Fréttablaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
42%
61%
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
Fr
é
tt
a
b
la
›
i›
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í október 2005.
Lestur me›al 25–49 ára.
Lestur laugadaga
Lestur meðal 25-49 ára
Sími: 550 5000
LAUGARDAGUR
3. desember 2005 — 327. tölublað — 5. árgangur
JÓN SÆMUNDUR AUÐARSON
Hræðist ekki stuld
úti í hinum stóra heimi
Málar portrett af Tarantino og býður upp á kaffi
FÓLK 74
Allt um jólahlaðborð
Desember er tími
ofgnóttar í mat,
drykk, samveru
og kærleika. Í
blaðinu gefur að
líta sýnishorn
af aðeins
fáeinum valkostum þegar kemur að
jólahlaðborðum þetta árið.
MATUR 32
BRAGI BALDURSSON
Föndrar í skúrnum
með konunni
jól • bílar • tíska
Í MIÐJU BLAÐSINS
DÝRAHALD Hvolpar hafa bor-
nir út og fundist á vergangi við
Hvaleyrarvatn undanfarnar vikur
og mánuði að sögn Jóns Sigurðs-
sonar, hundaeftirlitsmanni í
Hafnarfirði.
Ung hestakona, Jóna Magnús-
dóttir, fann lítinn bjargarlausan
hvolp við Hvaleyrarvatn í Hafnar-
firði í fyrradag. Jóna kveðst hafa
verið á ferð með hóp útlendinga á
þessum slóðum þegar hún tók eftir
því að dýr skaust upp úr holu við
veginn. Þegar nánar var að gáð
reyndist vera um lítinn hvolp að
ræða, sem haldið hafði til við enda
svers rörs sem liggur undir veginn.
„Ég tók hvolpinn í fangið og
reið með hann heim,“ segir Jóna.
„hann var glorsoltinn, svo ég fór
með hann á dýraspítalann í Garða-
bæ. Það er talið að hann sé átta
vikna gamall.“
Jóna hafði samband við lög-
reglu, hundaeftirlitsmann og gerði
jafnframt grein fyrir fundi hvolp-
sins á dýraspítalanum. Hvergi
hafði verið grennslast fyrir um
hann. Hún tók hann því heim til
sín í fyrrakvöld þar sem hann
var í góðu yfirlæti yfir nóttina og
í gær. Hún segir eins gott að hún
hafi fundið hann því í nótt sem leið
hafi frostið á þeim slóðum sem
hún fann hann farið niður í um 10
stig.
Jón kveðst ekki hafa tölu yfir
hversu margir hvolpar hafi verið
skyldir eftir. Síðast hafi hann
fundið um tveggja mánaða hvolp
fyrir um það þremur vikum, sem
að vísu hafi verið í byggð en
þvælst þar um vegalaus. Enginn
hafi spurt eftir honum, svo honum
hafi verið ráðstafað á gott heimili.
„Við geymum hvolpa sem
svona er ástatt fyrir í sjö daga,“
segir Jón. „Eftir það reynum við
að koma þeim á góð heimili.“
Spurður hvort hafi þurft að
aflífa hvolpa sem hafi fundist með
þessum hætti segir hann það hafa
komið fyrir, hafi þeir ekki gengið
heimili. Hann segir hvolpana hafa
verið svanga, en engan þó svo illa
farinn að þurft hafi að aflífa hann
af þeim sökum.
„Hundum hefur fjölgað mjög á
því svæði, sem ég hef eftirlit með,“
segir Jón. „Ég vil nota tækifærið
og höfða til fólks um að það axli
þá ábyrgð sem fylgir því að eiga
gæludýr. Ég trúi því ekki fyrr en
ég tek á að nokkur láti sér detta
í hug að bera út nokkurra vikna
hvolp, né losa sig við hund með
þeim hætti að skilja hann einhvers
staðar eftir. Slíkt athæfi er aldrei
réttlætanlegt.“ jss@frettabladid.is
ÞESSI VAR HEPPINN Þessi litli hundur var heppinn að Jóna Magnúsdóttir skyldi skjóta yfir hann skjólshúsi eftir að hafa fundið hann á
vergangi. Frostið á þeim slóðum fór niður í allt að tíu stig í fyrrinótt og þarf ekki að spyrja að örlögum hans hefði hann hírst við vegrörið
þar sem hann fannst.
Hvolpar bornir út
við Hvaleyrarvatn
Lítill hvolpur fannst glorhungraður skammt frá Hvaleyrarvatni í Hafnarfirði
síðdegis í fyrradag. Hundaeftirlitsmaður segist hafa fundið nokkra unga hvolpa
á liðnum vikum og mánuðum.
ÚRKOMULÍTIÐ Í BORGINNI
Slyddu- eða snjóél á Vestfjörðum og
norðvestan til, rigning eða slydda allra
austast, annars yfirleitt úrkomulítið. Hiti
2-5 stig sunnan og austan til, annars
0-3 stig en víða frost inn til landsins.
Kominn í aðallið Viking
Hinn stórefnilegi leikmaður Birkir
Bjarnason er kominn í aðallið norska
félagsins Viking aðeins
17 ára gamall. Hann
á ekki langt að sækja
hæfileikana enda karl
faðir hans gamall
markaskorari.
