Fréttablaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 94
3. desember 2005 LAUGARDAGUR74
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT 2 listastefna 6 í röð 8 starfs-
grein 9 að 11 ónefndur 12 yfirstéttar
14 hneisa 16 bardagi 17 stúlka 18
pípa 20 þys 21 innyfla.
LÓÐRÉTT 1 þraut 3 frá 4 ballerína 5
beita 7 stoppistöð 10 draup 13 hjör
15 drykkur 16 örn 19 tveir eins.
LAUSN
Útreyktir barir
- Takið forskot á
reykingabannið
2007 og
upplifið hvað
það er gott
að sitja á
reyklausum
LÁRÉTT: 2 dada, 6 áb, 8 fag, 9 til, 11 nn,
12 aðals, 14 skömm, 16 at, 17 mey, 18
rör, 20 ys, 21 iðra.
LÓÐRÉTT: 1 gáta, 3 af, 4 dansmey, 5
agn, 7 biðstöð, 10 lak, 13 löm, 15 mysa,
16 ari, 19 rr.
NÚNA BÚIÐ
Fiskur og franskar -
Mesta furða hvað það
er lítið framboð af
þessu eðalfæði í landi
fisksins. Kebab húsið
á Lækjargötu er þó
með fínastu útgáfu af
þessum rétti.
Klassískir
tónleikar - nú
eru að koma
jól. Setjið pönk-
ið á hilluna og
látið tónana
færa ykkur á
guðlegt plan.
Kitsch-fatasmekkur
- Glingur, skærir
litir, flegin föt og
drasl. Hver sagði að
Footballer‘s Wives
lúkkið væri smart.
„Trendy“ veitingastaðir.
Almáttugur, reynið að virkja
hugmyndaflugið og koma
með eitthvað nýtt.
Stjörnulúkk fyrri
áratuga - nú eru
jólaboðin í algleym-
ingi og takið fram
klassísku sparifötin.
Klassi klikkar aldrei.
OPIÐ ALLA LAUGARDAGA 10-14
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
STÓR HUMAR
RISARÆKJUR
HÖRPUSKEL
TUNFISKUR
SALTSÍLD
KRYDDSÍLD
1 dálkur 9.9.2005 15:20 Page 7
HRÓSIÐ
...fær Thelma Ásdísardóttir,
ljósberi ársins.
„Ég heyri alltaf öðru hvoru af
þessu en þetta er bara heiður ef
satt reynist,“ segir Jón Sæmundur
Auðarson hjá Dead f um orðróm
þess efnis að hugmyndum hans
hafi verið stolið á erlendri
grundu. Jón segir sögur um
meintan þjófnað alltaf spretta
upp öðru hvoru. Hann segir að
ef einhver fótur er fyrir þessu
sé það yfirleitt í litlu mæli að
ekkert þýði að vera eltast við
slíkt því málareksturinn svari
ekki tilkostnaði. „Stundum sér
fólk eitthvað með hauskúpu eitt
augnablik og heldur að það sé
stuldur á höfundarrétti,“ útskýrir
hann en Jón Sæmundur er með
einkaleyfi á sinni kúpu og er því
greinilega ekkert stressaður. „Ég
hef bara gaman af þessu,“ bætir
hann við. „Ég er annars með
Dauða - lögfræðing í New York
þar sem þessar sögusagnir skjóta
yfirleitt upp kollinum og ef þetta
fer að verða í einhverju magni
hef ég samband við hann,“ segir
Jón og hlær enda er víst ekkert
grín að lenda í klónum á þeim
ágæta manni.
Jón Sæmundur hefur í nógu að
snúast þessa dagana. Myndlist-
arsýning stendur yfir í Gallerí
Box á Akureyri og hann er á fullu
við að undirbúa portrett sýningu
sem ráðgert er að opni árið 2007.
„Ég hef verið að bjóða fólki inn
af götunni í kaffi, taka af því
myndir og mála það svo,“ segir
Jón Sæmundur en meðal þekktra
andlita má nefna bandaríska
leikstjórann Quentin Tarantino
en honum fannst alveg sjálfsagt
að sitja fyrir.
