í 1918 Idol 2
Tekur lagið True Colours sem Phil Collins
gerði ódauðlegt á sínum tíma.
Tinna Björk 900 9005 SMS í
1918 Idol 5
Tekur lag íslenska söngfuglsins Emiliönu
Torrini, Sister.
Angela Coppola 900 9007
SMS í 1918 Idol 7
Flytur Because of you sem önnur Idol-
stjarna, Kelly Clarkson, söng.
Söngvarinn Garðar Thór Cortes
heldur tvenna útgáfutónleika ásamt
hljómsveit og strengjasveit í Graf-
arvogskirkju á laugardag í tilefni
af sinni fyrstu plötu, Cortes.
Friðrik Karlsson mun fljúga frá
London til að taka þátt í tónleikun-
um og Óskar Einarsson mun leika á
píanó, en þeir félagar stjórnuðu upp-
tökum á plötunni. Garðar Cortes,
faðir Garðars Thórs, mun stjórna
tuttugu manna strengjahljómsveit
og einnig er von á góðum gestum
til að taka lagið með Garðari.
Garðar segist ekki kvíða því
að syngja á tvennum tónleikum
í röð. „Fyrst maður getur sungið
heilu óperusýningarnar sem eru
þrír klukkutímar þá hlýtur þetta
að vera í lagi,“ segir hann í léttum
dúr.
Garðar er nýkominn frá Nor-
egi þar sem hann söng í Rigoletto.
Eftir útgáfutónleikana byrjar hann
síðan að æfa fyrir Öskubusku sem
verður frumsýnd í Íslensku óper-
unni 5. febrúar. Þar fer hann með
hlutverk prinsins Don Ramiro.
Aðspurður segist Garðar vera
hæstánægður með viðtökurnar
við sinni fyrstu sólóplötu. „Ég
er voðalega feginn að fólk skuli
taka vel í þetta. Maður veit aldrei
hvernig eittvað svona fer í fólk,“
segir hann.
Uppselt er á fyrri tónleikana
sem hefjast klukkan 18.00 en ennþá
eru laus sæti á seinni tónleikana
sem byrja klukkan 21.00. Miðasala
fer fram í Skífunni, í BT utan
höfuðborgarsvæðisins og hjá
Concert.
Tvennir útgáfutónleikar Garðars
Á FERÐ OG FLUGI Söngvarinn Garðar Cortes hefur verið á ferð og flugi að undanförnu.
Hann heldur tvenna útgáfutónleika í Grafarvogskirkju á laugardag.
Það verður í nógu að snúast hjá söngkon-
unni Birgittu Haukdal. „Það sem stendur
uppúr eru útgáfutónleikarnir hjá okkur í
Írafári í Austurbæ á laugardaginn,“ segir
hún, en þar mun sveitin afhenda ágóðann
af útgáfutónleikunum sem sveitin hefur
staðið fyrir í samvinnu við Íslandsbanka til
styrktar Einstökum börnum.
Að sögn Birgittu nálgast þau nú óðfluga
takmarkið sem þau settu sér í upphafi og
segist hún vonast til að geta afhent tvær
og hálfa milljón. „Það verður virkilega góð
tilfinning.“ Þar með er dagskrá Birgittu ekki
tæmd því daginn áður verður hún á fullu
við að árita plötur og syngur auk þess á
nokkrum jólatónleikum. Sunnudagur fer
meira eða minna í það sama en auk alls
tónleikahalds er Birgitta líka að lesa inn á
teiknimynd.
„Það er náttúrlega draumur sérhvers
tónlistarmanns að hafa nóg að gera,“ svarar
Birgitta þegar hún er spurð hvort það sé
ekkert þreytandi að eyða helgunum í stöðu-
gt spilerí og kynningarstarf. „Mánudagar og
þriðjudagar eru helgarnar hjá mér þannig
að henni er eiginlega bara seinkað um tvo
daga,“ segir hún og hlær.
Desember er annasamur mánuður hjá
jafn vinsælum söngfuglum og Birgittu. Það
gefst því lítill tími til afslöppunar og Birgitta
ætlar því að nýta janúarmánuð vel og fara
meðal annars í skíðaferð til Austurríkis
með kærastanum sínum. „Janúar verður
fjölskyldumánuður hjá mér.“ -fgg
Helginni seinkað um tvo daga
Brynjar Örn 900 9001
SMS í 1918 Idol 1 Brynjar Örn mun
flytja lagið Álfheiður Björk sem Eyjólfur
Kristjánsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson
gerðu frægt í Landslagskeppni Stöðvar 2.
Inga Þyrí 900 9002
SMS í 1918 Idol 2 Inga Þyrí kemur til
með að syngja lagið Against All Odds úr
samnefndri kvikmynd en höfundur lagsins
er Phil Collins.
Daníel Óliver 900 9004
SMS í 1918 Idol 4 Ætlar að taka Ticket
to Ride eftir fjórmenningana frá Liverpool,
The Beatles.
Harpa Soffía 900 9006
SMS í 1918 Idol 6 Syngur lag
kántrístjörnunnar Shaniu Twain, You are
still the one.
IDOL 1
IDOL 2
IDOL 3
IDOL 4
IDOL 5
IDOL 6
IDOL 7