Fréttablaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 60
3. desember 2005 LAUGARDAGUR40
S vart er í tísku. Ekki bara svart heldur svart í svart. Lög af svörtu; svört föt,
svartir skór, svartir skartgripir
og aukahlutir. Í vetur er svart líka
rómantískt. Efnin eru fljúgandi
sjiffon, kósý kasmír, þvegið
flauel, pelsar, glitrandi steinar og
fallegar blúndur. Svarti galdurinn
er hinn klassíski „litli svarti kjóll“.
Hann er hægt að nota sem grunn
við öll tækifæri, með gallabuxum,
háum stígvélum, prjónapeysu
og svartri tvíhnepptri ullarkápu
eða með pinnahælum, svörtum
skartgripum, litlum pels og
svartri glitrandi tösku. Blandið
öllu saman og allt er leyfilegt,
það er bara eitt skilyrði, svart í
svart!
Einsleitt!
Það sem sjá má á síðum
tískutímarita í förðun er matt og
dramatískt. Sansering og glimmer
hefur fengið að víkja í bili. Djúpir
varalitir og girnilegar varir ráða
ríkjum og eru aðalatriðið. Lýtalaus
húð með möttum eða náttúrulegum
gljáa og hún fær að njóta sín.
Brúnir mattir tónar renna saman
og gefa rómantískan blæ og
skerpa og ýkja vel alla náttúrulega
skugga. Nota vel af farða en vinna
hann vel með fingrum. Púðra
yfir en ekki of mikið. Bara rétt
til að „setja“ farðann þannig að
hann hreyfist ekki. Skyggja vel
með sólarpúðri undir kinnbein og
aðeins á enni, nef og höku. Nota
ca. 3 tóna af augnskugga, byrja á
húðlituðum og svo tvo brúntóna liti,
í sitt hvorum styrkleika. Nota skal
matta liti. Mikið af maskara til
að gefa dramatískan blæ. Skerpa
augabrúnir ef þarf en hafa þær
náttúrulegar. Klára þetta með
möttum varalit í blábleiktóna lit
sem líkist eigin varalit og velja
blýant í sama tóni. Til að gera
þetta meira glam má skella glossi
yfir augnlok. Heildaryfirbragð er
glæsilegt og dramatískt. Einfalt
og sterkt. ■
Slakaðu á fyrir jólin
Nú sér Pósturinn líka um að prenta jólakortin
www.postur.is
Pósturinn býður nýja þjónustu sem gerir þér kleift að hanna vandað
jólakort með eigin mynd og senda til vina og vandamanna á einfaldan
og ódýran hátt.
Búðu til heimilisfangalista
sem uppfærist sjálfkrafa
Þú getur búið til þinn eigin heimilisfangalista og vistað á vef
Póstsins. Þar safnarðu saman á einn stað heimilisföngum vina og
vandamanna sem þú vilt geyma. Listinn uppfærist sjálfkrafa og þú
hefur því alltaf aðgang að réttum upplýsingum um heimilisföngin.
Pósturinn sér um að láta prenta jólakortin í frábærum gæðum,
setja þau í umslög og ganga frá þeim til sendingar, árita
umslögin samkvæmt þínum nafnalista á www.postur.is
og bera jólakortin út til viðtakenda innanlands og utan.
Farðu inn á www.postur.is og kláraðu jólakortin með
fjórum einföldum aðgerðum.
1. Veldu mynd á jólakortið
2. Skrifaðu texta á jólakortið
3. Skráðu inn nöfn og heimilisföng
4. Greiddu og sendu
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
SP
2
95
37
12
/0
5
Svarti galdur
Myndir: NÍNA BJÖRK GUNNARSDÓTTIR
Stílisti: HELGA ÓLAFSDÓTTIR
Fyrirsæta: SUNNA BJÖRNSDÓTTIR
Förðun: GUÐBJÖRG HULDÍS
Fatnaður: KAREN MILLEN OG ZARA