Verslunin hefur verið vinsæl
meðal fræga og fína fólksins
sem sækja landið heim en Jón
er sjálfur ekkert of upptekin af
tíðum gestagangi þeirra. „Það
er kannski létt hallærislegt að
allir skuli koma hingað en ég get
á hinn boginn nýtt mér mynd-
ir af þeim þegar ég er að reyna
koma framleiðslunni á framfæri
erlendis,“ segir hann en Jón er í
útrásarhugleiðingum og er meðal
annars með umboðsmann í Kaup-
mannahöfn sem og í Los Angeles
og New York. Þá er hann að leggja
lokahönd á nýja afurð sem er hans
eigin útgáfa af sígildri heimil-
islist en Jón hyggst endurvekja
gömlu útsaumuðu plattanna
með orðunum „Drottinn Blessi
Heimilið“. „Þetta er gert með
silkiprent á mdf - plötur með
lakki og olíulit,“ útskýrir hann
og telur þetta geta fært aukna
hlýju inná heimili unga fólksins.
„Annars er ég að leita að hentugra
húsnæði þar sem ég get tengst
myndlistinni enn frekar.“
freyrgigja@frettabladid.is
JÓN SÆMUNDUR Með sína eigin
útfærslu af gömlu útsaumuðu
plöttunum sem orðin Drottinn
Blessi Heimilið prýða. Þetta
getur fært aukna hlýju inná
heimili unga fólksins.
JÓN SÆMUNDUR AUÐARSON: ER EKKI SMEYKUR UM HAUSKÚPUNA SÍNA
Málar portrett af Tarantino
og leitar að nýju húsnæði
Í kvöld klukkan átta lýkur
tónleikaferð Írafárs um landið
en þá verða lokatónleikar
sveitarinnar í Austurbæ. Sveitin
hóf hringferðina á Selfossi og eru
tónleikarnir í kvöld þeir tíundu
á tæpum mánuði. Þetta er ekki
hefðbundin tónleikaferð því Írafár
hefur verið í nánu samstarfi
við Íslandsbanka en allur ágóði
af aðgangseyrinum rennur
til styrktar Einstakra Barna
og í kvöld verður ávísun með
upphæðinni afhent. „ Við vonumst
til að hún nái að hljóða uppá meira
en tvær milljónir,“ segir Vignir
Snær Vigfússon, gítarleikari og
aðallagasmiður Írafárs en miðað
við gang mála í forsölu stefndi allt
í það.
Vignir var mjög ánægður
með hvernig til hafði tekist og
sagði tónleikaferðina í raun hafa
gengið vonum framar. „Það var
ánægjulegt að sjá hversu duglegt
fólk var að mæta til styrkja gott
málefni og sjá tónleika,“ sagði
hann. Það tekur töluvert mikið á
fyrir hljómsveit að ferðast svona
mikið um landið en Írafár hefur
að mestu leyti farið ferða sinna
í rútu sem gengur undir nafninu
„Línerinn“. „Þær eru vel útbúnar
með kojum og öllum græjum
þannig að maður getur sofið á
leiðinni,“ segir Vignir sem gat þó
ekki leynt ánægju sinni yfir að
vera kominn heim í heiðarbólið.
Hljómsveitin er ekkert að
fara leggjast í leti nú þegar
hringferðinni er lokið því nú
hefst sölusamkeppni jólanna
fyrir alvöru. „Það þarf að árita
plöturnar og spila á tónleikum
þannig að helgarnar fara meira
eða minna allar í þetta.“ -fgg
Góðu dagsverki komið til skila
ÍRAFÁR Hefur spilað á tíu tónleikum
um land allt og afhendir Einstökum
börnum afraksturinn af þeim.
[ VEISTU SVARIÐ ]
1 Fyrir að reyna að smygla 400
grömmum af heróíni.
2 Lady Kristina.
3 Steaua Búkarest.