Fréttablaðið - 03.12.2005, Blaðsíða 40
[ ]
Subaru Impreza er skemmti-
lega sprækur bíll og að auki er
hann lipur með afbrigðum.
Subaru Impreza er minnsti og
sportlegasti bíllinn í Subaru-fjöl-
skyldunni og er að sjálfsögðu fjór-
hjóladrifinn eins og hann á kyn til.
Bíllinn er sportlegur og skemmti-
legur í útliti, ekki síst wagonbíllinn
sem vissulega sker sig enn frekar
úr fjöldanum en sedaninn.
Reynsluekið var sjálfskipt-
um tveggja lítra 160 hestafla
bíl í wagon-útfærslu. Það sem
vakti fyrst athygli þegar sest var
undir stýri var hversu snarpur
bíllinn var og fljótur að taka við
sér. Sömuleiðis er stýrið lipurt
og lætur vel og nákvæmlega að
stjórn. Bíllinn er rásfastur og
stöðugur og liggur afar vel á vegi.
Hin lárétta boxer-vél í bílnum
gerir það að verkum að titring-
ur vélar er minni en maður á að
venjast vegna þess að stimplarn-
ir slá beint hver á móti öðrum,
auk þess sem hún skilar mikilli
snerpu og gerir bílinn þýðan í
akstri. Einnig er þyngdarpunkt-
urinn í bílnum lægri en gengur
og gerist vegna boxer-vélarinnar
sem vissulega gerir hann stöð-
ugan. Þetta allt ásamt sítengdu
aldrifinu og frábærri fjöðrun
gerir akstur á Subaru Imprezu
að stakri nautn. Framúrskarandi
aksturseiginleikar bílsins njóta
sín vel bæði í innanbæjarakstri
og úti á vegum. Innanbæjar er
bíllinn lipur með afbrigðum og
smýgur vel í þrengslum og í hrað-
ari þjóðvegaakstri nýtur rásfest-
an og fjöðrunin sín til fulls.
Sætin eru þægileg, sportleg
og stinn. Plássið er gott fram-
mí en í aftursætinu getur orðið
þröngt um fætur fullorðinna, að
minnsta kosti ef þeir sem sitja
framm í framsætunum eru frekir
til plássins. Aðstaða ökumanns er
góð, útsýni gott úr bílnum og allir
hlutir aðgengilegir og þægilegir í
notkun. Bíllinn hefur allan búnað
sem til er ætlast nema að undirrit-
uð saknaði hita í sætum sem mér
finnst eiginlega að ætti að vera
staðalbúnaður í öllum bílum sem
fluttir eru til okkar svala lands.
Fjórhjóladrifinn bíll hlýtur að
vera kostur sem alltaf kemur til
greina í landi þar sem allra veðra
getur verið von. Subaru Impreza
er minni og snaggaralegri val-
kostur en flestir aðrir í flokki
fjórhjóladrifinna bíla og mætir
því þörfum þeirra sem kjósa bíl
með sítengdu aldrifi en kæra sig
þó ekki um að vera á sérstaklega
stórum bíl. steinunn@frettabladid.is
Sprækur og skemmtilegur
SUBARU IMPREZA
Hestöfl Beinskiptur Sjálfskiptur
Sedan 2,0R 160 1.990.000 kr. 2.130.000 kr.
Sedan WRX 2,5 230 2.990.000 kr.
Wagon 2,0R 160 2.050.000 kr. 2.180.000 kr.
Almennar bílaviðgerðir
Njarðarbraut 15 • Reykjanesbær • S: 421 2999 • Fax: 421 2090
Netfang: nysprautun@nysprautun.is
www.nysprautun.is
Viðurkennt
CABAS-verkstæði
BÍLSTJÓRAR - HÆTTIÐ AÐ PRÍLA!
RAFSTÝRÐAR YFIRBREIÐSLUR
FYRIR VÖRUBÍLA, VAGNA OG GÁMA
G.T. ÓSKARSSON EHF
VESTURVÖR 23, 200 KÓPAVOGUR
SÍMI 554 6000 • www.islandia.is/scania
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
verslana eru yfirleitt þétt skipuð þegar jólin nálgast. Það er mikil-
vægt að sýna tillitsemi og keyra varlega á bílastæðum þegar margir
eiga leið um þau.
Bílastæði
Framendinn er reglulega sportlegur.
1 2 3 6
4 5
1. Ljósahringurinn í kringum svissinn
kemur sér vel í skammdeginu.
2. Hefðbundið mælaborð.
3. Afturendinn á wagon-bílnum er
svipsterkur.
4. Skottið er aðgengilegt og þokkalega
rúmt. Hægt er að stækka rýmið til
muna með því að fella niður aftursæti.
5. Í miðjustokknum eru glasahaldarar
eins og vera ber.
6. Sætin eru sportleg og halda vel utan
um mann.
Subaru Impreza er
fallegur bíll með
afgerandi svip.