ÍÞRÓTTIR 68
Meistarinn
Hárgreiðslumeistarann
Gulla á Nikk kannast
flestir við í sjón. Hér
talar hann um óvænt
föðurhlutverk, gleði-
tækna og brostna
balletdrauma.
VIÐTAL 26
Hannesi svarað
Einari Kárasyni þykir umvandanir
Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar
um vönduð vinnubrögð koma úr
hörðustu átt.
UMRÆÐAN 12
KOSTA-RÍKA, AP Tvíhöfða skjaldba-
ka kom úr eggi á Kyrrahafsströnd
Kosta-Ríku í síðasta mánuði.
Systkinin Melvin og Olger
Chavarria komu auga á skepnuna
á dögunum þar sem hún stakk
báðum hausunum upp úr sjónum
til að anda. Þau segjast aldrei
hafa séð annað eins á þeim fimm-
tíu árum sem þau hafa fylgst með
sæskjaldbökum á svæðinu.
Talsmaður umhverfisvernd-
ar-samtakanna World Wild-
life Fund á svæðinu segir men-
gun sjávar eða breytingar á
loftslagi hugsanlegar skýringar
á vansköpuninni. ■
Óvenjulegur fundur:
Sæskjaldbaka
með tvö höfuð
TVÍHÖFÐI Marghöfða skjaldbökur eru
sjaldséð sjón og eru þær að mati náttúru-
verndarsinna til marks um mengun og óáran.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
JAMES BOND KOMINN TIL ÍSLANDS
Sir Roger Moore
í viðtali
VIÐTAL 62
FANGAFLUG Í það minnsta tvær
flugvélar á vegum bandarísku
leyniþjónustunnar CIA eru taldar
hafa komið við í Frakklandi, önnur
eftir millilendingu á Íslandi, eftir
því sem franska dagblaðið Le
Figaro hermir.
Að sögn blaðsins millilenti
vélin í Keflavík áður en hún flaug
áleiðis til Frakklands með fanga
frá Mið-Austurlöndum innan-
borðs í mars 2002, en þaðan hélt
hún svo til Tyrklands.
Hin vélin lenti á flugvellinum
í Brest í júlí á þessu ári, eftir að
hafa haft viðkomu í Ósló. ■
Dagblaðið Le Figaro:
Fangaflugvél
kom frá Íslandi
FJÁRNÁM Árangurslaust fjárnám
í eignum fólks undir þrítugu,
er þrjátíu prósentum algen-
gara nú en það var árið 2001.
Þetta kom fram í svari Björns
Bjarnasonar dómsmálaráð-
herra við fyrirspurn Valdimars
L. Friðrikssonar, þingmanns
Samfylkingarinnar.
Flestar árangurslausar til-
raunir til fjárnáms eru gerðar
hjá þrítugum einstaklingum,
en þær voru 635 á umræddum
fimm árum. Það sem af er þessu
ári hafa verið gerðar 1.106
árangurslausar tilraunir til fjár-
náms hjá aldurshópnum fimmtán
til þrjátíu ára. - saj
Ungir Íslendingar:
Fjárnám án
árangurs eykst
DÓMSMÁL Hjónum og tólf ára
gömlum fjölfötluðum syni þeirra
hafa verið dæmdar rúmlega
24,2 milljónir króna í bætur, auk
vaxta, vegna mistaka starfsfólks
Landspítalans á meðgöngu og
við fæðingu drengsins. Málið var
höfðað árið 2002 á hendur ríkinu,
en því var einnig gert að greiða
þrjár milljónir í málskostnað.
Heildarkrafa fólksins hljóðaði
hins vegar upp á rúmar 70
milljónir króna.
Drengurinn varð fyrir alvar-
legum súrefnisskorti á meðgöng-
unni og er varanlega þroskaheftur
og alvarlega heyrnarskertur. Mat
dómsins er að fötlun piltsins megi
rekja til ófullnægjandi meðhöndl-
unar, eftirlits og viðbragða starfs-
fólks spítalans við meðgöngu og
fæðingu hans.
Ríkinu var gert að greiða pilt-
inum rúmlega 18,2 milljónir króna
í bætur, en þá hefur verið tekið
tillit til rúmlega 7,1 milljónar
krónu greiðslu Trygginga-
stofnunar sem kom til frádráttar
heildarbótunum.
Móður piltsins voru dæmdar 5
milljónir króna vegna tekjutaps
sem hún hefur orðið fyrir vegna
umönnunar drengsins og svo var
foreldrum hans dæmd ein milljón
króna vegna útlagðs kostnaðar,
þar með talið vegna talkennslu og
talmáls- og iðjuþjálfunar. - óká
Mistök á Landspítalanum við meðgöngu og fæðingu barns árið 1993:
Ríkið borgi yfir 24 milljónir
FÆÐINGARDEILD LHS Í dómi Héraðsdóms
frá því í gær er bent á fjögur atriði sem fóru
aflaga á meðgöngu pilts sem dæmdar voru
bætur vegna skaða sem hann hlaut.